Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Blaðsíða 40
Föstudagur 12. september 200840 Helgarblað DV umsjón: kolbrún pálína helgadóttir kobrun@dv.is Nýtum beriN Fyrir ykkur sem eruð búin að sulta þetta haustið og eigið nokkur ber afgangs gæti verið gaman að gera gómsætan eftirrétt eða böku úr berjunum. Þessi dýrindis aðalbláberjaostakaka ætti að gleðja bragðlaukana. aðalbláberjaostakaka botn: n 230 gr hafrakex n 100 gr smjör n 1 tsk. sykur Fylling: n 500 gr rjómaostur n 50 gr sykur n 350 gr aðalbláber n 1½ dl rjómi n 5 stk. matarlímsblöð oFan á kökuna: n 2 dl rjómi n 1 stk. eggjahvíta n 1 msk. flórsykur aðFerð: n myljið kexið vel niður, bræðið smjörið og blandið saman við ásamt sykrinum. Þrýstið í botninn á forminu, kælið. n osturinn er unninn mjúkur með sykrinum, rjóminn er þeyttur og blandað saman við rjómaostinn. n leysið upp matarlímið og blandið saman við og að síðustu er berjunum blandað út í. einnig er hægt að nota önnur ber, svo sem bláber og krækiber. n Þeytið rjómann, þeytið saman hvíturnar ásamt sykrinum, blandið þessu saman, smyrjið yfir kökuna og kælið. n blandið rjómanum og eggjahvít- unni saman og smyrjið yfir ostafyllinguna. & ínMatur Fylltar kartöflur kjúklingaFylling n 4 stórar kartöflur hitið ofninn í 200°C. pikkið kartöflur allt um kring með gaffli eða prjón. bakið í 1-1 ½ klst. eftir stærð. kjúklingaFylling: n 300-400 g steikt kjúklingakjöt (gott er að nota steikta afganga eða skera utan af heilum lærum) n 3 dl mexíkóskt tómatsalsa n 1-2 tsk. gott krydd, t.d. Fiesta de mexico n 150 g ostur, rifinn n hitið ofninn í 200°C. skerið bakaðar kartöflur í tvennt og skafið smávegis innan úr þeim. setjið maukið í skál. blandið kjúklingi, tómatsalsa og kryddi saman við og skiptið fyllingunni niður á kartöflurnar. stráið osti yfir og bakið þar til fyllingin er orðin heit í gegn og osturinn bráðnaður. osta- og skinkuFylling: n 50 g smjör n 250 g hvítmygluostur, saxaður n 150 g skinka í bitum n 2 tsk. grófkorna sinnep eða dijon-sinnep n 1 egg n 100 g rifinn ostur n hitið ofninn í 180°C. skerið bakaðar kartöflur í tvennt, skafið innan úr þeim og raðið þeim í ofnfast fat. setjið maukið í skál og blandið smjöri, hvítmygluosti, skinku, sinnepi og eggi saman við. Fyllið kartöflurnar með blöndunni, stráið osti yfir og bakið í 10-15 mínútur. græn Fylling: n 200 g blöðrukál (savoy-kál), frekar smátt skorið n 8-10 stilkar vorlaukur n 3 msk. olía n 400 g frosnar, grænar baunir, þýddar n salt og pipar n 100 g fetaostur n hitið ofninn í 200°C. skerið bakaðar kartöflur í tvennt, skafið innan úr þeim og raðið þeim í ofnfast mót. setjið maukið í skál. steikið kál og vorlauk í olíu og bætið baunum út í. setjið kálblönd- una út í kartöflumaukið og blandið vel saman, kryddið með salti og pipar. Fyllið kartöflurnar með blöndunni. stráið fetaosti ofan á og bakið í 10-15 mínútur. Lasagne Magnificento Ég sé nú ekki vanalega um eldamennskuna á mínu heimili vegna þess að maður æfir öll virk kvöld vikunnar og þá sér eig- inkona mín Dröfn Jónasdóttir um eldamennskuna en þá hjálpa ég frekar til um helgar og þau kvöld sem ég er ekki á æfingu sem er þó sjaldan. Þá er nú oftast sem ég grilla eða sé um einhverj- ar stórar steikur en ég ætla nú samt að deila með ykkur þessari uppskrift vegna þess að hún er svo góð. n 3 msk. ólífuolía n 4 hvítlauksgeirar saxaðir n 500 g nautahakk n 2 tsk. múskat n ½ nautakraftsteningur n 3 msk. tómatmauk n 2 dósir niðursoðnir tómatar handfylli af söxuðum basillaufum n 300 g kotasæla n maldon salt / nýmalaður pipar hitið olíuna í potti og steikið hvítlaukinn og hakkið. kryddið með múskati, bætið tómatmauki og tómötum, basil, kotasælunni og kraftinum við og látið malla í 30 til 40 mín n ½ til 1 pakki af lasagne-plötum n 2 mozzarellaostakúlur sneiddar n 300 g parmesanostur rifinn sósa n 400 g sýrður rjómi n 300 g parmesanostur n 1 kjúklingateningur hitið ofninn í 200 gráður setjið 1/3 af kjötsósunni í botninn á eldföstu móti og raðið mozzarellasneiðum á víð og dreif ofan á, stráið parmesan yfir og leggið lasagne-plötur ofan á, hellið 1/3 af ljósu sósunni yfir. endurtakið þar til hráefni er búið og endið á að dreifa mozzarella- og parmesanosti yfir. eldið í ofni í 40 til 50 mín. borið fram með salati og hvítlauksbrauði og góðu rauðvíni, til dæmis góðum ítala eða peter lehmann Wild Card, klikkar ekki. Að lokum verð ég að skora á Fríðu Hrönn Elmarsdóttur þar sem ég skora á hverju kvöldi hjá Magnúsi Gunnari, markmanni og eiginmanni hennar. Og veit ég af eigin raun að hún er snilldarkokkur og lumar á góðri uppskrift. M atg æð ing ur inn Góð ráð í Vikunni í nýútkomnu tímariti Vikunnar má finna sextíu og þrjár girnilegar uppskriftir úr danska kúrnum. danski kúrinn hefur slegið rækilega í gegn hér á landi sem og annars staðar og hjálpað mörgum að ná tökum á þyngdinni. auk upp- skriftanna gefur Vikan einnig góð ráð að breyttum og hollari matarvenjum. hönnuður: sigríður bragadóttir ljósmyndari: kristinn magnússon í boði Gestgjafans Kartöflur eru ódýrar og mett- andi. Bakaðar og fylltar með góm- sætri fyllingu eru þær herra- mannsmatur. Það er um að gera að nota ímyndunaraflið og nýta af- ganga sem fyllingu en hér koma nokkrar tillögur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.