Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Side 47
djúpt lag af snjó og það var til gæfu að
það reyndist auðvelt að útbúa skjólið.
Ég held stundum að við höfum verið
færð til á þennan stað henni til björg
unar.“
Tæmdu bakpokana
Hópurinn var nú allur kominn til Sig
ríðar og hver og einn fann sér hlut
verk, fundu fatnað og búnað til að
verja hana kulda og óþægindum. Öllu
sem hægt var tína til var vafið utan
um hana og göngufélagarnir tæmdu
meira að segja nokkra bakpoka til
þess að einangra Sigríði betur frá
jörðu.
„Fljótlega fór að snjóa og þá beint
framan í hana þar sem hún lá og mað
ur varð að hlífa andlitinu og þarna
varð manni ljóst að við gætum aldrei
einangrað hana alveg frá kuldanum
svo maður lagðist ósjálfrátt við hlið
hennar og grúfði sig yfir hana til að
verja hana gegn veðrinu,“ segir Bára.
Slösuð niður brekkuna
Þau skiptust á, tvö til þrjú í senn, að
liggja við hliðina á henni og halda
utan um hana til að halda á henni
hita í frostinu. Hún hefði illa haldið
líkamshitanum þrátt fyrir að vera
vafin rækilega inn í allt tiltækt. Ál
poka, peysur, vettlinga og fleira. Bára
segir þessar stundir ógleymanlegar.
Þau stöppuðu stálinu í hvert ann
að og héldu Sigríði heitri. „Við tók
um eftir bjúgsöfnun á augnlokunum
sem benti til höfuðkúpubrots aftan á
hnakka. Við létum Jón Gauta vita svo
það væri hægt að gera ráð fyrir þessu
á slysadeild. Það var þarna sem við
áttuðum okkur á alvarleikanum til
fulls og óttinn var algjör.“
Flutt niður á börum
Það var ekki nema klukkutími
liðinn frá slysinu þegar þyrlan
sveimaði yfir hópnum og leitaði
lendingarstaðar. Eins og Sigríður
sagði frá þá þurfti þyrlan frá að
hverfa vegna veðurs og hún missti
lífsviljann um stund. Hópnum
varð ljóst að hjálpin bærist ekki fyrr
en eftir nokkra klukkutíma og þurfti
nú að takast á hendur þrekvirki. Að
flytja Sigríði alvarlega slasaða með
aðstoð björgunarsveitarmanna úr
rúmlega 800 metra hæð niður snar
bratta brekkuna. Veður fór versnandi
og snjóflóðahætta neðar í hlíðunum.
Bára og Jón Gauti fylgdu Sigríði alla
leið og þau trufluðu hana stöðugt til
að kanna meðvitund og áttun.
„Ég get ekki lýst því með orðum
hvernig okkur leið þegar við sáum
björgunarsveitarmennina og íslensku
fjallaleiðsögumennina komna til okk
ar. Þeir höfðu komið með björgunar
sveitarmönnum okkur til stuðnings.“
Fékk ekki frið
Flutningurinn niður brekkuna og
í þyrluna sem beið neðst við ræt
ur fjallsins er Sigríði minnisstæður.
„Sem betur fer fékk ég ekki frið fyrir
þessu fólki. Ég man eitthvað eftir
ferðinni niður en það er allt í móðu.
Ég veit að tilgangurinn var að halda
mér í meðvitund. Þegar búið var að
flytja mig niður á jafnsléttu var veður
enn það slæmt að þyrlan gat ekki lent.
Því var ég hífð upp í hana og það tók
mikið á mig.“
Engill
Sigríður þraukaði þyrluferðina erfiðu
og var færð á gjörgæslu til aðhlynn
ingar.
„Ég man eftir tilfinningunni að
komast í hita. Svo þurfti að sauma á
mér hausinn. og mynda mig hátt og
lágt. Þegar búið var að gera að sárum
mínum og meiðslum fékk ég loksins
að sjá fjölskylduna mína.“
Sigríður hikar á meðan hún rifjar
upp. „Það var ólýsanleg upplifun að
sjá manninn minn og dætur. Ég var
búin að ákveða að ég sæi þau aldrei
aftur. Vinkona mín að austan var í
fylgd með þeim og þá vissi ég að að
þeim hefði verið hlúð í hryllilegri bið
og óvissu. Þegar ég sá hana, þá segi ég
alltaf að ég hafi séð engil.“
Fékk heimsóknir frá fjallafólki
Sjúkrahúslegan var ekki löng, hún
var einn sólarhring á gjörgæslu og
fór heim á sjötta eða sjöunda degi.
Sigríður fór fljótt á stjá.
„Ég fór fljótlega að hreyfa mig.
Fór að ganga í kringum húsið í fylgd
eiginmannsins. Ég hafði lítið jafn
vægi og var óörugg en fjallafólkið
mitt var duglegt að heimsækja mig
og ræða við mig um líðan mína og
slysið. Stappa í mig stálinu. Ég var
vafin inn í bómull á þessum tíma.“
Komin aftur á fjöll
Þrátt fyrir að hafa lent í lífshættu og
fengið alvarlega áverka var Sigríður
farin að ganga á fjöll aðeins nokkrum
mánuðum eftir slysið. „Auðvitað
ætlaði ég aldrei aftur á fjall. Það var
mín fyrsta hugsun. Ég bý hérna og
hef Esjuna og Úlfarsfellið fyrir aug
unum og á einhverjum tímapunkti
hugsaði ég; ég verð að prófa. En bara
á sumrin og í góðu veðri.
Ég gerði það, rölti aðeins upp í
Úlfarsfellið og aftur til baka. Fyrstu
gönguna fór ég svo með félögum
mínum einum og hálfum mánuði
seinna. Við fórum upp í Hafnarfjall
og það var ólýsanlegt. Ég áttaði mig
þar fyrst á því að ég var í heilu lagi.
Ég fór ekkert alla leið en það skipti
máli að hitta þau og vera með þeim.“
Glímir við óttann
Nú tekur eiginmaður hennar ríkan
þátt í fjallgöngum. „Hann fór að
ganga með mér um vorið og í fyrstu
löngu göngunni sem við fórum í
þurfti ég að horfast í augu við ótt
ann. Við lentum í vondu veðri á
Heiðarhorninu í lok maí. Mér var
hent út í aðstæðurnar sem ég vildi
forðast. Ég stóð þarna og gat mig
hvergi hrært og upplifunin frá slys
inu sótti á mig.“
Þakkar félögum lífgjöfina
Hún hefur allan vara á sér í dag og
hefur gengið ótrauð með hópnum
sínum. Hún þakkar göngufélögum
sínum lífið, verndina og leiðina til
bata.
„Ég hef alltaf varann á mér. Ég er
með veðurspána fyrir augunum alveg
fram á síðustu stundu. Í dag er ekkert
farið ef veðurspáin er ekki þokkaleg.
Ég er búin að ganga ótrauð með
hópnum mínum síðan. Það er þeim
að þakka að ég gat haldið áfram.
Stundum er hlegið að því hver ætli
nú að „passa“ mig þegar maðurinn
minn kemst ekki með. Það var alltaf
einhver sem gekk við hliðina mér
eða fyrir neðan til að veita mér vernd.
Þau héldu utan um mig, þau hrósaðu
mér. Ég þurfti stundum að stoppa og
öskra og gráta en þá var bara stöðv
að og haldið utan um mig. Það eru
margir sem skilja ekkert í mér en það
er svo yndislegt að ganga úti í fallegri
náttúrunni og ég læt ekki taka það af
mér. Það er líka mjög sérstakt að eiga
sér bjargvætti og eiga þeim lífið að
launa.“
Bára göngufélagi Sigríðar á loka
orðin: „Sú staðreynd fylgir okkur
um ókomna tíð að þarna hefði get
að farið enn verr. Þessi lífsreynsla
hefur mótað okkur til lífstíðar.“ n
Lífsstíll 47Helgarblað 25.–27. október 2013
„Þá vildi ég loka
augunum og deyja“
Hjálpin komin Björgunarsveitarmenn komnir til hjálpar og Sigríður sett á börur.
Hlúð að Sigríði Félagarnir skiptust á að halda hita á Sigríði í skjólinu.
Á slysstað Þessi mynd er tekin skömmu eftir slysið. Félagar hennar eru farnir að útbúa skjól.
Sigríður Hér sést Sigríður á leiðinni upp fjallið. Veður farið að versna.
Falleg leið Leiðin upp á
Skessuhorn er falleg. Hér er
gönguhópurinn á uppleið áður
en illviðrið skellur á.
„Það
er svo
yndislegt að
ganga úti í
fallegri náttúr-
unni og ég læt
ekki taka það
af mér