Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Side 36
36 Fólk 25.–27. október 2013 Helgarblað
Skrifaði leikrit um Sesselju
Sesselja Guðmundsdóttir stofnaði
Sólheima fyrir um 90 árum og var
einstök á sínu sviði. Edda skrif-
aði leikrit um ævistarf hennar árið
2010. „Ég féll svo fyrir sögunni
hennar. Hún er fyrsta manneskjan
á Norðurlöndunum sem stundar
lífræna ræktun og í trássi við allt
og alla. Barnaverndarnefnd sætti
sig til dæmis ekki við að hún var
að blanda saman „fávitum og
heilbrigðum“ eins og fólk með
þroskafrávik var kallað í þá daga.
Þetta þótti hreinlega glæpsamlegt.
Þar að auki var hún að láta þau
éta gras! Fólk þekkti svo lítið græn-
meti á þessum tíma. Svo geisuðu
pestir um allt land og börn í
nærliggjandi sveitum dóu unn-
vörpum á meðan að börnin henn-
ar Sesselju voru hraustustu börnin
á Íslandi.“
Hitti kærastann í matarboði
Edda segist hafa verið fegin að
mörgu leyti yfir því að kynnast
manni sem vissi ekki hver hún er.
„Hann var búinn að búa í Ameríku
frá því að hann var tvítugur og hafði
aldrei heyrt minnst á mig. Hann
er hálfur Íslendingur, einn fjórði
Frakki og einn fjórði Egypti.
Þegar við rákumst á hvort ann-
að í matarboði fyrir þremur árum
þá horfði hann bara á mig tómum
augum. Hann var hér í gamla daga
í popphljómsveit og ég mundi eftir
honum en hann mundi ekkert eftir
mér.“
Kveikti í kærastanum
„Hann bauð mér loksins á deit en
þá náði ég að klúðra því svo rosa-
lega að ég heyrði ekki í honum aftur
í mjög langan tíma á eftir. Ég kveikti
nánast í honum og ruddi um öll-
um veitingastaðnum. Ég er svolítið
seinheppin nefnilega.
Töskurnar mínar rákust í alls
kyns muni þarna inni sem lágu
eins og hráviði um allt gólf. Ég lagði
óvart flíkurnar hans og töskuna
ofan á sprittkerti sem var þarna á
staðnum og áttaði mig ekki á því að
ég var búin að eyðileggja þetta fyrr
en konan á næsta borði fleygði sér
á borðið okkar og barði í logandi
töskuna.
Ofan á allt annað hafði ég mætt
í öfugum kjólnum og hann endaði
á því að toga svona varlega í merki-
miðann og spyrja hvort þetta ætti
að vera utan á! Í hans augum var ég
bara kona sem varð mér til óbæri-
legrar skammar.“
Fór tárvot heim
„Ég fór bara tárvot heim og skamm-
aðist mín hroðalega fyrir að hafa
rústað þessu deiti algjörlega og
eyðilagt fötin hans, hálfan veitinga-
staðinn og eins og fífl verið í öfugum
kjólnum. Ég ætla ekki einu sinni
að nefna hversu fáránlegt það var
að stinga upp á heilsuveitingastað
með salatbar þar sem gumsið fest-
ist undantekningarlaust á milli
tannanna á manni. Þarf ég að taka
það fram að ég missti auðvitað skál-
ina líka í gólfið og allt fór út um allt?“
Pyntingaraðferðir
„Ég held að það það hafi þurft að
beita pyntingaraðferðum til að fá
hann til þess að þora að fara aftur
á deit með mér og þá skipulögðu
vinkonur okkar boð til þess að við
myndum örugglega hittast aftur. En
það liðu margir mánuðir áður en
hann þorði að láta sjá sig einhvers
staðar með mér einni. Við erum
í fínu sambandi í dag – því það er
mátulega mikið.
Ég er ekkert að troða honum um
tær. Ekki er ég að láta mér detta í
hug til dæmis að við séum í of mikl-
um samskiptum eða fari í sam-
búð eða eitthvað svoleiðis. Það
væri örugglega disaster. Við erum
bara enn að deita og það er rosa-
lega skemmtilegt. Það viðheldur
róman tíkinni.“
Kærastinn fékk sjokk
Blaðamaður er þegar hér er komið
sögu grenjandi úr hlátri yfir frásögn
Eddu. Þá veltir maður fyrir sér að
nú er Edda Björgvins ein af ástsæl-
ustu leikkonum landsins. Hvenær
áttaði maðurinn sig á því að hann
væri að deita stórstjörnu? „Við vor-
um búin að vera að hittast í nokkra
mánuði þegar að hann hringdi allt í
einu í mig í algjöru sjokki.
Þá var lítið búið að fara fyrir mér
í einhvern tíma en um jólin var
verið að sýna kvikmyndir í sjón-
varpinu eins og Stella í orlofi, Perl-
ur og svín og svona. Hann spurði;
fyrirgefðu, ert þú bara þjóðareign?
Það var enginn að fræða hann neitt
sérstaklega um það hver ég væri
vegna þess að hann er bara mjög
rólegur maður og þetta hefði bara
hreinlega hrætt hann.“
Safnar í Gleðibankann
„En svo var það bara ég og brussu-
skapurinn minn sem hræddi hann
upp úr skónum þarna í byrjun. Ég
fékk reglulega andnauð bara við
tilhugsunina um þennan atburð á
fyrsta deitinu lengi eftir á. Vinkonur
mínar hlóu svo brjálæðislega mikið
yfir þessu að ég smám saman öðl-
aðist húmor fyrir þessu öllu saman.
En þetta er svolítið dæmigert fyrir
líf mitt.
Mjög stór hluti af lífi mínu er
svona hamfarir í daglegri um-
gengni. Ég held að ég hafi þegið
það með þökkum að ég hafi dottið
inn í gamanleik bara til þess að geta
gert grín að öllum mínum brestum
og hrakföllum. Þá er svo mikið auð-
veldara ef maður getur hlegið að
þessu.“
Lukkunnar pamfíll
Edda segist hafa þróað með sér já-
kvætt viðhorf til lífsins þegar hún
lítur til baka og er þakklát fyrir bæði
sorg og gleði sem hafa litað daga
hennar. „Þegar að ég lít yfir líf mitt
þá finnst mér ég svo ótrúlega hepp-
in og mikill lukkunnar pamfíll.
Ég fengið svo margar gjafir, til
dæmis hef ég ekki þurft að glíma
við neina sjúkdóma. Auðvitað
missir maður fólkið sitt og maður
gengur í gegnum skilnað, ég meina
hver gerir það ekki. En svo er ég svo
heppin að ég á ennþá pabba minn
sem er svo mikill engill, ég þakka
fyrir hvern einasta dag sem ég hef
hann. Ég átti yndislega mömmu
sem varð 83 ára. Ég er nú svo hepp-
in að maðurinn sem ég var gift í 30
ár er besti vinur minn í dag. Svo á
ég yndisleg börn og ótrúlega góða
vini.
Hversu heppinn getur maður
verið. Ef maður miðar lífsreynslu
sína við til dæmis þá sem missa
börnin sín þá finnst mér mað-
ur ekki hafa rétt á að tala um ein-
hver áföll. Auðvitað er sárt að missa
mömmu, jafnvel þótt hún hafi á
vissan hátt eflaust verið fegin að fá
hvíldina, en það er sárt. Mér finnst
ég hafa verið mjög lánsöm.
Þegar ég lít yfir líf mitt þá er ég
óendanlega rík þótt auðvitað sé þar
fullt af hversdagslegum verkefnum
sem bara allir þurfa að takast á við.
Ég dáist einstaklega mikið að fólki
sem getur tekist á við alvarleg áföll í
lífinu með kærleiksríku viðhorfi og
haldið áfram með sitt.“
Aðdáandi Patch Adams
Að sögn Eddu er óumdeilt að já-
kvæður húmor hafi jákvæð áhrif
á vinnustöðum en þó hafa engar
mælanlegar rannsóknir verið fram-
kvæmdar hérlendis nema þá henn-
ar eigin. Takmarkað er af rann-
sóknum erlendis en hún bendir
áhugasömum á Patch Adams
sem notar húmor í starfi sínu sem
læknir en hann kom til Íslands fyrr
á þessu ári.
„Fyrir mér var þetta bara eins
og ef Bítlarnir væru að koma, ég er
búin að lesa svo mikið eftir hann og
vitna svo mikið í hann,“ segir Edda
sem gantast með að hafa getað
hugsað sér að kasta nærbuxunum
af sér upp á svið til hans, slíkur að-
dáandi væri hún.
Vill rannsaka húmor betur
„Það eru engar rannsóknir til á Ís-
landi. Einu rannsóknirnar um gildi
húmors á vinnustað eru þær sem
ég hef gert. Næsta skref hjá mér
er að finna flott fyrirtæki sem vill
vinna með mér og leyfa mér að gera
tilraunir með gleði, húmor og ham-
ingju inni í einu fyrirtæki og fylgja
því eftir.“
Vantar fleiri tíma í sólarhringinn
Nóg er framundan hjá Eddu okkar
Björgvins en hún vinnur nú að eig-
in sögn að risastóru framtíðar-
verkefni sem er leiklistartengt en
má ekki greina frá að svo stöddu,
en vinna við leikhúsverkið er
þegar hafin. „Sólarhringurinn er
of stuttur fyrir minn smekk,“ segir
Edda brosandi með bjart blik í aug-
um að lokum. n
„Maður getur notað
húmor bæði til að
gleðja og meiða
Væri dáin úr skömm „Það er svo
gott að geta hlegið að sjálfum sér.
Ég væri dauð úr skömm ef ég gæti
ekki hlegið að öllum pínlegu atvik-
unum sem ég hef lent í yfir ævina.“