Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Page 25
Búnaðarskýrsiur 1957
23*
tvískiptar (A: heildartölur, B: bœndur sérstaklega), en tafla VII er óskipt, og er
þar sýnd búpeningseign í heild eftir breppum.
Heimildir til að kanna áreiðanleik fram talinnar búfjáreignar eru að þessu
sinni aðeins forðagæzluskýrslur úr nokkrum hreppum. En á þeim er skipting naut-
gripa á kýr, geldneyti og kálfa svo ruglingsleg, að samanburður verður torveldur.
Þó sýnist helzt sem eittbvað muni skorta á, að nautgripir séu fulltaldir í búnaðar-
skýrslum. Hins vegar virðist auðvelt að gera samanburð á framtali sauðfjárins til
búnaðarskýrslu og forðagæzluskýrslu í 34 hreppum víðs vegar um allt land.
í þessum 34 hreppum voru í árslok 1957 115 083 kindur samkvæmt forðagæzlu-
skýrslu, en 107 079 kindur samkvæmt búnaðarskýrslu. Ætti samkvæmt því að
vanta 7,5% á, að sauðfénaður sé fulltalinn til búnaðarskýrslu þetta ár. Þetta
er meiri munur en kom fram við samanburð á böðunarskýrslum og búnaðarskýrsl-
um 1954, en samkvæmt honum virtist ekki vanta nema 4,5% sauðfjárins á bún-
aðarskýrslu. Ástæðan til þess, að fleira sauðfé kann að bafa skotizt undan við fram-
tal til búnaðarskýrslu 1957 en 1954, getur verið sú, að lengra er liðið frá fjárskipt-
um og því auðveldara að koma við undandrætti. Annars eru það að talsverðu leyti
aðrir hreppar, sem náðust til samanburðar 1957 en 1954.
Það, sem af er þessari öld, befur eign landsmanna af nautgripum, sauðfé og
hrossum samkvæmt búnaðarskýrslum verið í beild sem hér segir:
í fardögum 1901 Nautgripir 25 654 Alls Sauðfé 482 189 Hross 43 199 Á 100 manns Nautgr. Sauðfé Hross 33 614 55
1911 25 982 574 053 43 879 31 671 51
1921 23 733 553 900 49 320 25 582 52
1931 29 379 691 045 47 542 27 633 44
1941 39 778 637 067 57 968 33 523 48
í árslok 1951 43 842 410 894 41 411 30 280 28
1955 45 501 657 572 35 217 29 412 22
1956 47 508 706 291 33 928 29 434 21
1957 49 036 769 777 33 055 29 461 20
Á þessari öld befur tala nautgripa orðið hæst 1957, 49 þús., tala sauðfjár 1957,
770 þús., og tala hrossa 1943, 62 þús. í samanburði við mannfjölda varð tala naut-
gripa hæst 1942, 34 á hverja 100 menn, tala sauðfjár 1913, 729 á hverja 100 menn,
og tala hrossa 1905, 61 á hverja 100 menn.
Tala nautgripa hefur árin 1955—57 verið sem hér segir:
1955 1956 1957 Fjölgun 1957, %
Kýr og kelfdar kvígur 32 210 34 067 35 362 3,8
Geldneyti 1. árs og eldri 7 422 7 285 7 401 1,6
Kálfar 5 869 6 156 6 273 1,9
Nautpeningur alls 45 501 47 508 49 036 3,2
Nautgripum fækkaði verulega árið 1955, en því nær eingöngu á Suður- og
Suðvesturlandi, vegna óþurrkanna þá um sumarið. Árið 1956 fjölgaði nautgripum
aftur rúmlega er nam fækkununni 1955. Árið 1957 fjölgaði nautgripum enn veru-
lega, og voru þeir talsvert fleiri þá í árslok en þeir höfðu nokkru sinni áður verið
taldir bér á landi.
Þessi breyting á tölu nautgripa er talsvert mismunandi eftir landshlutum og
sýslum svo 6em 2., 3., og 4. yfirlit bera með sér. Hefur fjölgun nautgripa verið lang
mest á Suðurlandi síðustu 3 árin, en þess er hins vegar að gæta, að þar fækkaði
nautgripum verulega 1955. Þrátt fyrir fækkunina þá hefur nautgripum fjölgað