Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Síða 39
39Helgarblað 25.–27. október 2013
margföldum morðingjum og nauðgurum í rússnesku borginn Rostov eða í
nágrenni hennar, hefur verið komið á bak við lás og slá samkvæmt Moscow Times. Þeirra
þekktastur er sennilega Andrei Chikatilo, Rostov Ripper eins og hann var kallaður. Óhætt er
að segja að fáar borgir státa af jafnmörgum varmennum í þessum skilningi og Rostov.29
n Fabien hugsaði Paco þegjandi þörfina n Lagði á ráðin um morð á kviðmági sínum
L
ítið vissi Francois „Paco“
Garcia um þá hættu sem
hann bauð heim þegar hann
ákvað að hefja samband
við Marie-Doléne í ágúst
2009. Þau höfðu kynnst á netinu
og sambandið síðan þróast yfir í
mannheima. Sambandið hófst þó
ekki fyrir alvöru fyrr en í nóvem-
ber og það sem Paco vissi ekki var
að Marie-Doléne hafði þá nýlega
slitið sambandi við annan mann,
Fabien Tellier. Paco átti reyndar eft-
ir að komast að því síðar og sleppa
með skrekkinn.
Heift og hatur
Fabien þessum hugnaðist ekki sú
tilhugsun að hafa verið kastað fyrir
róða, að einhver annar vermdi nú
værðarvoðir Marie-Doléne. Heift
og hatur fyllti sinni hans og í inn-
um hans bærðist aðeins sú þrá að
standa yfir líki Paco. Fabien var
með hnífinn sem myndi uppfylla
ósk hans, en hann vantaði bif-
reið til að komast frá heimili sínu í
þorpinu Soustons, í suðvesturhluta
Frakklands, til borgarinnar Albi,
þar sem óbermið Paco bjó.
En Fabien taldi sig vita hvar
hann gæti fengið lánaðan bíl; hjá
Annick Lamarque, 51 árs ekkju
sem fyrr meir hafði hleypt honum
í dyngju sína. En nei, Annick var
ekki á þeim buxunum þegar hann
bar um bónina á heimili hennar.
Albi var í 160 kílómetra fjarlægð og
hún þurfti sjálf að nota bílinn. Enda
taldi Annick að Fabien ætti ekkert
inni hjá henni. „Þú getur fengið
50 evrur hjá mér og tekið lestina,“
sagði hún við Fabien sem missti þá
stjórn á skapi sínu. Hann fór inn í
eldhús fann þar kuta og lét vaða níu
sinnum víða í líkama Annick, þar til
hún lá örend eftir.
Fabien fann síðan lyklana að
BMW-bifreið Annick, hirti allt fé úr
veski hennar og ók sem leið lá til
Albi – þar beið hans annað fórnar-
lamb.
„Stunginn af brjálæðingi“
Sem fyrr segir var Paco ekki ljós
tilvist Fabien – hafði aldrei heyrt
hans getið, aldrei hitt hann – og
því grunlaus með öllu um ráða-
brugg Fabien. Fabien hafði fylgst
með Paco um þó nokkuð skeið,
falið sig í skuggum og beðið færis
til að ráða honum bana. Þennan
dag, 10. desember, virtist sem
draumur Fabien myndi rætast.
Hann risti í hjólbarða á Renault-
bifreið Paco með það fyrir augum
að barðinn gæfi sig eftir einhvern
akstur, síðan bjó Fabien sig undir
einhverja bið.
Þannig var mál með vexti að
Marie-Doléne hafði boðið Paco til
kvölverðar þetta kvöld og lagði af
stað um kvölmatar leytið.
Áform Fabien gengu eftir og
dekkið á bíl Paco sprakk. Í kvöld-
húminu steig Paco út úr bifreið
sinni og opnaði farangursrýmið til
að ná í varadekkið. Þá heyrði hann
að bifreið var stöðvuð fyrir aftan
hann. „Get ég aðstoðað þig,“ var
spurt. Paco hafði vart tíma til að
svara eða sjá framan í þann sem
talaði. Sá mundaði hníf og öskraði:
„Skítseiði. Ég ætla að drepa þig. Þú
munt drepast.“
Paco féll aftur á bak og reyndi
eftir fremsta megni að verjast en í
þrígang náði Fabien að stinga hann
með hnífnum. Paco náði þó að
sparka duglega í Fabien sem þá virt-
ist ljóst að við oferefli væri að etja,
stökk upp í BMW-inn og ók á brott.
Paco komst við illan leik í lyfja-
verslun þar sem gert var að sárum
hans og var síðan ekið á spítala,
áður en það gerðist náði hann þó
að hringja í Marie-Doléne. „Kvöl-
verðurinn verður að bíða, er ég
hræddur um,“ sagði hann, „það var
ráðist á mig og ég stunginn af brjál-
æðingi.“
Málin skýrast
Við rannsókn lögreglunnar kom
upp úr kafinu allt það sem Marie-
Doléne hafði ekki séð ástæðu til að
upplýsa Paco um – ástsjúki fyrrver-
andi ástmaðurinn og óbeit hans á
tilhugsuninni um annan karlmann
í örmum Marie-Doléne. Þegar lög-
reglan heimsótti Fabien reyndi
hann að fela eitthvern hlut en hafði
ekki erindi sem erfiði. Um var að
ræða bíllykla Annick.
Bíllyklarnir leiddu lögregluna
í íbúð Annick þar sem lík hennar
blasti við á gólfinu í stofunni. Á
meðan Fabien beið réttarhalda
í grjótinu braggaðist Paco hægt
og bítandi á sjúkrahúsi og var
að lokum útskrifaður. Paco og
Marie-Doléne héldu sambandi
sínu áfram, en í anda nánast alls í
þessari frásögn þá rann samband
þeirra sitt skeið.
Í mars 2012 horfðust Paco og
Fabien í augu í fyrsta skipti, en
Marie-Doléne vildi ekki sýna sig.
Að lokum varð hún þó við þeirri
beiðni dómsins að bera vitni í
gegnum vídeó, en engir viðstadd-
ir nema dómarinn og kviðdómur
fengu að berja hana augum.
Vitnisburður Marie- Doléne
sýndi að hún var ekki öll þar sem
hún var séð. Hún sagðist aðeins
hafa verið með Fabien því hann
bauð henni út að borða og var
ekki spar á aurinn, en að öðru
leyti skipti hann hana engu máli
og hvað hann hafði gert snerti
hana ekki hið minnsta.
Fabien leit málið öðrum aug-
um og sagði að honum hefði fund-
ist sem hann yngdist um mörg ár
þegar hann var með henni. „Við
vorum eins og ástfangnir ung-
lingar,“ sagði hann. Hann getur
huggað sig við þá tilhugsun næstu
20 árin – á bak við lás og slá. n
Í manndrápshug
Í greipum
lögreglunnar
Fabien tókst
ekki að myrða
þann sem hann
vildi helst.
„Skítseiði.
Ég ætla
að drepa þig. Þú
munt drepast.
Francois „Paco“ Garcia
Paco hafði ekki grænan grun um að árásarmaðurinn væri fyrrverandi ástmaður Marie-Doléne.
Morðingi
tekinn af lífi
Yfirvöld í Arizona í Bandaríkj-
unum tóku morðingjann Robert
Jones af lífi á miðvikudag. Jones
var dæmdur fyrir að myrða sex
manns árið 1996 í þremur aðskild-
um ránum. Ránin voru sérlega
bíræfin en við þau naut Jones að-
stoðar fleiri manna. Í einu þeirra,
þann 30. maí 1996, gengu Jones
og félagi hans inn í verslun í Tuc-
son. Jones skaut afgreiðslumann
verslunarinnar til bana án þess að
hika. Annar starfsmaður reyndi að
flýja en Jones elti hann inn á lager
verslunarinnar og skaut hann til
bana. Þann 13. júní sama ár fund-
ust fjögur lík á skrifstofu verkalýðs-
félags slökkviliðsmanna í Tucson.
Þar höfðu fjórir starfsmenn verið
skotnir til bana og höfðu þjófarn-
ir þrettán hundruð Bandaríkjadali
upp úr krafsinu sem þeir stálu úr
peningakassa á skrifstofu verka-
lýðsfélagsins. Upp komst um Jones
eftir að hann notaði kreditkort
eins fórnarlambanna og var hann
handtekinn ásamt félaga sínum.
Í frétt USA Today kemur fram að
Jones hafi afþakkað máltíð að eig-
in vali, sem hefð er að bjóða föng-
um á dauðadeild áður en þeir eru
teknir af lífi. Fjölmargir ættingjar
fórnarlambanna horfðu á aftökuna
á miðvikudag.
Undarleg
vopn
Emmanuel Alfredo Tadeo, 27 ára
Bandaríkjamaður, drap hund kær-
ustu sinnar á ógeðfelldan hátt og
reyndi að gera slíkt hið sama við
hana og notaði dauða hundinn
til þess!
Fimmtugur maður að nafni
Larry Spurling, frá Nebraska í
Bandaríkjunum, réðst á eigin-
konu sína í fyrra vetur
með samloku.
Hann reyndi að
kæfa hana með
samlokunni. Kon-
an hans var öll
útötuð í majónesi
eftir árásina og þurfti hann að sitja
í fangageymslu í kjölfarið.
Ronald Hetzel, rúmlega
fertugur Bandaríkjamaður,
gerði sér ferð til Las Vegas í
júlí í fyrra og reyndi að
drepa ónefndan mann á
heimili hans. Til þess tók
hann með sér gítar og
klósettlok. Þegar það
dugði ekki til reyndi
Hetzel að kyrkja
manninn, en morð-
tilraunin tókst ekki
og hann var hand-
tekinn.
Darrius Johnson myrti kærustu
sína, Monicu Gooden, í apríl á
þessu ári. Á heimili
þeirra var gjörónýt
og blóðug Xbox-
tölva. Í ljós kom að
hann myrti hana
á hrottalegan hátt
með tölvunni. Það þarf
ekki að taka fram hvar Barrius er
niðurkominn í dag.