Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2013, Blaðsíða 16
Helgarblað 13.–16. desember 201316 Fréttir Erlent
Þeir ríku
verða ríkari
Laun launahæstu forstjóra Sví-
þjóðar héldu áfram að hækka
árið 2012 miðað við árið 2011.
Þetta kom fram í úttekt sem
Dagens Nyheter birti í vikunni.
Launahæsti forstjóri Svíþjóð-
ar árið 2012 var Jan Carlson,
forstjóri Autoliv sem framleiðir
ýmiss konar búnað í bíla, svo sem
loftpúða, bílbelti og annan ör-
yggisbúnað. Laun hans allt árið
námu 46 milljónum sænskra
króna, 830 milljónum króna.
Óhætt er að segja að hann hafi
fengið ríflega launahækkun frá
árinu 2011 þegar laun hans námu
tæplega helmingi þessarar upp-
hæðar. Það sama átti við um þá
forstjóra sem komu næstir á eftir,
laun þeirra hækkuðu í nánast öll-
um tilvikum frá árinu á undan.
Auðmaður
gefur stórfé
Norski auðkýfingurinn Olav
Thon, sem samkvæmt úttekt
Forbes er ríkasti maður Noregs,
hefur ákveðið að gefa 50 millj-
ónir norskra króna á ári, tæp-
lega einn milljarð króna, til
góðra málefna. Sjóður sem
Thon stofnaði á dögunum mun
úthluta peningunum og munu
fjármunirnir að mestu verða
nýttir í rannsóknir í lækna- og
raunvísindum.
Eignir Thon, sem er níræður,
eru metnar á 500 milljarða
króna. Hann er meirihlutaeig-
andi stærsta fasteignafyrirtæk-
is Noregs og er eigandi Thon
Hotels sem er í hópi stærstu
hótelkeðja Noregs.
Sleppt eftir
hálft ár í haldi
Hollensku pari sem var rænt í
Jemen þann 8. júní í sumar hef-
ur verið sleppt úr prísundinni.
Ekkert amaði að Judith Spi-
egel og Boudewijn Berendsen
þegar þeim var sleppt en þau
eru nú komin í öruggt skjól í
Hollandi. Judith sagði við hol-
lenska fjölmiðla áður en þau
lögðu af stað til Hollands að
mannræningjarnir hefðu komið
vel fram við þau. Judith starfaði
sem blaðamaður í höfuðborginni
Sanaa þegar henni var rænt.
Enginn lýsti yfir ábyrgð á mann-
ráninu og ekki liggur fyrir hvort
lausnargjald hafi verið greitt.
H
ollie Toups mun án efa
ekki gleyma þeim degi í
bráð, er hún fann nektar-
myndir af sjálfri sér
á netinu. Hollie var í
vinnunni þegar vinkona hennar
hringdi í hana og sagðist hafa séð
myndir af henni nakinni á vefsíðu.
„Ég fór strax heim og hljóp upp í
herbergi til að fara í tölvuna mína,“
segir hún. Á vefsíðunni Texxxan.
com sá hún svo myndir af sjálfri sér.
Myndirnar höfðu verið teknar af
henni sjálfri handa þáverandandi
kærastanum hennar þegar hún
var 24 ára. En myndirnar voru ekki
aðeins það sem var að finna á síð-
unni heldur nafn hennar, aldur og
það tilgreint að hún byggi í Texas.
Raunar var nákvæmt heimilisfang
hennar tilgreint og fært inn á kort.
Þá var búið að hlekkja á Facebook-
síðu hennar og Twitter. Hún var al-
gjörlega berskjölduð.
Ekki kærastinn
„Ég grét í marga daga,“ seg-
ir Hollie sem er 33 ára. Hún er í
hópi margra fórnarlamba svokall-
aðs hefndarkláms. Hún var hrædd
við að fara út og þegar hún hætti
sér í matvöruverslun voru nokkr-
ir karlmenn sem komu upp að
henni og spurðu hvort þeir hefðu
ekki séð myndir af henni á netinu.
„Fólk dæmir þig og gerir mann
vandræðalegan,“ segir hún. „Þeir
sem áður voru ókunnugir þekkja
mann skyndilega, þeim finnst þeir
gera það og nálgast mann,“ seg-
ir hún. Hún ákvað að taka málin í
sínar hendur og komast að því hver
hefði birt myndirnar. Hún taldi að
það hlyti eiginlega að vera fyrr-
verandi kærasti hennar, þessi sem
fékk myndirnar sendar. En sumar
myndirnar voru teknar eftir að
sambandi þeirra lauk. Hollie vissi
að hún hefði ekki sent neinum þær
og þar með vandaðist málið enn
meira. Algengt er að tölvuhakkarar
sækist eftir slíkum myndum en
Hollie telur að myndunum hafi
verið stolið þegar hún fór með sím-
ann sinn í viðgerð.
Fleiri konur
Í ljós kom að fleiri konur sem
bjuggu í nágrenni við Hollie lentu í
því sama. Afleiðingarnar voru mjög
alvarlegar, ein íhugaði sjálfsvíg og
önnur missti vinnuna. Þá slitnaði
upp úr ástarsamböndum og allar
áttu konurnar mjög erfitt eftir þessa
opinberun. Þegar þær leituðu til
lögreglu eða lögmanna var þeim
tjáð að lítið sem ekkert væri hægt
að gera. Þær hefðu aldrei átt að
taka svona myndir af sér. Það var
svo einn sem benti Hollie á einka-
spæjara og þá fóru hjólin að snúast.
„Það var eins og hann hefði bjarg-
að lífi mínu. Mig langaði mest að
faðma hann,“ segir Hollie. „Hann
var sá fyrsti sem sagði ég get hjálpað
ykkur, við getum lagað þetta,“ segir
hún. Einkaspæjarinn fann hvaða
lög hefðu mögulega verið brotin.
Til dæmis voru nokkrar konurnar
ekki orðnar átján ára þegar mynd-
irnar voru teknar og þar með töld-
ust þær vera barnaklám. Einhverj-
ar höfðu beðið um að myndirnar
yrðu teknar niður af Texxxan.com,
en eigandi síðunnar sagðist að-
eins gera það ef hann fengi greitt
fyrir myndirnar. Þar með var kom-
inn grundvöllur fyrir kæru um fjár-
kúgun. Það flækti málin að auki
talsvert að ekki lá ljóst fyrir hver
bæri ábyrgð á myndbirtingunni, sá
er setti þær á netið eða sá sem átti
síðuna. Rannsókn einkaspæjarans
leiddi í ljós að sá sem átti síðuna
hafði vandað vel til verka til að nafn
hans kæmi hvergi fram – honum
var þó sama þótt nöfn kvennanna
kæmu skilmerkilega fram. Í ljós
kom að þeir sem ráku síðuna
bjuggu aðeins steinsnar frá Hollie
og hún kannaðist persónulega við
annan þeirra.
Höfðuðu mál
Konurnar höfðuðu mál á hendur
eigendum síðunnar og vildu fá bæt-
ur vegna myndbirtinganna. Að auki
hefur þeim tekist að koma í veg fyrir
frekari myndbirtingar eða að mynd-
ir af þeim birtist aftur á sömu síðu
að sinni. Ólíklegt er þó að þeim tak-
ist að halda því til streitu. Þetta snýst
þó ekki um peninga í huga Hollie.
Fyrst og fremst vill hún að mynd-
birtingar sem þessar verði gerðar
ólöglegar og refsiverðar. Í nokkrum
ríkjum í Bandaríkjunum er unnið
að því að gera hefndarklám ólög-
legt. Aðspurð hvort hún myndi haga
hlutunum öðruvísi og sleppa því að
taka af sér nektarmyndir segir Holl-
ie ákveðin nei. „Ég gerði ekkert
rangt og myndi ekki breyta neinu.
Fullt af fólki reyndi að kenna mér
um þetta, en ég er mjög ákveðin í
því að þetta var það ekki,“ segir hún.
Undir þetta tekur Charlotte Laws
sem barist hefur fyrir því að það
verði gert ólöglegt að birta myndir
á þennan hátt. „Fyrir 30 árum tók
fólk „polaroid“-myndir. Ef einhver
myndi brjótast inn til þeirra og
birta myndirnar opinberlega held
ég að það væri enginn sem myndi
kenna þeim um myndbirtinguna,“
segir Charlotte. Hún segir að lögin
eigi eftir að ná tækninni í þessum
efnum. n
Hvað er
hefndarklám
Það er kallað hefndarklám (e. revenge
porn) þegar nektarmyndir af einstak-
lingum eru birtar, án þeirra samþykkis
eða vitundar, á netinu. Það er oftar
en ekki gert í hefndarskyni, til dæmis
þegar slitnar upp úr samböndum. Verði
slíkt bannað með lögum þarf samþykki
þess sem sést á myndinni. Verði slíkt
gert ólöglegt gætu þó saksóknarar
átt í erfiðleikum með að sanna að sá
sem birti myndina hafi viljað særa eða
meiða þann sem er á myndinni og að
sá hafi orðið fyrir skaða. Hægt er að
hagnast mjög á slíkum myndbirtingum
og sá er bar ábyrgð á síðunni Texxan.
com sagðist hafa byggt síðuna upp sem
viðskiptamódel.
„Ég grét í
marga daga“
n Nektarmyndum lekið á netið í hefndarskyni n Vilja banna hefndarklám
„Ég gerði
ekkert
rangt og myndi
ekki breyta neinu
Gerði ekkert rangt Líklega
voru myndirnar teknar af síma
Hollie þegar hann var í viðgerð.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is