Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1959, Qupperneq 26
24*
Búnaðarskýrslur 1957
2. yfirlit. Tala nautgripa í árslok 1951—57, eftir landslilutum.
Number of cattle at thc end of years 1951—57, by regions.
J, 1
1951 1952 1953 1954 1955 1956 1957 c ® Éc! o b -Z.ESS
Suðvesturland South-West 10 762 10 035 10 216 10 328 9 747 10 183 10 634 4-1,2
Vestfirðir Westcrn Peninsula ... 2 549 2 425 2 570 2 693 2 491 2 618 2 626 3,0
Norðurland North 13 173 12 224 13 264 14 141 14 598 14 874 15 421 17,1
Austurland East 3 526 3 548 3 701 3 839 3 671 3 611 3 636 3,1
Suðurland South 13 832 14 724 15 478 16 327 14 994 16 222 16 719 20,9
AIIl landið Iccland 43 842 42 956 45 229 47 328 45 501 47 508 49 036 11,8
þar mest frá 1951, en næstmest hefur þeim fjölgað á Norðurlandi síðan þá. En
þess er aftur að gæta, að þar fækkaði nautgripum árin 1950—52 og var fjölgunin
þar frá 1949 til 1957 aðeins úr 14 526 í 15 421 1957 eða 6,2%.
Tala og skipting sauðfjár í árslok 1955—57 hefur verið sem hér segir:
1955 1956 1957 Fjölgun 1957, %
Ær .................................... 538 288 562 661 617 731 9,8
Hrútar ................................. 11 393 11 639 12 925 11,0
Sauðir.............................. 1 850 1 700 1 691 -4- 0,1
Gemlingar ............................. 106 041 130 291 137 430 5,5
Sauðfé alls 657 572 706 291 769 777 9,0
Breytingin á tölu sauðfjárins þessi ár, og eigi síður hin næstu á undan, hef-
ur verið mjög mismunandi eftir sýslum og landshlutum. Breytingin eftir sýslum
1955—57 sést í 3. og 4. yfirliti, en breytingin eftir landshlutum í 5. yfirliti, og eru
þar árin 1951—54 einnig tekin með. Breytingin eftir sýslum hefur þessi ár verið
mest í Dalasýslu og Strandasýslu, aðallega vegna endurtekinna fjárskipta, er fóru
fram í 6 hreppum Dalasýslu, Laxárdals-, Hvamms-, Fellsstrandar-, Klofnings-,
Skarðs-, og Saurbæjarhreppum — og í tveimur hreppum Strandasýslu, Bæjar-
og Óspakseyrarhreppum. Þessum fjárskiptum var þannig hagað, að haustið 1955
var allt sauðfé fellt í Laxárdalshreppi (nema á 2 bæjum) og Hvammslireppi, en nýr
f járstofn fluttur í þá hreppa liaustið 1956. Það haust var hins vegar allt sauðfé fellt
í vesturhreppum sýslunnar, Fellsstrandar-, Klofnings-, Skarðs- og Saurbæjarhrepp-
um. Einnig var þetta sama haust allt sauðfé fellt í Bæjarhreppi, nema á bæjum
innan við Hrútafjarðarbotn og í hálfum Óspakseyrarhreppi (að sunnanverðu við
Bitru). Haustið 1957 var svo nýr fjárstofn fluttur á allt þetta svæði. Svo margt
nýtt fé af þessum nýja fjárstofni var flutt á fjárskiptasvæðiu, að fjáreigendur höfðu
því nær sömu fjártölu eftir fjárskiptin og fyrir þau, og varð því breytingin á
fjártölunni aðallega meðan á fjárskiptum þessum stóð, þ. e. fækkun fjárins þau ár,
er fjárlaust var í sumum sveitunum, 1955 vegna þess að fjárlaust var í Laxár-
dals- og Hvammsbrcppum í Dalasýslu, 1956 vegna þess að fjárlaust var í Fells-
strandar-, Klofnings-, Skarðs- og Saurbæjarbreppum í Dalasýslu og miklum hluta
Bæjar- og Óspakseyrarhreppa í Strandasýslu. Haustið 1957 var fellt fé vegna mæði