Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Blaðsíða 8
föstudagur 31. október 20088 Fréttir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, man ekki eftir neinu öðru tilviki þess efnis að tilkynnt hluta- fjárkaup innherja hafi gengið til baka fyrr en kom að 184 milljóna króna hlutafjárkaupum Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Glitnis. Kristinn Arnar Stefánsson, regluvörður hjá Glitni, segir að viðskipti Birnu hafi einungis verið skráð í fréttakerfi. Þórður staðfestir að þau hafi verið skráð í viðskiptakerfi Kauphallarinnar. GLITNI BEITT Í ÞÁGU BIRNU Sjö milljón hlutir Birnu Einarsdótt- ur, bankastjóra Nýja Glitnis, í gamla Glitni eru ennþá skráðir til bók- ar í Kauphöll Íslands. Þetta stað- festir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, í samtali við DV. Þeir voru keyptir fyrir 184 milljónir 29. mars 2007 þegar hún var fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis á Íslandi. Hlutirnir voru aldrei afskráðir úr Kauphöllinni. Þórður segir nauðsynlegt að slík viðskipti séu afskráð í Kauphöllinni um leið og ákvörðun um það sé tekin. Kristinn Arnar Stefánsson, reglu- vörður hjá Glitni, segir bréfin ein- ungis hafa verið skráð inn í fréttakerfi Kauphallarinnar en ekki viðskipta- kerfi en það geti hver sem er gert. Þess vegna hafi ekki verið um raun- veruleg viðskipti að ræða. Þórður seg- ir hins vegar að ekki sé hægt að halda því fram að upplýsingar til markað- arins hafi ekkert gildi. Tilkynning um kaup Birnu hafi borist Kauphöllinni og aldrei verið dregin til baka. Þórður staðfestir einnig að kaupin hafi farið inn í viðskiptakerfi Kauphallarinnar. Þurfti leiðréttingu strax „Það er ekki hægt að halda því fram að upplýsingar til markaðarins hafi ekkert gildi. Vegna þess að mark- aðurinn gerir ráð fyrir að þau hafi átt sér stað. Það þarf að senda inn leið- réttingu strax þegar breyting verð- ur,“ segir Þórður Friðjónsson, for- stjóri Kauphallarinnar. Hann segir það nauðsynlegt að markaðurinn fái réttar upplýsingar. „Það þarf að vera upphaf og endir á viðskipta- sögu,“ seg- ir Þórður og segir til- kynningaskyldu ríkja ef viðskipti ganga einhverra hluta vegna til baka. Hann segist þó ekki muna eftir dæmum þess að viðskipti hafi gengið til baka. „Venjulega eru viðskipti til- kynnt inn og svo er selt seinna,“ segir hann. Þórður segir ástæðuna fyrir því að innherjaviðskipti séu tilkynnt inn í Kauphöllina vera þá að þau hafi upp- lýsingagildi fyrir markaðinn. „Þess vegna er gefin út tilkynning og þess vegna þarf að sjálfsögðu að tilkynna það aftur af markaði,“ segir Þórður. Viðskiptin áttu sér stað „Það á ekki að vera hægt að týna viðskiptum,“ segir Þórður og tekur fram að um leið og viðskipti séu til- kynnt til Kauphallarinnar hafi þau átt sér stað. Kristinn Arnar Stefánsson, regluvörður hjá Glitni, segir að búið sé að viðurkenna það að mistök hafi verið gerð hjá Glitni þegar leiðrétt- ing á fréttatilkynningu hafi ekki ver- ið send til Kauphallar. Hann segir að viðskipti Birnu hafi ekki átt sér stað vegna þeirra mistaka sem urðu. „Þetta er samt mjög skýrt, frétta- kerfi er ekki það sama og skráning í Kauphöll, og þessi viðskipti voru bara skráð í fréttakerfi,“ segir Kristinn og tekur fram að viðskiptin hafi far- ið inn í fréttakerfi Kauphallar en ekki inn í viðskiptakerfið sjálft. Þórður segist hins vegar ekki átta sig á slíkum útskýringum. „Þetta er bara rangt, það var búið að upplýsa markaðinn um það að þessi viðskipti hefðu átt sér stað, ef þau hefðu ekki átt sér stað væru þau ekki skráð inn á markaðinn,“ segir hann og bætir við að menn geti ekki bara sent hvaða upplýsingar sem er inn í Kauphöll Ís- lands. Allt sem þar er skráð sé raun- veruleg viðskipti. Viðskiptin aldrei í gegn Már Másson, upplýsingafulltrúi Glitnis, segir að viðskiptin hafi aldrei átt sér stað. „Þessi hlutabréf voru aldrei á þessari kennitölu. Viðskiptin áttu sér ekki stað, sem þýðir að við- skiptin fóru ekki í gegn,“ segir hann. Hann segir að mistökum sé um að kenna í þessu máli. Viðskiptin hafi ekki gengið í gegn vegna formgalla í samningum. Hin mistökin hafi ver- ið þau að tilkynna ekki til Kauphall- ar um það að viðskiptin hefðu ekki átt sér stað. „Það er algjörlega klárt af okkar hálfu, að þó að viðskiptin séu skráð í Kauphöllina fóru þau aldrei í gegn,“ segir Már. Hann segir það ekki vera álitamál að Birna hafi aldrei tekið á sig þessa skuldbindingu. Vilhjálm- ur Bjarnason, aðjúnkt í hagfræði við Háskóla Íslands, sagði við DV í gær að um leið og viðskipti hafi verið til- kynnt til Kauphallarinnari taki menn á sig þær skuldbindingar sem þeim fylgja. Hann gefur lítið fyrir útskýring- ar Más um formgalla og mistök; „Már Másson er nú ekki merkur maður eft- ir viðtalið í Noregi,“ segir Vilhjálmur. Hann vísar þar til viðtals við Má sem birtist á NRK, norska ríkissjónvarp- inu. Þar stamaði Már og hikstaði þeg- ar hann var spurður út í kaup og kjör stjórnenda bankans. Áhættufjárfesting án áhættu Vilhjálmur segir ljóst að í þessu máli hafi Birna verið að kaupa á sérkjörum vegna stöðu sinnar inn- an bankans. Hann segir þetta vera hluta af mun stærra máli. Hann spyr hvort hér ekki sé ekki um að ræða áhættufjárfestingar í hluta- félögum. „Hvaða áhættu eru menn að taka ef þeir geta stokkið úr slík- um vagni? Af hverju er Róbert Wess- mann svona rólegur yfir 5 milljarða viðskiptum? Kynni það að vera vegna þess að hann fékk lán fyrir öllu sam- an í formi hlutafélags og ef hlutafé- lagið fer á hausinn tapar hann ekki nema 100 þúsund krónum? Hann varðar ekkert um hitt og lánveitand- inn tapar,“ segir Vilhjálmur. Birna sagði í viðtali við Stöð 2 í vikunni að kaupin hafi ekki gengið í gegn vegna mannlegra mistaka. Það hafi þurft að senda pappíra fram og til baka og það endað þannig að við- skiptin hafi ekki gengið í gegn. Vil- hjálmur sagði hins vegar þetta í DV í gær: „Þessu hefur bara verið kippt út og því hefur bara verið kanselað. Það er alveg ljóst.“ Hlutafélagalög Í 77. grein hlutafélagalaga segir orðrétt; „ef sá sem kemur fram fyrir hönd félags [...] gerir löggerning fyr- ir hönd þess bindur sá gerningur fé- lagið nema: 1. hann hafi farið út fyr- ir þær takmarkanir á heimild sinni sem ákveðnar eru í lögum þessum, 2. hann hafi farið út fyrir takmarkan- ir á heimild sinni á annan hátt enda hafi viðsemjandi vitað eða mátt vita um heimildarskortinn og telja vera ósanngjarnt að viðsemjandinn haldi fram rétti sínum.“ Lögfræðingar sem DV talaði við voru ekki sammála um túlkun. „Það er búið að tilkynna hluthöfum um þetta, hún er með lykilstjórnendum og innherjum, það er tilkynnt um slík kaup til Kauphallar. Ef kaupin fóru ekki í gegn hefði átt að tilkynna um það. Það er verið að gefa upplýsing- ar til markaðarins sem ekki ganga eft- ir,“ sagði lögfræðingur sem ekki vildi blanda sér opinberlega inn í málið. Annar lögfræðingur sagði það ekki sjálfgefið að skráning í Kauphöllina jafngilti því að viðskipti hefðu átt sér stað. „Afhending fór aldrei fram og ekki greiðsla kaupverðs. Viðskiptin hafa ekki verið framkvæmd,“ sagði hann. Upptekin Birna Þegar DV reyndi að ná tali af Birnu Einarsdóttur vegna málsins var hon- um tjáð að hún yrði upptekin allan daginn. Birna gaf sér þó tíma til að útbúa yfirlýsingu sem hún sendi blaðinu og hefur hún ver- ið birt á vefnum dv.is. Þar segir hún að það hafi verið mistök bankans, ekki hennar, að tilkynna ekki að kaup hennar á hlutnum hefðu farið út um þúfur. Hún segir að öll gögn málsins séu komin til skoðunar hjá Fjármála- eftirlitinu. Bjarni borgar Helgi Anton Eiríksson var fram- kvæmdastjóri Alþjóðasviðs Glitnis og er nú í Bretlandi að vinna fyrir gamla Glitni. Hann keypti 8 milljón hluti í Glitni sama dag og Birna. Þau viðskipti voru tilkynnt til Kauphallar- innar með sama hætti og hlutabréfa- kaup Birnu. Þegar DV hafði samband við Helga Anton sagðist hann í fyrstu ekki vilja tjá sig um eigin viðskipti. Hann staðfesti þó síðar að sín kaup hefðu gengið eftir. Þögn Glitnismanna DV reyndi að ná í Þorstein Má Baldvinsson við vinnslu þessarar fréttar en fékk þær upplýsingar frá ritara hans að hann myndi líklegast ekkert tjá sig um málefni Glitnis. Gísli Heimisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri rekstrar- og upp- lýsingatæknisviðs Glitnis, vildi ekk- ert tjá sig; „Ég kommentera ekkert á þetta. Það kemur ekki til greina, ég er farinn þaðan,“ sagði hann. Ágúst Hrafnkelsson hjá innri endurskoðun Glitnis sagðist ekkert tjá sig við fjöl- miðla þegar DV náði tali af honum. Jón BJArKi mAGnúSSon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is „Það er ekki hægt að halda því fram að upplýsingar til mark- aðarins hafi ekkert gildi. Vegna þess að markaðurinn gerir ráð fyrir að þau hafi átt sér stað. Það þarf að senda inn leið- réttingu strax þegar breyting verður.“ Upptekin birna gaf sér ekki tíma til að tala við dV en sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis að bankinn hefði gert mistök en ekki hún. Átti sér ekki stað Már Másson, upplýsingafulltrúi glitnis, segir viðskiptin aldrei hafa átt sér stað. Erfið staða staða Nýja glitnis er erfið vegna hlutabréfakaupa birnu bankastjóra en þau voru aldrei afturkölluð úr kauphöll Íslands þrátt fyrir tilkynningarskyldu. Í fullu gildi forstjóri kauphallar- innar segir ekki hægt að halda því fram að tilkynningar til kauphallarinnar hafi ekkert gildi. „Hvaða áhættu eru menn að taka ef þeir geta stokkið úr slíkum vagni?“ Vilhjálmur bjarnason hagfræðingur segir ljóst að viðskipti birnu séu hluti af stærri vanda. stjórnendur bankanna hafi getað stundað áhættufjárfestingar án áhættu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.