Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2013, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2013, Blaðsíða 23
Helgarblað 13.–16. desember 2013 Fólk Viðtal 23 „Magnað að verða pabbi“ var ég meira að segja búinn að sjá hana á Menningarnótt og spurði vin minn hvaða stúlka þetta væri,“ segir Jón og brosir þegar hann hverfur aftur til fortíðar. „Síðan varð hún mín,“ segir hann. „Ég spila tónlist fyrir Jón Tryggva á hverjum degi þannig að það kæmi mér ekki á óvart að hann fengi áhuga á því,“ svarar Jón aðspurður hvar framtíðaráhugasvið sonarins gæti hugsanlega legið. „Ég fer líka með hann í Kaplakrika oft í viku og hann verður orðinn heimavan­ ur þar. Síðan kennir mamma hans ballett þannig að kannski verður hann bara ballerína.“ Ætlaði að halda samstarfinu leyndu Það vakti mikla athygli þegar það komst í fréttir að Jón hefði undir­ ritað samning við útgáfufyrirtækið Sony í Bandaríkjunum. Frá fregn­ um þess efnis hefur hins vegar minna borið á útgáfu nýs efnis frá söngvaranum. Eina lagið sem hann hefur gefið út á samningstímanum er lagið Feel for You sem kom út fyrir rúmum mánuði. „Ég ætlaði að halda þessu leyndu,“ segir Jón um samstarf sitt við Sony. „Mér tókst það í tvo mánuði en þá komst einhver að þessu. Það var svo sem allt í lagi – það er gaman að fólk viti af þessu því þetta er ágætis viðurkenning. Það hefði kannski verið fínt að halda þessu leyndu því þá væri fólk ekki að spyrja frétta. Ég væri al­ veg til í að kunna svarið við þeirri spurningu.“ Lögin skiluðu sér aldrei En hvers vegna er svo lítið að frétta eftir undirritun samningsins? „Í upphafi árs tókum við upp fullt af hljóðdæmum af nýjum lögum,“ út­ skýrir Jón og heldur áfram. „Við héldum að við hefðum sent það til útgáfufyrirtækisins. Við sendum þau á milliliðinn. Síðan kom það í ljós að lögin skiluðu sér aldrei til Epic. Nú eru lögin hins vegar kom­ in þangað.“ Jón segir að við undirskrift samningsins hafi hann fundið yrir mikilli spennu áður en hann fór að efast um hvort eitthvað gerðist í kjölfarið. Í dag er hann hins vegar afslappaður og segir að hann vonist til að eitthvað gerist. Jón setur ekki önnur áform á ís vegna samnings­ ins heldur lifir lífinu og nýtur sín til fulls. Eðlilega er hann þó farinn að þyrsta í að gefa út nýtt efni. „Sony má ekki vera stelpan sem heldur mér heitum en byrjar aldrei með mér,“ segir Jón. „Það er ekki gott fyrir neinn.“ Æskudraumurinn rættist En hversu mikla löngun hefur Jón til þess að slá í gegn sem tónlistar­ maður á heimsvísu? „Ef þú hefðir spurt mig áður en ég fór að gefa út efni á Íslandi, þegar ég var nýútskrifaður frá Boston, þá hefði ég svarað þér allt öðruvísi,“ segir Jón. „En í dag eftir að hafa spil­ að fyrir Íslendinga og fengið góðar móttökur þá þykir manni ótrúlega vænt um það. Hér eru rætur manns. Í ofanálag hefur tónlistin gefið mér tækifæri í ótrúlega mörgu öðru,“ segir hann og nefnir ritstjórastarf Monitor og fyrirlestra um fjármál og lífið fyrir krakka sem dæmi. „Að geta verið fyrirmynd og deilt minni sýn á lífið með fólkinu er eitthvað sem mig hefur alltaf dreymt um. Æsku­ draumurinn um að tala inn á teikni­ mynd hefur meira að segja ræst!“ Vill gefa út plötu „Ég hef alltaf nóg að gera sem tón­ listarmaður,“ segir Jón. „Fyrsta platan var fínasta nafnspjald. „Halló, ég heiti Jón Jónsson og ég er í tón­ list!“ Síðan þá hef ég upplifað ýmis­ legt. Ég hef sungið inn á plötu með Ragga Bjarna og Bó, samið lag fyr­ ir þann fyrrnefnda, stigið á svið með mörgum stórlöxum í íslenskri tónlist, sungið með Sinfó og ýmislegt meira. Ég hef haldið fallega tónleika, spil­ að á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, á Menningarnótt og spilað fyrir fimm þúsund krakka á Samfés þrjú ár í röð.“ Elsta lagið á plötunni Wait for Fate var samið fyrir átta árum, eða árið 2005, og því hefur Jón spil­ að sum lögin ansi lengi. Hann seg­ ir hins vegar að alltaf sé jafn gam­ an þegar áhorfendur þekki lögin og taki undir á tónleikum. „Við gáfum út All You I um sum­ arið 2012 og það átti að vera næsti „síngúll“ að plötu sem við hefðum gefið út fyrir jólin sama ár,“ útskýrir Jón. „Út af samningnum við Sony þá eiga þeir útgáfurétt á mínu efni. Ég er því ekki alveg minn eigin herra í þessu öllu saman. Gríðarlega mikill léttir var að fá leyfi til að gefa út nýja lagið okkar, Feel for You, því það er alltaf gaman að gefa út nýtt efni. Til að vera alveg heiðarlegur þá hefði það verið óskandi að geta gefið út plötu til að senda þessi börn frá sér.“ Var forvitinn um Steinar Þann 19. desember stígur Jón Jóns­ son á svið í Austurbæ og heldur jólatónleika. Það er orðið töluvert síðan Jón hélt tónleika í fullri lengd og því hlakkar hann til. Uppselt varð á örskotsstund og því var gripið til þess ráðs að halda tvenna tónleika sama kvöld. „Maður veit alveg að maður á ekkert alltaf eftir að geta selt upp á tónleikana sína,“ segir Jón. „Þannig að maður nýtur þess á meðan mað­ ur getur það. Maður verður að halda fólki á tánum.“ Jón hefur fengið nýstirnið Steinar Baldursson til þess að hita upp fyrir sig. Steinar gaf út plötuna Beginning fyrr í vetur og hefur hún notið mik­ illa vinsælda. „Ég var búinn að vera með Up­ lagið á heilanum og var forvitinn að vita meira um þennan strák,“ segir Jón. „Ég var bara mjög feginn þegar hann tók vel í þessa hugmynd. Ég sá hann í Eldhúspartý FM og ég efast ekki um að hann verði flottur þarna. Kannski plata ég hann til þess að koma á æfingu hjá okkur og æfa eitt jólalag,“ bætir hann við brosandi. Greinilega eitthvað í pípunum. Tekur hlutverk sitt sem fyrirmynd alvarlega Framtíðin er sem leir í höndunum á Jóni. Allir vegir virðast honum fær­ ir. Jón, sem hefur þroskast, vill halda áfram í fótbolta og gefa út tónlist. „Fótboltinn hefur alltaf verið það mikil ástríða að ég hef aldrei þor­ að að hætta eða jafnvel hugsa um að hætta,“ útskýrir Jón og heldur áfram. „Þetta er líka það skemmti­ legur félagsskapur og skemmtilegur partur af deginum.“ Eftir að hafa eignast son sinn segist Jón hafa mannast og þroskast. „Maður reynir að vera fyrirmynd sjálfur fyrir ungt fólk og ég held að ég sé enn ákveðnari í því eftir að ég varð pabbi.“ n Nóg að gera Eftirspurn eftir Jóni er mikil, enda vinsæll.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.