Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Blaðsíða 20
18*
Búnaðarskýrslur 1957
1. yfirlit. Heyfengur 1941—1957.
Hay production 1941—1957.
Taða (1000 hestar) hay from home fielda (1000 hkg) Úthey (1000 hestar) hay from meadows (1000 hkg)
Ár year 1 1 ■M 3 S o C/) JZ Vestfirðir Western Peninsula Norðurland North Austurland East Suðurland South Allt landið Iceland ! 1 Jvl 3 S o cn ,2 co •h -S | 1| lílií Norðurland North Austurland East Suðurland South Allt landið Iceland
Meðaltal average: 1941—45 357 124 453 137 262 1 333 132 68 277 89 313 879
1946—50 374 139 519 153 377 1 562 89 48 199 45 252 633
1951—55 424 150 684 193 535 1 986 79 47 232 48 216 622
1955 466 180 853 222 605 2 326 41 21 185 40 116 403
1956 518 186 878 246 747 2 575 55 23 144 27 164 413
1957 602 208 976 273 890 2 949 58 21 145 22 139 385
Aukning 1957 frá meðalt. 1941-45,% 68,6 67,7 115,5 99,2 239,7 121,2 -r-56,1 -^69,1 -í-47,7 -í-75,3 -í-55,6 -H56,3
Útheysfengur var minni þessi 3 síðustu ár en nokkru sinni fyrr á þessari öld.
Aðalástæðan er sú, að menn hafa liirt miklu minna um að afla útbeys en áður,
en einnig munu engjar vera teknar að færast saman og spillast. Forn slægjulönd
innan um bithaga eru nú víða vaxin lirísi eða víði eða komin í mosa, en um sumar
flæðiengjar hefur ekki verið liirt síðustu árin, og eru þær fallnar í órækt. Þó mundi
enn vera unnt að afla talsvert miklu meira útheys en fengizt hefur þessi síðustu
3 ár, ef heyskapur væri að nýju sóttur með sama hætti eða svipuðum og var fyrir
síðustu heimsstyrjöld. En nú eru að kalla engar engjar slegnar, nema þar sem
notaðir verða traktorar við sláttinn.
Misjafnt er það eftir landshlutum, hvernig heyöflun hefur breytzt á síðustu
árum, og gefur 1. yfirlit nokkra bugmynd um það. Er þar sýnd meðalheyöflun eftir
landshlutum árin 1941—45, eða áður en breytingar eftirstríðsáranna hefjast, enn
fremur meðalheyöflun áranna 1946—50 og áranna 1951—55, og loks lieyöflun hvers
árs 1955—57.
í fyrri búnaðarskýrslum hefur verið upplýst, live mikill heyfengur hefur komið
á hvern framteljanda, og verður það enn gert hér, fyrir síðustu 8 árin:
Tqöq, Úthey, Samtals,
heBtur heetar hestar
1950 ..................... 236 78 314
1951 ..................... 186 99 285
1952 ..................... 180 89 269
1953 ..................... 253 80 333
1954 ..................... 295 68 363
1955 ..................... 294 50 344
1956 ..................... 327 52 379
1957 ..................... 345 45 390
Það dregur úr samanburðargildi þessara talna, að talsverðar breytingar verða
á því frá ári til árs, hversu vandlega er inn á búnaðarskýrslur sópað þeim fram-
teljendum heyfengs, sem aðeins hafa smáfellda landbúnaðarframleiðslu sem auka-
starf. Einkum á þetta við um kaupstaðina og kauptúnin. Fyrir kemur einnig, að
tala framteljenda í einstökum kaupstöðum eða kauptúnum er áætlun ein.