Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Blaðsíða 15
AuðmAðurinn
sem slApp
föstudagur 31. október 2008 15Helgarblað
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, er einn af fáum
íslenskum auðmönnum sem berjast ekki fyrir framtíð sinni og
lífa í viðskiptaheiminum með „allt undir“ eins og sumir auðmenn lýsa aðstæðum sínum
þessi dægrin. Þegar á hólminn er komið virðist Bjarni vera einhver klókasti refurinn í ís-
lensku viðskiptalífi en hann forðaði sér á hárréttu augnabliki og hefur það gott í Noregi þar
sem hann ávaxtar enn sitt pund.
Fáir efast um hæfileika Bjarna Ár-
mannssonar og framsýni í viðskipt-
um en hann þykir einnig hafa kom-
ist langt á vatnsgreiddum sjarma
hins forframaða sveitamanns. Þeir
sem átt hafa í viðskiptum við Bjarna
hafa margir fengið að kenna á því að
undir sakleysislegri ásjónu dreifbýl-
isdrengsins sem slappar af með því
að hekla í hvítum sportsokkum á
heimili sínu leynist grjótharður við-
skiptamaður sem hikar ekki við að
skipta um lið og snúa baki við við-
skiptafélögum til þess að verja eigin
hag. Gyllingin máðist hratt af þess-
um vel þokkaða, fjölskylduvæna og
dáða bankamanni í kringum REI-
málið þegar hann sýndi á sér ískald-
ar og áður óþekktar hliðar. Pólitísk-
ur vandræðagangur varð til þess að
Bjarna mistókst að græða svimandi
upphæðir á íslensku orkuútrásinni
og þá virðist honum hafa verið nóg
boðið. Hann pakkaði saman fögg-
um sínum og fé og flutti til Noregs
þar sem hann er í góðum málum í
dag á meðan flestir fyrrverandi við-
skiptafélagar hans berjast um á hæl
og hnakka fyrir fjárhagslegri framtíð
sinni og því sem eftir er af ærunni.
Persónutöfrar Bjarna urðu til
þess að hann vakti fyrst athygli. Það
var árið 1990 þegar hann lauk prófi
í tölvunarfræði við Háskóla Íslands.
Þá var ferðinni heitið til Taílands
þar sem útskriftarnemar hugðust
sletta úr klaufunum. Þannig vildi
til að Pétur Blöndal, sem síðar varð
þingmaður, var fararstjóri. Svo virð-
ist sem Pétur hafi heillast af þess-
um unga og kraftmikla manni sem
Bjarni er því ári síðar réð Pétur hann
til starfa hjá Kaupþingi. Bjarni var
fljótur að vinna sig upp metorða-
stigann hjá Kaupþingi og var með-
al annars sjóðsstjóri fyrirtækisins.
Á sama tíma og Bjarni vann í Kaup-
þingi voru þar einnig lítt þekktir
menn eins og Hreiðar Már Sigurðs-
son, síðar bankastjóri KB banka sem
varð síðar Kaupþing. Sigurður Ein-
arsson vann einnig með Bjarna en
Sigurður varð síðar stjórnarformað-
ur Kaupþings. Guðmundur Hauks-
son var einnig á gólfinu með Bjarna
en leiðir þeirra áttu eftir að liggja
saman á ný þegar Bjarni tók að sér
stjórnarformennsku í REI.
Finnur finnur Bjarna
Eftir að hafa unnið hjá Kaupþingi
í sex ár komu persónutöfrar og hæfi-
leikar Bjarna honum vel þegar Finn-
ur Ingólfsson, þáverandi iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, og framsóknar-
maðurinn Þorsteinn Ólafsson réðu
hann til Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins, FBA, og gerðu hann
að bankastjóra. Ástæðan fyrir ráðn-
ingunni var talin nokkuð einföld.
Bjarni hafði verið viðloðandi Fram-
sóknarflokkinn í stúdentapólitík-
inni en þar var hann virkur í Vöku.
Eftir að hann var ráðinn yfir til FBA
þótti endanlega ljóst að Bjarni væri
gegnheill
og innmúr-
aður fram-
sóknarmaður.
Bjarni hefur hins
vegar reynt að
þvo þann stimp-
il af sér í gegnum
tíðina og vill meina
að hann sé meira eða
minna laus við alla
flokkadrætti.
Atli mÁr gylFAson
og vAlur grettisson
blaðamenn skrifa: atli@dv.is og valur@dv.is
NÆRMYND
„Hann er mjög metnað-
argjarn og svífst raun-
ar einskis til að ná fram
sínum markmiðum.“
Framhald á
næstu síðu
skemmtiskokk Á meðan flestir íslenskir
fyrrverandi auðmenn hlaupa með
fjárhagslegt líf sitt í lúkunum er bjarni í
fínum málum í Noregi og getur skokkað
með bros á vör víðs fjarri þeim ósköpum
sem nú dynja yfir íslenskt efnahagslíf.
ekki allur þar sem hann er séður
sakleysisleg, hrein og strokin ásjóna bjarna
segir ekki alla söguna og undir yfirborðinu
leynist gallharður bisnissmaður sem gefur
ekki þumlung eftir í viðskiptum.