Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Blaðsíða 2
„Ég hef drauginn Starkað grunaðan um þetta,“ segir Bjarni Harðarson al- þingismaður en hann er sérfræðing- ur í íslenskum álfum, tröllum, draug- um og útilegumönnum. Bjarni gaf út bókina Landið, fólkið og þjóðtrúin árið 2001 og veit því sitthvað um þá sem ekki sjást. Vandræði Sultartangavirkjunar hófust í nóvember í fyrra en þá bilaði annar af tveimur spennum virkjunar- innar en framleiðslan stöðvaðist svo alveg þegar seinni spennirinn bil- aði á aðfangadag. Varahlutur í ann- an spenninn laskaðist síðan í flutn- ingum á þessu ári og loksins þegar Landsvirkjun taldi sig vera búna að gera við einn spenninn brann hann yfir. Hrakfallasagan er lyginni líkust og hafa menn því velt fyrir sér hvort um megi kenna utanaðkomandi öfl- um. Dó á leið til ástkonu „Rétt ofan við Sultartanga er fal- legur steinn í heiðarlandi en þetta er vestan megin við ána. Þessi steinn heitir Starkaðssteinn og þar liggur draugurinn,“ segir Bjarni. „Draugurinn varð til þegar norð- anmaður með þessu nafni var á leið til sinnar heittelskuðu sem bjó í Gnúpverjahreppi. Maðurinn varð úti þarna við steininn og var það mjög dramatískur endir. Hann vitjaði nátt- úrlega ástkonu sinnar eftir að hann var kominn yfir móðuna miklu og hann hefur verið þarna á sveimi síð- an,“ segir Bjarni. Forsvarsmenn Landsvirkjunar reyna nú að komast að orsökum bil- ananna en bæði framleiðendur og hönnuðir spennanna hafa verið kall- aðir til landsins til þess að rannsaka þá. Ekki liggur fyrir á þessari stundu af hverju spennarnir biluðu en ein af hugmyndunum er sú að eldingu hafi lostið í þá með fyrrgreind- um afleiðingum. Ljóst þykir þó að spennarnir eiga að endast er marg- falt lengur en nokkur ár. Draugar með tækjadellu „Draugar eru mjög fiktgjarnir og með tækjadellu og því er hann Stark- aður líklegur,“ segir Bjarni og bætir við að það séu nokkur ár síðan hann heimsótti svæðið. „Ég veit ekki hvort einhver hafi hróflað við steininum eða gert þar eitthvað sem ekki má. Aðalatriðið gagnvart draugum er að umhverfi þeirra og stöðu sé sýnd eðlileg virðing. Annars er lítið um álfa á hálendinu. Þetta eru aðal- lega byggðir trölla og útilegu- manna. Það eru til dæmis útilegumenn í Þjórsárverum sem ákveðin ver draga nafn sitt af eins og Illugaver sem ég hef fulla trú á að séu þar enn,“ segir Bjarni. Bera virðingu fyrir landinu Nú þegar stórframkvæmd- ir á hálendinu og víðar eru dag- legt brauð hljóta menn að velta því fyrir sér hvort ekki sé hægt að semja við þá álfa, drauga eða tröll sem ráða yfir svæð- un- um. Bjarni hefur efasemdir um slíkar sáttaleiðir. „Ég hef alltaf haft efasemdir um þannig tjáskipti að frumkvæði mannanna en held aftur á móti að það sé vel hægt að komast af ef þeim er sýnd tilhlýðileg virðing. Það sem er mikilvægast fyrir Landsvirkjun er að feta sig áfram eftir þeirri slóð sem þeir virðast aðeins hafa gefið lítinn gaum seinni ár. Það er að bera ótta- blandna virðingu fyrir landinu en það eru minni líkur á að þeir lendi í útistöðum við landvættina ef þeir fara varlega og láta helgustu náttúru- perlurnar eiga sig, það er það sem mestu skiptir,“ segir Bjarni Harð- arson. Þetta helst Föstudagur 12. september 20082 Fréttir DV - þessar fréttir bar hæst í vikunni Sandra Björg Ármanns- dóttir, þriggja vikna göm- ul dóttir Ármanns Freys Hjelm og Hildar Óskar Víðisdóttur, bjargaði lífi foreldra sinna þegar hún vaknaði um miðja nótt. Kviknað hafði í út frá þurrkara í íbúðinni og var þvottahúsið orðið fullt af reyk. Enginn reykskynjari var í íbúð- inni og því er það ótrúleg mildi að ungbarnið vaknaði. „Ég get aldrei orðið jafnþakklátur henni og fyrir að hafa bjargað lífi okkar,“ segir pabbi hennar. „Ég hugsa ekki um neitt annað en hvað ég er glaður að hún skyldi hafa vaknað um nóttina,“ segir hann og bætir því við að Sandra Björg hafi sofið afar vel síðustu nætur. þriggja vikna bjargvættur F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins fimmtudagur 11. september 2008 dagblaðið vísir 167. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 Þriggja vikna stúlka vakti foreldra Þegar heimilið logaði: fólk Dorrit með elítunni í london börnin hræDDviðheimsenDi Hun bjargaði lifi okkar fréttir skotum dugðu tvö skot sport forsetafrúin í sebrabuxum á djamminu Þorgerður Katr- ín Gunnars- dóttir fer ekki á Ólympíumót fatlaðra sem stendur nú yfir í Peking. Jóhanna Sigurðardóttir er hins vegar heiðurs- gestur þar. „Mennta- málaráðherra er auðvit- að íþróttamálaráðherra allra og eðlilegt að hún sýni fötluðum íþróttamönnum sömu virðingu og ófötluðum,“ sagði Haukur Gunnarsson, sem vann gullið í 100 metra hlaupi á Ólymp- íumóti fatlaðra í Seúl árið1998, í viðtali við DV. Athygli vakti að Þor- gerður Katrín fór ekki aðeins einu sinni á nýafstaðna Ólympíuleika heldur tvisvar og gaf hún þá skýringu að ekki væri annað en eðlilegt að ráðherra íþróttamála væri viðstaddur jafnstóran viðburð íslenskra íþróttamanna. Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri fjárhags- og afrekssviðs Íþróttasambands fatlaðra, sér ekkert athugavert við að Þorgerður Katrín mæti ekki á mótið. „Við lítum ekki á þetta sem neitt gagnrýnivert. Svona er þetta bara.“ fer ekki til Peking 2 Ágúst Magnússon er nýlega laus úr fangelsi vegna dóms fyrir kyn- ferðisbrot gegn fimm drengjum. Hann er nú á reynslulausn og fór til Uppsala í Svíþjóð þar sem hann stundar nám við biblíuskóla. Ág- úst fékk sérstakt leyfi hjá fangels- ismálayfirvöldum til þess að fá að fara til Svíþjóðar. Fólkið sem hann dvelur hjá í Svíþjóð fékk ekkert að vita um fortíð hans fyrr en fjölmiðlar fréttu af veru Ágústs þar. „Auðvitað er maður ekkert sáttur við þetta,“ segir Ívar Jóhann Halldórsson, faðir Tönju Rósar sem stundar nám við sama biblíuskóla og dæmdi barnaníðingur- inn Ágúst Magnússon. Ívar segir að hann muni ekki sætta sig við að barnaníðingurinn sé með Tönju í bekk og umgangist hana daglega. leynd um glæPi níðings Vilja barnaníðing burt úr bekk dótturinnar Miðvikudagur 10. SepteMber 20086 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is „Auðvitað er maður ekkert sáttur við þetta,“ segir Ívar Jóhann Hall- dórsson, faðir Tönju Rósar sem stundar nám við sama biblíuskóla og dæmdi barnaníðingurinn Ágúst Magnússon. DV greindi frá því í gær að Ágúst hefði ákveðið að setjast á skólabekk í bíblíuskólanum Livets Ord í Uppsölum í Svíþjóð á sama tíma og hann er á reynslulausn vegna kynferðisafbrota. Hann fékk leyfi hjá fangelsismálayfirvöldum til þess en þau neita að tjá sig um mál- ið. Ágúst losnaði nýlega úr fimm ára fangelsisvist eftir kynferðisafbrot gegn sex ungum drengjum. Ívar ótt- ast um dóttur sína ef Ágúst heldur áfram vist í skólanum. Venjulegur nemandi „Hann er eins og hver annar nemandi, nema vandamál hans er bara milli hans og skólastjórans. Nema skólastjórinn hefur samþykkt að þegja yfir þessu sem er ósann- gjarnt gagnvart öllum hinum og ef þú ert að fara að bæta ráð þitt hlýt- urðu náttúrlega að koma fram eins og þú ert klæddur.“ Ívar bendir einnig á að hann ef- ist um að skólastjórinn þekki allan bakgrunn Ágústs. „Einhvern veginn efast maður um að skólastjórinn viti að hann er alræmdur barnaníðing- ur hér á Íslandi þannig að ef Ágúst sjálfur hefur skrifað þetta bréf get- ur maður ímyndað sér að hann hafi sykurhúðað svolítið, að hann ætti kannski við einhver vandamál að glíma og viljað losna við þau eins og flestir einstaklingar en ég efast um að hann viti hversu djúpt mál- ið ristir. Þannig von- ar maður, ef hann hefur gert grein fyrir þessu, að hann taki sönsum og segi honum að fara úr skólanum.“ Staddur á Íslandi Samkvæmt heimildum DV er Ág- úst staddur á Íslandi þessa dagana í einkaerindum en mun halda aftur til Svíþjóðar á næstu dögum. Ágúst býr hjá fjölskyldu með tvö börn sem stunda einnig nám við skólann. Ívar segir að hjónin hafi fyrst frétt af bakgrunni Ágústs eftir að hafa leigt honum. Ívar segir málin munu skýrast á næstu dögum. „Gunnar Wienke, forstöðumaður unglinga- starfsins hjá Veginum, mun hafa samband við þá úti fljótlega og við sjáum svo til hvað gerist í fram- haldi af því.“ Aðspurður um líð- an Tönju Rósar seg- ir Ívar að hún sé áhyggju- full yfir framhaldinu en það sé ekki enn komin nein reynsla á hvernig sé að hafa Ágúst fyrir skólafélaga. Ívar segir að hann muni ekki sætta sig við að barnaníðingur- inn sé með Tönju í bekk og umgangist hana daglega. „Framhaldið er náttúru- lega ekki það að við sættum okkur við þetta. Hann er ekki búinn að fara í meðferð eða neitt, strákurinn. Maður verð- ur ekki bara heilbrigður samdæg- urs þegar maður labbar inn í biblíuskóla,“ segir Ívar áhyggjufullur að lokum. „Maður verður ekki heilbrigður samdæg- urs þegar maður geng- ur inn í biblíuskóla.“ Tanja Rós Ívarsdóttir Ágúst Magnús-son Boði logaSon blaðamaður skrifar bodi@dv.is Ágúst Magnússon dæmdur fyrir að níðast á börnum, en fór með samþykki fangelsisyfirvalda í biblíuskóla í Svíþjóð. Líðan Össurar Péturs Össurar- sonar sem fannst með lífshættulega höfuðáverka á mótum Laugavegs, Skúlagötu og Höfðatúns á laugar- dagsmorgun er óbreytt samkvæmt upplýsingum læknis á gjörgæslu- deild Landspítalans. Honum er hald- ið sofandi í öndunarvél. Lögreglan er engu nær varðandi málið og eng- in vitni hafa gefið sig fram. Sigur- björn Víðir Eggertsson rannsóknar- lögreglumaður segir ekkert sérstakt benda til þess að ráðist hafi verið á Össur, áverkinn geti allt eins hafa orðið til vegna falls. Hann tekur fram að málið sé algjörlega óupplýst og að án vitna geti svo farið að málið verði það áfram. Vinir og vandamenn Öss- urar hafa sett af stað „styrktarsíðu Össa okkar“ á Facebook þar sem þeir óska vini sínum bata. Vinir Össurar sem DV hafði sam- band við hafa enga hugmynd um hvað gæti hafa gerst. „Ég er æsku- vinkona hans en ég veit ekki neitt frekar en aðrir,“ segir Ásta Soffía Ást- þórsdóttir en hún er ein af þeim sem hefur skrifað heillakveðjur á Face- book-síðuna. Hún segir Össur al- mennt hressan, skemmtilegan og glaðan mann. Engilráð Ósk Einarsdóttir tekur í sama streng og Ásta: „Hann er einn af lífsglöðustu mönnum sem ég hef hitt á minni ævi, ótrúlega frábær og góður strákur.“ Fleiri vinir leggja orð í belg á síðunni, til dæmis hann Hjalti sem segist hlakka til þess að sjá Öss- ur þegar hann vaknar aftur. Ingibjörg vinkona hans segir: „Elsku Össi, ég veit þú munt koma út úr þessu heill og hressari en nokkru sinni fyrr. En þangað til þá ert þú í bænum mínum og svo margra annarra. Ég sendi þér batnaðar- og baráttukveðjur.“ jonbjarki@dv.is Vinir Ö sur r harmi sle nir glaður maður vinir Össurar sem dv talaði við eru sammála um það að þar fari einn af lífsglöðustu mönnum sem þeir þekkja. Áreitti sex ára barn Karl á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 23. september. Hann er grunaður um að hafa áreitt barn kynferðislega í miðborg- inni. Maðurinn er grunaður um að hafa brotist inn í íbúð í miðborg Reykjavíkur aðfara- nótt laugardags þar sem kona var sofandi með sex ára gömlu stúlkubarni. Konan vaknaði við umgang mannsins en hann flúði af vettvangi um leið og hún varð hans vör. Stóð föst á sínu Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra sagðist á þingi í gær verja þá ákvörðun sína að hafa farið tvær ferðir til Kína. Jón Magn- ússon þingmaður Frjálslynda flokksins sagði augljóst að ferð hennar hefði ekki verið rædd í ríkisstjórn. Þorgerður sakaði Jón um að fara með rangt mál. Hún sagði þetta vera mikilvægasta viðburð íþróttasög- unnar og því hefði hún sem íþrótta- málaráðherra ákveðið að fara utan aftur. Þá upplýsti hún að ferðin hefði kostað 1,8 milljónir króna. Áhyggjur af Ögmundi „Ég hef áhyggjur af manni sem eyðir tíma sínum í að falsa ljósmyndir og setja á vefinn,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráð- herra um samsetta mynd af honum og Gaddafi á heima- síðu Ögmundar Jónasonar, þingmanns vinstri-grænna. Ögmundur sagði í færslu sem fylgdi samsettu myndinni að Guðlaugur Þór og Moamm- ar Gaddafi Líbíuleiðtogi ættu það sameiginlegt að þurfa ekki að færa djúp rök fyrir afstöðu sinni þegar ráðist er í grundvallarbreytingar á sam- félaginu. Í bítið á Bylgunni í gær sagði Ögmundur að um væri að ræða pólitíska list. Hann sagði að allir þeir sem hefðu vott af skopskyni og húmor hefðu tekið þessu vel. 3 Sultartangavirkjun er óstarfhæf eftir röð bilana í báðum spennum hennar. Hrakfallasaga virkjunarinnar er lyginni líkust en forsvarsmenn Landsvirkjunar búast ekki við að ná henni í gang fyrr en eftir áramót. Bjarni Harðarson alþingismaður seg- ir drauginn Starkað ganga um svæðið og að friðarumleitanir við hann felist í virðingu fyrir umhverfinu. hitt málið DRAUGUR HERJAR Á SULTARTANGA Heilsu- átak dr. Gillian McKeith Mataræði sem veitir þér vellíðan allt til æviloka H eilsuátak dr. G illian M cK eith HÓLAR Bók sem hefur bætt líðan margra. Fæst í bókabúðum. þriðjudagur 9. september 20082 Fréttir ÞORGERÐUR SNIÐGENGUR FATLAÐA „Menntamálaráðherra er auðvitað íþróttamálaráðherra allra og eðli- legt að hún sýni fötluðum íþrótta- mönnum sömu virðingu og ófötluð- um,“ segir Haukur Gunnarsson sem vann gullið í 100 metra hlaupi á Ól- ympíumóti fatlaðra í Seúl árið1998. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fer ekki á Ól- ympíumót fatlaðra sem stendur nú yfir í Peking. Jóhanna Sigurðardótt- ir félagsmálaráðherra er hins vegar heiðursgestur á leikunum. Virðingarvert að mæta Þegar blaðamaður hafði sam- band við menntamálaráðuneyt- ið og spurðist fyrir um hvort Þorgerður Katrín hygðist fara á Ólympíumót fatlaðra fengust þær upplýsingar að sú hefð hefði skapast að mennta- málaráðherra fer fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleik- ana en félagsmálaráðherra sækir heim Ólympíumót fatlaðra sem haldið er skömmu síðar. Haukur segist afar þakklátur Jó- hönnu fyrir að sýna fötluðu íþrótta- fólki stuðning. „Hún sýnir þá virð- ingu að mæta á svæðið og við metum það. En það truflar íþrótta- fólkið ekkert að menntamálaráð- herra er ekki með. Það er bara hennar höfuðverkur.“ Hann bendir á að málefni fatlaðra heyri undir fé- lagsmálaráðuneytið. Erla Hlynsdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Jóhanna sigurðardóttir Minni virðing Haukur gunnarsson ólympíumethafi segir fatlaða íþróttamenn oft þurfa að leggja enn meira á sig en ófatlaði r. afrek þeirra fá hins vegar minni athygli. Mynd HEiða HElGadóttir Gullmedalíuhafarnir koma heim jóhanna sigurðardóttir var einnig félagsmálaráðhe rra árið 1988. Hún var á meðal þeirra sem tóku á móti íþ róttamönnun- um eftir frægðarförina til seúl. Á myndinn i með henni og Hauki er Lilja m. snorradóttir sundkona sem fékk eitt gull og tvö brons á leikunum eins og Hauk ur. „Það truflar íþróttafólkið ekkert að menntamálaráðherra er ekki með. Það er bara hennar höfuðverkur.“ Fulltrúar Íslands á ÓlympÍumÓti Fatlaðra Í peking Baldur Ævar Baldursson, langstökk Eyþór Þrastarson, sund Jón Oddur Halldórsson, frjálsar íþróttir/spr etthlaup Sonja Sigurðardóttir, sund Þorsteinn Magnús Sölvason, lyftingar ÞriðJudagur 9. SEptEMBEr 2008 3 Fréttir FATLAÐA meiri vinna fyrir fatlaða Athygli vakti að Þorgerður Katr- ín fór ekki aðeins einu sinni á nýaf- staðna ólympíuleika heldur tvisv- ar og gaf hún þá skýringu að ekki væri annað en eðlilegt að ráðherra íþróttamála væri viðstaddur jafn- stóran viðburð íslenskra íþrótta- manna. Þegar kemur að fötluðum íþróttamönnum er Þorgerður hins vegar fjarri góðu gamni. Eins og sést glögglega á árangri Hauks eru þess dæmi að Íslendingar nái á verð- launapall á þeim leikum. Minna er hins vegar gert úr árangri þeirra fötl- uðu. „Við þurfum oft að leggja okk- ur miklu meira fram en þeir sem eru ófatlaðir,“ segir Haukur. kvarta ekkert Ólafur Magnússon, fram- kvæmdastjóri fjárhags- og afreks- sviðs Íþróttasambands fatlaðra, sér ekkert athugavert við að Þorgerður Katrín mæti ekki á mótið. „Við lítum ekki á þetta sem neitt gagnrýnivert. Svona er þetta bara.“ Hann segir að vissulega væri gaman ef hún kæmi. „Við erum hins vegar mjög ánægð með að einhver af ráðherrum ríkis- stjórnarinnar vilji vera með okkur. Við erum alsæl með að félagsmála- ráðherrann mætir,“ segir Ólafur. Hann bendir á að mennta- málaráðuneytið hafi alltaf verið einn stærsti stuðnings- aðili Íþróttasambands fatl- aðra. „Við erum ekkert að kvarta.“ Ólafur seg- ir sambandið aldrei hafa gagnrýnt fjarveru menntamálaráð- herra á mótinu og ekki hafi kom- ið upp sú hug- mynd að óska nærveru hans. góður árangur Íslenskir keppendur á Ólymp íu- móti fatlaðra hafa náð mjög góðum árang ri. Á leikunum í Sydney árið 2000 fékk Kristín r ós Hákonardóttir gullverðlaun fyrir sund. mynd steFán karlsson situr heima Þorgerður Katrín gunnarsdóttir ætlar ekki á Ólympíumót fatlaðra en fimm íþróttamenn keppa þar fyrir Íslands hönd. mynd sigtryggur ari Atli Már GylfAson blaðamaður skrifar: atli@dv.is „Draugar eru mjög fikt- gjarnir og með tækja- dellu og því er hann Starkaður líklegur.“ Bjarni Harðarson alþingismaður- inn veit allt um vætti landsins. Það er draugurinn starkaður sem herjar á sultartanga að hans mati. sultartangavirkjun Hefur ekki unn- ið á fullum afköstum frá því í fyrra og nú er allt stopp. Virkjunin fer ekki í gang aftur fyrr en eftir áramót.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.