Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Side 42

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Side 42
40* Búnaðarskýrslur 1957 annarra afurða seldist bæði árin með verði samkvæmt verðlagsgrundvelli næsta árs á undan, 1953 og 1956, en samkvæmt verðlagsgrundvelli þeirra ára hækkuðu brúttótekjur búsins úr 69 350 kr. í 92 044 kr. eða um 25 694 kr., og er það 38,7% hækkun. Það lætur því nærri, að aukning verðmætis landbúnaðarafurðanna frá 1954 til 1957 svari til hækkunar á brúttótekjum bús verðlagsgrundvallar land- búnaðarvara á þessu tímabili. Þessi samanburður er ekki nákvæmur og ýmsum annmörkum bundinn, m. a. sökum þess, hve erfitt er að gera sér grein fyrir, hve mikið af afurðum 1954 seldist á grundvallarverðinu frá 1. sept. 1953 — 31. ágúst 1954 og hve mikið af afurðunum 1957 á grundvallarverðinu 1. sept. 1956 til 31. ág. 1957. 10. Tilkostnaður við framleiðslu landbúnaðarafurða 1957. Expenditure of agricultural producers 1957. í töflum XII A og B á bls. 48—51 er sýndur tilkostnaður við framleiðslu land- búnaðarafurða 1957 eftir sýslum. í 1. dálki töflunnar eru kaupgreiðslur, og um þær er vísað til skýringa við töflu XIII í 11. kafla þessa inngangs. Aðkeyptar fóðurvörur eru hey og kjarnfóður, innlent og útlent. Heykaup voru mjög lítil á árinu. Þau eru ekki talin fram sérstaklega, en ættu að vera jafn mikil og heysala samkvæmt töflu XI, sem er 893 þús. kr. (8 929 hestar, hver reiknaður á 100 kr.). Aðkeypt kjarnfóður nemur samkvæmt þessu 77 216 þús. kr. Gengur það aðallega til nautgripa, sauðfjár og hænsna. Magn kjarnfóðurs er ekki tekið á búnaðarskýrslu, og eru nokkrir annmarkar á að áætla það eftir verðmæti þess. Hins vegar hefur Hagstofan safnað skýrslum um keyptar fóðurvörur eftir öðrum Ieiðum, og samkvæmt þeirri skýrslusöfnun hefur innflutt kjarnfóður og seldur inn- lendur fóðurbætir, að undanskildu fuglafóðri, verið sem hér segir hin síðustu ár: Fiskmjöl Erlent fóður, og 6ÍldarmjöI, tonn tonn 1. júlí 1954—30. júni 1955 ................ 13 446 4 986 „ „ 1955—,, „ 1956 21 581 6 375 „ „ 1956—,, „ 1957 17 498 5 522 „ „ 1957—,, „ 1958 19 602 5 737 Þess ber að gæta, að tölur þessar eru ekki miðaðar við almanaksár og verða því ekki bornar saman við tölur um fóðurkaupin 1957 samkvæmt framtali til búnaðarskýrslu. Ef tekið er meðaltal af fóðurmagni 1956—57 og 1957—58 sam- kvæmt ofangreindu fást 18 550 tonn erlent kjarnfóður og 5 630 tonn innlent kjarn- fóður. Samkvæmt verðlagsgrundvelli haustið 1957 ætti heildarverð þess kjarn- fóðurs að hafa nurnið 55 660 þús. kr. eða 21,5 millj. kr. minna en verðmæti kjarn- fóðurs samkvæmt búnaðarskýrslum. En þar er meðtalið fuglafóður, sem gæti hafa numið 110—120 kr. á fugl að meðaltali eða 11—12 millj. kr. Eftir þessu að dæma er kjarnfóður eitthvað oftahð til búnaðarskýrslu í heild, en ekki verður neitt ákveð- ið um það sagt, hve miklu það hefur numið. Rétt þykir að gera nokkra grein fyrir notkun kjarnfóðurs handa hverri tegund búfjár eftir sýslum 1957, svipað og gert var í Búnaðarskýrslum 1954. Þetta verð- ur að vísu ekki gert með nákvæmni, vegna þess að búin eru ,,blönduð“ flestum búfjártegundum um allt land, og munurinn sá einn, að búfjártegundanna gætir misjafnlega mikið. Notkun kjarnfóðurs handa sauðfé verður helzt séð og fundið í sýslum, þar sem hvorki er mjólkursala né eggjasala svo að teljandi sé. Þar er kúm yfirleitt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.