Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2013, Blaðsíða 44
44 Fólk Helgarblað 13.–16. desember 2013
1 Kim Kardashian Stjörnurnar gráta líka og það veit tilvonandi
eiginkona Kanye West. Kim Kardashian
hefur margoft grátið í raunveruleika-
þætti fjölskyldu sinnar, ýmist af gleði
eða sorg.
2 Britney Spears Söngkonan vinsæla þekkir
vanlíðan betur en
flestir. Britney hefur
gengið í gegnum
margt á ferli sínum
og sokkið djúpt í
dimman öldudal
þunglyndis. Nokkrum
sinnum hefur hún ekki getað hamið
tilfinningar sínar fyrir augum almenn-
ings – enda engin ástæða til.
3 LeBron James Á vígvelli íþróttanna birtast ýmsar myndir
tilfinninga. Það er ekki alltaf hægt að
bera sigurorð af andstæðingnum og
keppendur taka því
misvel. Körfubolta-
maðurinn LeBron
James grét eins og
ungabarn þegar ljóst
var að lið hans myndi
ekki sigra NBA.
4 Cameron Diaz Ein ást-sælasta leikkona heimsins
viðurkenndi það í
spjallþætti Jay Leno
að hafa brostið í grát
eftir klippingu þegar
skammt var til jóla.
Hárgreiðslumaður-
inn hennar misskildi
beiðni leikkonunnar og
klippti mun meira af hárinu en hún bað
um. Óheppilegt.
5 Barack Obama Bandaríkja-forsetinn vinsæli, Barack Obama,
hefur oftar en ekki verið
tárvotur fyrir augum
almennings. Obama
varð fyrsti forseti
Bandaríkjanna sem
er dökkur á hörund
og er mikil tilfinninga-
vera.
Stjörnurnar
elska jólapeysur
n Hallærisleg jólatíska heillar fræga fólkið
Þ
egar líða fer að jólum vilja sumir klæðast í takt
við hátíðarnar. Tíska sem hingað til hefur þótt
nokkuð hallærisleg hefur verið upp á pallborðið
hjá mörgum undanfarið og virðist fólk keppast
við að klæða sig í jólaleg föt. Stjörnurnar eru þar
engin undantekning og margar hafa látið sjá sig í mis
smekklegum jólapeysum undanfarið.
Jólagleði Taylor
Swift í svartri jólapeysu.
Jóla-Bieber Justin Bieber jólalegur til fara.
Hress Snoop Dog elskar jólin. Krúttlegur Matt Damon er krúttlegur í jólasveinapeysu sinni.
Góður í grænu
Eliah Wood í grænni jólapeysu.
Jólaleg
Hillary kann
vel að meta
jóla jólapeysu.
S
jálfsmynd af þeim Barack
Obama, forseta Bandaríkj-
anna, David Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands,
og Helle Thorning Schmidt, for-
sætisráðherra Danmerkur, vakti
heimsathygli. Myndin, sem tekin
var við minningarathöfn um Nel-
son Mandela, þótti mörgum vera
ósmekkleg og tekin við óviðeig-
andi tilefni og vakti því mikla reiði.
Í raun er þó um að ræða mynd, af
myndatöku eins og sést hér til hlið-
ar. Það var Roberto Schmidt sem
tók myndina og birti á samfélags-
miðlum, en á henni sést fólkið glað-
hlakkalegt að taka myndina. Við hlið
þeirra situr svo forsetafrú Banda-
ríkjanna, Michelle Obama, heldur
þung á brún. Roberto segir gagn-
rýni á myndina byggða á miklum
misskilning. Hann segir að þegar
myndin var tekin hafi Obama ný-
verið búinn að halda ræðu þar sem
hann sagði Mandela einn merkasta
mann mannkynssögunnar. Hann
settist síðan með öðrum ráðamönn-
um, rétt við hlið Davids Cameron.
Schmidt tók þá upp myndavélina
og ákvað að fylgjast með fólkinu.
„Skyndilega tók konan [Thorning
Schmidt, innsk. blm.) upp símann
sinn og tók mynd af sér með Camer-
on og forseta Bandaríkjanna. Ég tók
mynd af þessu,“ segir hann. „Allt
í kring um okkur dönsuðu Suður-
Afríkubúar, sungu og hlógu til að
heiðra minningu leiðtogans sáluga,“
segir Roberto Schmidt.
Hann segir að allir hafi tek-
ið þátt í gleðinni. „Ég frétti síðar að
Michelle Obama liti út fyrir að vera
reið á myndinni. Hún var það ekki
og myndir geta logið,“ segir hann og
segir að stuttu síðar hafi hún verið
hrókur alls fagnaðar. „Það var ekkert
að því að taka sjálfsmynd, hver hefði
ekki gert það í þessum aðstæðum,“
segir Roberto Schmidt. n
astasigrun@dv.is
Ljósmyndarinn Roberto Schmidt kemur ráðafólki til varnar
„Ekkert að því að taka sjálfsmynd“
Sjálfsmyndin Fjölmiðlar voru margir fljótir að birta myndina og töldu margir hana hafa
verið óviðeigandi.
Grátandi
stjörnur
topp 5
Sjálfhverfur
eftir kynlíf
Breska fjölmiðlakonan Lauren
Harries sem hefur áður sagst hafa
sængað hjá Russell Brand hefur nú
talað um hversu sjálfselskur leikar-
inn hafi verið. Lauren, sem er ekki
síst fræg fyrir að vera kynskipt-
ingur, segir að eftir kynlíf þeirra
hafi Russell Brand yfirleitt horft á
myndbrot með sjálfum sér í tölv-
unni sinni.
„Þetta var ekkert sérstaklega
rómantískt,“ sagði Lauren. „Hann
elskaði að horfa á sjálfan sig.“