Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Blaðsíða 17
föstudagur 31. október 2008 17Helgarblað
Útrásarvíkingurinn og Bjarni
Deilurnar um REI snerust fyrst og
fremst um sameiningu þess við félag-
ið Geysir Green Energy, GGE, en FL
Group og Glitnir banki hf. áttu meiri-
hluta í GGE. Til stóð að sameina þessi
tvö félög og með því átti að búa til
eitt öflugt útrásarfélag í orkuiðnaði.
Í skýrslu stýrihóps sem var falið að
fjalla um REI-málið kemur fram að FL
Group hafi haft nánast óeðlilega mik-
il afskipti af samningagerðinni. Útrás-
arvíkingurinn Hannes Smárason var
þá fremstur í flokki FL-manna.
Í skýrslunni segir orðrétt: „Við
vinnu stýrihópsins kom í ljós að að-
koma utanaðkomandi hagsmunaað-
ila að samningi milli REI og OR (FL-
group) var mikil og jafnvel ráðandi
í samningagerðinni. Óljóst var hver
gætti hagsmuna Orkuveitu Reykjavík-
ur við samningsgerðina.“
Ljóst þykir að samningurinn um
sameiningu þessara félaga og drög
að umdeildum þjónustusamningi var
hugarfóstur Bjarna og Hannesar sem
hittust meðal annars á fundi þann
22. september. Á þeim fundi skrif-
aði Bjarni minnisblað sem varð síð-
an grundvöllur að öllum samningum
um sameiningu fyrirtækjanna.
Stjórnarslit í borginni
Fulltrúar minnihlutans í Reykja-
víkurborg voru mjög ósáttir við hvern-
ig staðið hafði verið að málum í hugs-
anlegri sameiningu félaganna. En þeir
voru ekki einir um það. Allir borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gengu á
fund Geirs H. Haarde og greindu frá
óánægju sinni með vinnubrögð borg-
arstjóra í málinu og allt virtist stefna
í strand.
Bjarni Ármannsson fór ekki var-
hluta af gagnrýninni og dróst inn í
hringiðu pólitískra átaka. Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgar-
stjóri Reykjavíkur, sagðist aldrei hafa
fengið minnisblað með öllum upp-
lýsingum um samruna REI og Geysis
Green Energy. Þá upphófst mikið rifr-
ildi í gegnum fjölmiðla á milli Bjarna
og Vilhjálms. Bjarni sýndi það og
sannaði að undir sléttu og felldu yfir-
borði hins fjölskylduvæna og skokk-
glaða peningamanns leyndist grjóth-
arður bisnissmaður sem gefur ekkert
eftir.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson varð
undir í deilunni og borgarstjórn
Reykjavíkur tættist í sundur í REI-
sprengingunni. Þau málalok þjónuðu
þó ekki hagsmunum Bjarna því með
stjórnarslitunum fór sameining REI
og GGE endanlega út um þúfur.
Þetta sagði Bjarni í viðtali við
Deigluna stuttu eftir að samruninn
fauk út í veður og vind: „Það er í sjálfu
sér mjög óskemmtilegt þegar maður
dregst inn í hringiðu pólitískra átaka
eins og ég hef lent í undanfarið. Það
sem hefur komið mér mest á óvart –
sem líklega er einfeldningslegt af mér
– er hversu grimm stjórnmálin eru
og í raun hversu lítil hugmyndafræði
ræður för. Þetta er meira persónur og
leikendur og átök þeirra í millum sem
drífur atburðarásina og hugmynda-
fræðin er meira notuð til réttlætingar
á atburðum og athöfnum.“
Tók peningana og fór
Þegar samruninn fór út um þúf-
ur fór áhugi Bjarna á REI sömu leið.
Bjarni hafði í raun treyst á samruna
fyrirtækjanna en með honum hefði
Bjarni tvöfaldað hagnað sinn á að-
eins nokkrum dögum. Hver veit hver
upphæðin hefði orðið eftir nokkur
ár. Dæmið gekk ekki upp fyrir hann
en þó verður seint sagt að Bjarni Ár-
mannsson sé vitlaus í viðskiptum.
Hann hafði tryggt sig gagnvart kaup-
um í REI en samkvæmt frétt Morgun-
blaðsins gat Bjarni selt fimm hundr-
uð milljóna króna hlut sinn í félaginu
án þess að tapa krónu – ef forsend-
ur myndu bresta í samstarfi hans og
Orkuveitunnar. Bjarni mat það svo
að ef REI myndi ekki sameinast GGE
væru forsendurnar að engu orðn-
ar. Bjarni seldi því Orkuveitunni hlut
sinn, tók peninginn og fór út úr REI.
Þrátt fyrir að hafa sloppið að mestu
leyti á núlli hafði REI-málið skað-
að ímynd bankastjórans með barns-
andlitið en áður en REI-málið fór af
stað hafði ekki fallið kusk á hvítflibba
Bjarna sem þótti hafa átt nánast flekk-
lausan feril í viðskiptaheiminum.
Grjótharður samningamaður
Þótt Bjarni sé viðkunnanlegur
maður er hann, eins og þegar hef-
ur komið fram, eitilharður bisniss-
maður. Honum er lýst sem hörð-
um samningamanni þó svo að hann
sé alltaf hreinn og beinn við þá sem
hann semur við: „Það er ekkert und-
ir borðinu hjá honum,“ segir viðmæl-
andi DV. Þessi skoðun er þó ekki allra
og annar heimildarmanna blaðs-
ins hefur þetta um Bjarna að segja:
„Bjarni minnir oft á pólitíkus frekar
en bankastjóra. Hann hefur gaman af
að plotta og skiptir um bandamenn
án þess að blikna. Þannig á hann það
til að skilja aðra eftir í súpunni til að
sleppa sjálfur, alveg eins og þaulvan-
ur stjórnmálamaður. Ef menn skoða
Straumsmálið á sínum tíma þegar
valdabaráttan var um Straum, Trygg-
ingamiðstöðina og Íslandsbanka geta
menn séð að Bjarni skipti oft um lið.
Hann hefur verið ótrúlega lífseigur.
Hann er eins og kötturinn, á níu líf.“
Því er ljóst að Bjarni kann harðan leik
viðskiptanna og persónutöfrar hans
hafa svo varla skemmt fyrir honum.
Tvær grímur Bjarna
Annar heimildarmaður segir
Bjarna ekki þola mjög sterka menn
í kringum sig. Menn megi ekki hafa
of ákveðnar skoðanir á hlutunum,
þeir eigi að standa og sitja eftir hans
höfði.
„En hann er mjög klár að mörgu
leyti, annars hefði hann ekki náð
svona langt. Hann er vel máli farinn
og kemur vel fyrir opinberlega en á
bak við tjöldin er hann útsmoginn og
plottar mikið. Hann er mjög metn-
aðargjarn og svífst raunar einskis til
að ná fram sínum markmiðum,“ seg-
ir viðmælandi um Bjarna sem virðist
bera tvær grímur, annars vegar hins
látlausa auðmanns og hins vegar
hins harðsvíraða bisnissmanns.
Partí á víkingasnekkju
Um tíma, þegar Orca-hópurinn
var enn í Íslandsbanka, voru þeir
Bjarni og Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs, í allmiklum viðskipt-
um saman. Auk þess voru þeir ágæt-
is vinir og samkvæmt heimildum
á Jón Ásgeir að hafa boðið Bjarna
nokkrum sinnum í snekkjuna sína,
Thee Viking, á Flórída. Snekkjan
varð alræmd í aðdraganda Baugs-
málsins og þar um borð á Bjarni að
hafa skemmt sér nokkrum sinnum
með Jóni Ásgeiri. Eftir að Orca-hóp-
urinn var keyptur út úr Íslandsbanka
haustið 2002 slitnaði hins vegar upp
úr vinskap Bjarna og Jóns Ásgeirs
og svo virðist sem flestir fyrrverandi
samstarfsmenn og viðskiptafélagar
Bjarna hafi snúið við honum baki á
einhverjum tímapunkti. Heimild-
armenn segja þetta stafa af því að
erfitt sé að treysta honum, hann sé
iðulega grunaður um að vera með
ráðabrugg í gangi og skipti oft um
lið eftir því hvað henti honum hverju
sinni.
Látlaus auðmaður
Bjarni er ekki hinn dæmigerði
auðmaður. Þótt eignir hans hlaupi
á milljörðum fær hann ekki alþjóð-
legar poppstjörnur í afmælisveisl-
ur sínar eða býður heilu hópunum
til framandi eyja. Hann er fyrst og
fremst fjölskyldumaður en hann og
kona hans, hjúkrunarfræðingurinn
Helga Sverrisdóttir, eiga fjögur börn
saman. Mestum tíma sínum reynir
hann að verja með fjölskyldunni.
„Hann er fyrst og fremst sveita-
strákur,“ sagði viðmælandi DV þegar
hann var spurður hvers vegna Bjarni
lifði svo fábrotnu lífi samanborið við
aðra auðmenn. Bjarni er vanur litlu
samfélagi þar sem allir þekkja alla.
Hann fór til sjós þegar hann var ung-
ur og hefur ávallt haft mikið fyrir því
sem hann eignast. Svo virðist sem
hann umgangist auð sinn af ábyrgð
og geti lifað vel án þess að Elton John
spili afmælissönginn.
Mikill fjölskyldumaður
bjarni á fjögur börn með konu sinni Helgu
sverrisdóttur og er sagður reyna að verja
mestum tíma sínum með fjölskyldunni.