Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Blaðsíða 44
Föstudagur 12. september 200844 Helgarblað DV Sakamál SýrubaðSmorðin John george Haigh fékk viðurnefnið „sýrubaðsmorðinginn“. Hann var enskur raðmorðingi upp úr miðri síðustu öld. Hann staðhæfði að hann hefði drukkið blóð úr einu fórnarlamba sinna og var í kjölfarið kallaður „blóðsugumorðinginn“ í dag- blöðum. Haigh myrti sex manns sem vitað er um. Hvati ódæða hans var upp að vissu marki peningagræðgi, og hann falsaði pappíra með það fyrir augum að selja eigur fórnarlambanna. Lesið um sýrubaðsmorðingjann í næsta helgarblaði dV. umsJón: KoLbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is EITURDROTTNINGIN Samviska var ekki eitt af því sem Lydía Sherman burðaðist með í farteskinu. Til að losna við basl sem fylg- ir barnastússi losaði hún sig við vandamálin eitt af öðru. Óhætt er að segja að þeim sem ekki voru henni að skapi varð ekki auðið langra lífdaga eftir að hafa kynnst henni. Lydía Sherman fæddist í Burl- ington í Bandaríkjunum 1824. Hún varð munaðarlaus níu ára að aldri og ólst upp hjá frænda sínum. Sextán ára yfirgaf Lyd- ía Burlington og flutti til New Brunswick í New Jersey og kynnt- ist þar sínum fyrsta eiginmanni, ekklinum Edward Struck, og áttu þau sex börn. Hjónakornin fluttu með barnaskarann til Manhattan- eyjar þar sem Struck gekk í rað- ir lögreglunnar. Segir ekki meira af hjónunum næstu átján árin, en þá var eiginmaðurinn rekinn úr lögreglunni vegna hugleysis og áður en langt um leið lagðist hann í þunglyndi og breyttist úr fyrrverandi lögreglumanni í at- vinnulausa fyllibyttu. Þess var ekki langt að bíða að Lydíu yrði nóg boðið og kvöld eitt dröslaði hún honum drukknum í rúmið og mataði hann á hafraseyði og rottueitri. Skammturinn var ban- vænn og eitthvað fannst lækn- inum dauðinn grunsamlegur, en skellti skuldinni á óhóflega neyslu áfengis. Engu að síður tók hann þá ákvörðun að óska eftir opinberri rannsókn. Læknirinn hafði ekki erindi sem erfiði því Lydía hafði séð til þess að jarð- arförin færi strax fram og yfir- völd sáu ekki ástæðu til að ónáða hana í sorg sinni. Hálf tylft barna of mikið Lydía komst þó fljótt að þeirri niðurstöðu að það yrði ærið verk að sjá um hálfa tylft barna. Skyndilega varð engu líkara en hún sæi rottu í hverju horni. Það var í það minnsta það sem hún sagði í lyfjabúðinni í nágrenninu þar sem hún keypti rottueitur. Eitt af öðru féllu börn henn- ar í valinn. Á einum degi kom Lydía þremur barna sinna fyrir kattarnef; ungbarninu William, Edward, fjögurra ára, og Mörthu Ann, sex ára. Í hverju tilfelli kall- aði hún til mismunandi lækna, sem allir tóku orð hennar, um dánarorsök barnanna, trúanleg. Þegar hinn fjórtán ára George veiktist setti Lydía arsenik í teið hans og kláraði það sem veik- indin hefðu ekki getað. Hið sama gerði hún við Önnu Elísu, tólf ára, þegar hún fékk kvef og háan hita einn kaldan vetur. Síðust til að deyja var Lydía, yngsta barn- ið sem var skírð í höfuð móður sinnar, og eftir var ekki neinn. Reyndar grunaði fyrrverandi mág Lydíu, að ekki væri allt með felldu í ranni hennar. En þrátt fyrir ítrekaðar kröfur um að líkin yrðu grafin upp, hafði skrifræðið sigur og ekkert var að gert. ný atvinna, nýir eiginmenn, fleiri börn Lydía var frelsinu fegin og skipti ótt og títt um vinnu. 1868 kynntist hún, og giftist, öldruð- um, ríkum ekkjumanni, Dennis Hurlbut. Þar sem skammturinn af rottueitri kostaði aðeins tíu sent, heyrði Hurlbut brátt sög- unni til. Lydíu var því frjálst að giftast Nelson Sherman, sem tók hana með sér til Connecticut þar sem hann bjó. Ekki var allt eins og Lydía hefði kosið á því heimili, því auk fjögurra barna Nelsons frá fyrra hjónabandi var á heim- ilinu tortryggin tengdamóðir. Lydía beið ekki boðanna og losaði sig við tvö barnanna án tafar. Dauði þeirra var reiðar- slag fyrir Nelson, og sérstaklega syrgði hann fjórtán ára dóttur sína, Addý. Nelson sneri sér að áfengi, bugaður af sorg, og með því undirritaði hann sinn eigin dauðadóm. „Ég vildi bara lækna hann af drykkjusýkinni,“ sagði Lydía, eftir að læknar höfðu rannsakað lifur og magainnihald eiginmannsins sáluga. Eiturefnasérfræðingar fundu nóg arsenik til að leggja heilan her að velli. Hið sama kom í ljós þegar líkamsleifar barnanna tveggja voru rannsakaðar. myrti af mannúðarástæðum Lydía staðhæfði fullum fetum að hún hefði haft líkn að leiðar- ljósi þegar hún hjálpaði fólkinu yfir móðuna miklu: „Fólkið var, þegar allt kemur til alls, fárveikt.“ Klædd samkvæmt nýjustu tísku hafði Lydía heilmikil áhrif á þá sem voru viðstaddir réttar- höldin yfir henni í New Haven í Connecticut. Og lánið lék við hana því dómarinn ákvað að fara mildum höndum um konuna sem enga mildi hafði sýnt öðr- um. Park dómari beindi þeim tilmælum til kviðdómenda að íhuga morð af annarri gráðu. Sú varð raunin og Lydía var dæmd til lífstíðar í fangelsi, en sór þess eið að hún myndi ekki bera beinin á bak við lás og slá. Lydía Sherman skildi við innan veggja fangelsisins árið 1878. Hún hafði að minnsta kosti fjörutíu og tvö mannslíf á samviskunni, en hvort hún iðraðist nokkurn tím- ann fylgir ekki sögunni. Á einum degi kom Lydía þremur barna sinna fyrir kattarnef; ungbarninu William, Edward, fjögurra ára, og Mörthu Ann, sex ára. Eiturbyrlarinn Lydía gæti auðveld- lega talist einn mest harðbrjósta morðingi bandaríkjanna á 19. öld. Lydía Sherman byrlaði sínum nánustu eitur ef þeir voru henni fjötur um fót.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.