Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Blaðsíða 17
föstudagur 12. september 2008 17Helgarblað SKULDSETT BÖRN FELLA FORELDRA lögfræðiinnheimtu ef skuldarar væru þegar í vanskilum. Borgaðu 250 þúsund eftir fimm daga Ragnheiður hefur nú fengið til- boð um að ef hún greiðir að fullu af- borganir þessa og síðasta árs, sam- tals um 250 þúsund krónur, innan örfárra daga verði lögfræðikostnað- urinn felldur niður. Hún bendir hins vegar á að það sé ekki á hvers manns færi að reiða fram slíkar upphæð- ir nærri fyrirvaralaust á samdráttar- tímum. Þar að auki séu þau að borga af öðrum fimm lánum sonarins. Það allt bætist ofan á venjulega greiðslu- byrði hennar. „Þeir hjá LÍN eru gjörsamlega ósveigjanlegir og að þeir skuli ekki hafa sent rukkun heim áður en þeir senda í lögfræðing er ótrúlegt. Þeir eiga að nota manneskjulegri að- ferðir við að innheimta lán og gefa ábyrgðarmönnunum að minnsta kosti tækifæri á að semja við sjálf- an Lánasjóðinn, áður en hlutirnir versna enn meira.“ Ekki of háar fjárhæðir „Við bjóðum almennt upp á að menn geti samið um og komið láninu í skil með því að gera upp afborganirnar og taka upp lánið þar sem frá var horf- ið,“ segir Steingrímur Ari Ara- son, framkvæmdastjóri LÍN. Hann segir ástæðu þess að bréf hafi borist svo snemma frá lögfræðingi líklegast vera þá að eldri gjalddag- ar lánsins hafi þegar verið í vanskil- um. Steingrímur segir að lögfræði- stofurnar meti yfirleitt greiðslugetu hvers og eins og krefji fólk ekki um of háar fjárhæðir. Hann segir ábyrgð- armenn eiga kost á því að semja við lögmenn um að dreifa greiðsl- unni. Fleiri í sömu stöðu Ásta S. Helgadóttir, forstöðumað- ur hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, segir að í kjölfar þess að farið sé að kreppa að gæti þeim fjölgað sem ekki geta greitt af náms- lánum sín. Hún tekur fram að til séu mörg dæmi þess að fjármál heimila fari á hvolf vegna þess að foreldrar þurfa að borga vegna ábyrgða á lán- um barna sinna. „Við erum ekki farn- ir að merkja það ennþá að fleiri séu í vanskilum en starfsmenn hafa haft á orði að fólk sem var með góðar tekj- ur hafi samband og beri sig illa und- an tekjutengdu afborguninni,“ segir Steingrímur Ari Arason. „Þeir hjá LÍN eru gjörsamlega ósveigjanlegir og að þeir skuli ekki hafa sent rukkun heim áður en þeir senda í lögfræðing er ótrúlegt.“ Fleiri dæmi Ásta s. Helgadóttir hjá ráðgjafarstofu heimilanna segir slíkar sögur algengar, en fólk verði að vita hvað felist í því að gerast ábyrgðarmaður. Ekki of hátt steingrímur ari arason, framkvæmdastjóri LÍN, segir lögfræðistofurnar ganga úr skugga um að mánaðarlegar greiðslur skuldara séu ekki of háar. Lr-heilsukúrinn er að virka. Jákvæð leið til að byggja sig upp. Góð leið til aukinnar orku og meiri vellíðunar og ekki slæmt að aukakílóin hverfa eitt af öðru. Engin örvandi efni. LR - Kúrinn Upplýsingar gefur Dísa í síma 690 2103 og á netfang jonadisa@internet.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.