Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Side 46
Þ að voru ellefu fjall­ göngugarpar sem lögðu leið sína á Skessuhorn um­ ræddan dag fyrir rúmum þremur árum. Veður var nokkuð gott en versn­ aði þegar ofar dró og í 924 metra hæð var ákveðið að snúa við vegna versnandi veðurs. Þegar fjallgöngugarparnir voru komnir niður í 903 metra hæð rann Sigríður úr hópnum af stað og stöðvast ekki fyrr en um 200 metrum neðar. Sigríður fékk tví­ vegis höfuðhögg við hrapið höfuð­ kúpubrotnaði og hlaut aðra alvar­ lega áverka. Göngufélagar hennar héldu að hún væri látin og horfðu á eftir henni renna eins og poka nið­ ur brekku. Hryllingssýn sem seint gleymist Bára segir frá því hvernig slysið bar til. „Það kom skyndileg vindhviða í hópinn og við þurftum öll að satinga fæti fram til að styðja okk­ ur við í broddum, bratta og hálku. En Sigga sem stóð í miðjum hópn­ um rann af stað niður brekkuna og rakst í klettahjalla. Líklega missti hún meðvitund þegar hún rakst í klettinn, þessari hryllingssýn gleymum við aldrei. Við héldum að hún væri dáin.“ „Ég gat ekki meir“ Glíman við hálkuna og brattann og þegar hún féll stendur Sigríði enn ljóslifandi fyrir sjónum. „Eft­ ir að ég féll man ég nokkur brot. Ég man reyndar fallið alltaf eins og það hafi gerst í gær, síðan nístandi sársaukinn og svo kom kuldinn. Og göngufélögum mínum yfir mér. Ég man eftir augum sem horfðu stíft á mig og alltaf eitthvað verið að tala við mig. Þá hafði Jón Gauti skipt göngufélögum mínum í hlutverk, og eitt þeirra var að halda mér vak­ andi sem mest hann mátti. Mikill ófriður fannst mér því ég vildi bara fá að sofa. En það sem stendur upp úr og er sterkasta upplifunin var þegar ég heyrði þyrluna nálgast. Ég fann til léttis og hugsaði með mér að nú væri þetta að hafast. En svo fjar­ lægðist hún og fór. Hún gat ekki lent þarna fyrir veðri og ég heyrði vonbrigðin hjá hópnum. Þá vildi ég loka augunum og fá að fara. Mér fannst ég ekki geta meir,“ segir Sig­ ríður. Vildi geta spólað til baka Bára segir göngufélagana hafa flýtt sér niður til Sigríðar. Jón Gauti var fyrstur. Hann lýsir aðkomunni í bók sinni. „Ég komst fljótlega að henni og þar sem ég kraup í fönninni með hana líflausa í fanginu og hópinn enn hátt uppi í fjallshlíðinni þar sem ég naumast grillti í hann þráði ég heitar en nokkurn tíma að geta spólað lífið aðeins til baka,“ skrifar Jón Gauti um slysið í Fjallabókinni. Glær vökvi með blóðinu Bára er bráðahjúkrunarfræðingur að mennt og gæfa að hún var með í för. Þegar hún kom að Sigríði og Jóni Gauta lá hún grafkyrr en þó með einhverja meðvitund. „Það blæddi úr nefinu og virtist koma glær vökvi með blóðinu en erfitt var að segja til um hvort hann væri bara sviti, tár eða snjór eða það­ an af verra. Þetta gaf tilefni til þess að áætla að um alvarlegan höfuð­ áverka væri að ræða.“ Langt frá björgun Staða göngufélaganna var ólýsan­ lega erfið. Sigríður var alvarlega slös­ uð og meðvitundarlítil. Með hugs­ anlega höfuðáverka og í 800 metra hæð í miðri snjóbrekku í vindi og snjókomu. Hitinn langt undir frost­ marki og ljóst að líf hennar var í hættu því hún var fjarri björgun. Jón Gauti hringdi á Neyðarlínuna og gaf nauðsynlegar upplýsingar. „Þar sem hún var með höfuð­ áverka var ljóst að við yrðum að kalla á hjálp og hlúa að henni á staðnum þar til björgun bærist,“ segir Bára. Grafin í fönn Orðalaust byrjuðu göngufélagar Sigríðar að moka snjó. Það var ekk­ ert annað í stöðunni en að grafa hana í fönn. „Við vorum svo sam­ stillt, þótt að við værum full ang­ istar og ótta þá héldum við ró okk­ ar. Verkefni okkar var eitt – að halda Sigríði á lífi. Við grófum henni skjól og komum henni fyrir. Þarna sem hún stöðvaðist var 46 Lífsstíll 25.–27. október 2013 Helgarblað „Þá vildi ég loka augunum og deyja“ Sigríður Sigurðardóttir hrapaði 200 metra og slasaðist illa á Skessuhorni í Skarðsheiði. Leiðsögu- maður gönguhópsins, Jón Gauti Jónsson, gekkst við ábyrgðinni á slysinu og hefur nú gefið út bók um allt sem tengist fjallgöngum um óbyggðir Íslands. Hann segist hafa gert mistök sem urðu til þess að slysið átti sér stað. Í dag fer Sigríður ótrauð í fjallgöngur með gönguhópnum sínum. Hún segir göngufélagana hafa bjargað lífi sínu og stutt sig til bata. Kristjana Guðbrandsdóttir ræddi við Sigríði og Báru Agnesi Ketils dóttur bráðahjúkrunarfræðing, um slysið og leiðina til lífs og bata. Komin aftur á fjöll Sigríður gengur ótrauð á fjöll með félögum sínum eftir að hafa lent í lífshættu á fjöllum. Mynd SiGtryGGur Ari Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal „Ég man eftir kuldanum og nístandi sárs- aukanum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.