Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2013, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2013, Blaðsíða 10
Helgarblað 13.–16. desember 201310 Fréttir Á þessum tímapunkti var ég bú­ inn að sætta mig við að þetta væri búið hjá mér,“ sagði mað­ ur sem beittur var grófu ofbeldi í einu stærsta ofbeldismáli síð­ ari tíma, hinu svokallaða Stokkseyrar­ máli. Aðalmeðferð málsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag en þeir Stefán Logi Sívarsson, Stefán Blackburn, Davíð Freyr Magnússon, Hinrik Geir Helgason og Gísli Þór Gunnarsson eru ákærðir fyrir að hafa svipt tvo menn frelsi sínu og misþyrmt þeim á hrottalegan hátt, meðal annars með því að kýla þá, sprauta með lyfj­ um, stinga með eggvopnum og kveikja í kynfærum. Annar maðurinn var svo færður í húsnæði á Stokkseyri þar sem barsmíðarnar og frelsissviptingin héldu áfram í margar klukkustundir. Hrottalegar lýsingar Lýsingar brotaþola á því ofbeldi sem þeir urðu fyrir eru hrottalegar. Voru þeir meðal annars lamdir með kylf­ um, stungnir með eggvopnum og sprautunálum auk þess sem kveikt var í kynfærum annars. Annar brota­ þolinn, sem hér eftir verður nefnd­ ur Jón, bar Stefáni Loga þau tíðindi að maður, sem við skulum kalla Ara, hefði sofið hjá barnsmóður og fyrr­ verandi kærustu Stefáns Loga og virð­ ist sem þetta hafi verið ástæða árásar­ innar. Eftir að hafa fengið símtal frá ónefndum aðila fóru sakborningarnir Davíð Freyr, Stefán Blackburn, Hin­ rik Geir og Gísli Þór og sóttu Ara, sem var sofandi á heimili sínu. Hinrik gaf ekki upp rétt nafn í dyrasímann, heldur nafn sameiginlegs kunn­ ingja hans og Ara, til að opnað yrði fyrir þeim. „Honum hefur kannski fundist honum stafa einhver ógn af þessu,“ sagði Davíð, spurður hvort Ari hafi verið sviptur frelsi sínu og fluttur með valdi af heimili sínu. Hann viðurkenndi einnig að Ari hafi verið beittur ofbeldi. „Hann var eitthvað bundinn og svo var hann eitthvað barinn,“ sagði Davíð og útskýrði svo að Ari hefði verið bundinn með bæði hendur og fætur fyrir aftan bak en kaus að tjá sig ekki um það hver batt manninn, hver kýldi hann eða hvernig líkamsmeiðingunum hafi al­ mennt verið háttað. Kveiktu í kynfærunum Hvorugur brotaþola treysti sér til að bera vitni nema sakborningar yrðu látnir víkja úr sal á meðan og var það niðurstaða dómara að svo yrði, þrátt fyrir hörð mótmæli verjenda. Ari var augljóslega mjög stressað­ ur þegar hann kom fyrir dóminn og sagði hvernig málum hefði verið hátt­ að. Hann sagðist hafa verið fluttur að Grýtubakka í Breiðholti þar sem Stefán Logi beið hans. „Stefán Sívarsson bíður úti á bílaplani og er með ógnandi tilburði. Hann var hálftrítilóður. Hann byrjar að spyrja „Er þetta hann?“ og fer að tala um hvað ég sé ófríður og er að reyna að niðurlægja mig,“ sagði Ari meðal annars fyrir dómi. Hann sagði Stefán Loga hafa gefið sér nokkur kjaftshögg en að síðan hafi verið tek­ in ákvörðun um að fara með hann í íbúð í Trönuhrauni í Hafnarfirði þar sem Sívar, faðir Stefáns Loga, bjó. Sakborningarnir bundu Ara á hönd­ um og fótum og fluttu hann upp í Hafnarfjörð þar sem barsmíðarn­ ar héldu áfram. Hann sagði ofbeldið hafa hafist fyrir alvöru þegar Stefán Logi mætti í íbúðina í Trönuhrauni. „Þá fór þetta að vera gróft,“ sagði Ari. Hann sagði sakborningana hafa klætt hann úr að ofan, hellt yfir hann rakspíra og borið eld að. Síðan hafi verið gyrt niður um hann og Stefán Logi gert grín að kynfærum hans. „Síðan tekur hann rakspírann af Stefáni Blackburn, hellir yfir kynfærin og kveikir í. Ég reyndi að snúa mér á magann til að slökkva eldinn og þá byrjuðu þeir að láta höggin dynja á mér.“ Íhuguðu að klippa vörina af Ari sagði Stefán Loga hafa rukkað sig um pening fyrir samskipti sín við barnsmóðurina. „Hann segir að ég skuldi honum fimm milljónir fyrir að hafa sofið hjá henni,“ sagði Ari. Auk þess hafi Stefán Logi drepið í sígarettu á andliti hans og á ákveðnum tímapunkti ákveðið að láta hann gleypa lófafylli af mis­ litum pillum. Auk þess hafi hann skipað Davíð Frey að sprauta hann í rassinn með ónefndu lyfi. Þegar Ari var orðinn alblóðugur var farið með hann í sturtu þar sem Stefán Logi skolaði af honum blóðið en síðan tók Sívar, faðir hans, við þrifunum. Við barsmíðarnar missti Ari fram­ tönn auk þess sem stór skurður kom á vör hans. „Stefán Logi kemur með skæri og setur þau sitt hvoru megin við vör­ ina á mér sem var öll lafandi. Þá heyri ég Davíð segja að hann geti saumað hana.“ Davíð Freyr viðurkenndi fyrir dómi að hafa saumað saman vör Ara. „Það blæddi úr henni og þetta var það eina sem mér datt í hug, enda mjög „lyfjaður“ á því,“ sagði hann, spurður hvers vegna hann hafi gert það, en viðurkenndi að áður hafi verið rætt um önnur úrræði. „Það var eitthvað rætt hvort það ætti að klippa hana af en svo stakk ég upp á því að sauma hana.“ Þegar dómari spurði Davíð Frey hvort hann hefði einhverja kunnáttu í saumaskap af þessu tagi sagðist hann hafa tekið námskeið í skyndihjálp og að saumaskapurinn hafi verið frekar til gagns en ógagns. „Var búinn að sætta mig Við að þetta Væri búið“ „Þetta voru bara eins og venjuleg slagsmál á djamminu n Fórnarlömb lýsa hrottalegum barsmíðum í Stokkseyrarmálinu n Aðalmeðferð hófst á mánudag Hörn Heiðarsdóttir horn@dv.is Einn mættur Davíð Freyr var eini sakborningurinn sem mættur var í dómsal á réttum tíma. Brosir í dómsal Stefán Logi er talinn hafa gefið skipun um árásina. Myndir Sigtryggur Ari Sakborningar Stefán Blackburn, Stefán Logi og Hinrik Geir mættir í dómsal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.