Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Síða 24
föstudagur 31. október 200824 Helgarblað RitskoðaRi einokaR dagblaðamaRkað Björgólfur Guðmundsson notaði völd sín til að farga upplagi af bók vegna þess að honum mislíkaði kafli um eiginkonu hans. Í kjölfarið reyndi hann að kaupa DV sem fjallaði um málið og leggja það niður. Nú ræður hann tveimur stærstu dagblöðum Ís- lands. Ingi F. Vilhjálmsson, doktorsnemi í siðfræði, spyr hvort það sé siðferðilega réttlætanlegt að ritskoðari nánast einoki íslenskan dagblaðamarkað. Einn hvimleiðasti atburður sem átt hefur sér stað á Íslandi á liðn- um árum var þegar Björgólfur Guð- mundsson, þáverandi eigandi Eddu - útgáfu, lét farga fyrsta upplagi bók- ar Guðmundar Magnússonar um Thorsarana árið 2005. Ástæðan var sú að á nokkrum blaðsíðum í bók- inni fjallaði Guðmundur um hjóna- band Þóru Hallgrímsson, eiginkonu Björgólfs, og stofnanda nasista- flokks Bandaríkjanna, George Lin- coln Rockwell. Guðmundur sættist á að endurskrifa þann hluta bókar- innar þar sem fjallað var um hjóna- bandið. Í breyttri útgáfu bókarinnar er minnst einu sinni á hjónaband Þóru og Rockwells. Viðurkenndi förgun bókar Björgólfur ræddi förgun bókar- innar í viðtali við breska blaðið The Observer sunnudaginn annan sept- ember í fyrra. Hér er brot úr við- talinu: Í bók forlagsins Eddu um sögu Thors-fjölskyldunnar, Thorsararnir, voru nokkrar blaðsíður sem móðg- uðu [Björgólf ] Guðmundsson og leiddu þær til þess að bókinni var fargað. Höfundur bókarinnar sætt- ist á að breyta bókinni og var að- eins einu sinni minnst á hjónaband- ið. „Þetta var ósanngjarnt,“ segir [Björgólfur] Guðmundsson. „Það sem þeir reyndu að gera var að fjalla um samband eiginkonu minnar og fyrsta manns hennar sem voru gift fyrir fimmtíu árum. Ég meina, slíkt gera menn ekki við saklaust fólk. Bókin átti að fjalla um fjölskylduna en allt í einu var lífshlaup hennar [Þóru] gert að aðalatriði í sögu fjöl- skyldunnar. Hjónabandið var óvið- komandi þeirri sögu sem sögð var í bókinni.“ Nokkuð hafði verið fjallað um Thorsarabókarmálið í fjölmiðlum fyrir birtingu þessa viðtals þar sem Björgólfur nánast viðurkenndi að hann hefði látið farga bókinni og réttlætti þá ákvörðun sína. DV gekk þar harðast fram og birti opnugrein um málið í blaðinu með fyrirsögn- inni „Týndi kaflinn“. Hugsunin var líklega sú að fyrst almenningur fengi ekki að lesa um hjónabandið í bókinni um Thorsarana gæti hann lesið um það í DV. Eftir að DV birti umfjöllunina mun Björgólfur hafa hótað að kaupa DV til þess eins að leggja blaðið niður. Eftir að viðtalið við Björgólf birt- ist í The Observer í fyrra var DV eina íslenska dagblaðið sem birti frétt um málið mánudaginn þar á eftir. Fréttablaðið birti svo frétt um mál- ið á þriðjudeginum. Eftir því sem greinarhöfundur best veit fjölluðu aðrir fjölmiðlar ekki um þessa opin- berun Björgólfs í The Observer. Siðferðisvitund okkar var slævð af nýfrjálshyggjunni: „Ég á þetta; ég má þetta.“ Hugmyndafræðileg lægð Sú tiltölulega litla umfjöllun sem Thorsarabókarmálið fékk í fjölmiðl- um og sú staðreynd að Björgólf- ur komst upp með athæfið án þess að vera fordæmdur fyrir það sýnir kannski þá siðferði- og hugmynda- fræðilegu lægð sem við Íslending- ar höfum verið í á liðnum árum. Samhliða meintum efnahagsupp- gangi höfum við sofnað á verðinum og auðmennirnir sem taldir voru hafa fært okkur velmegunina hafa komist upp með að gera nokkurn veginn það þeim sem sýnist í krafti peningavalds síns, meira að segja að ritskoða og farga bókum. Auð- mennirnir hafa meðal annars kom- ist upp með slíka ósvinnu því gildi sem kenna mætti við nýfrjálshyggju hafa orðið útbreidd og viðtekin í íslensku samfélagi. Þessi gildi ný- frjálshyggjunnar hafa slævt siðferð- isvitund okkar. Eitt þessara gilda er að eignar- rétturinn sé helgasta vé mannanna. Menn hafa algert og óskorað vald yfir eignum sínum og mega ráð- stafa þeim algerlega eftir eigin höfði svo framarlega sem það kemur ekki niður á eignarrétti annarra manna. Á hversdagslegu máli þýðir þetta að menn mega gera það sem sýnist við það sem þeir eiga. Hannes Smára- son orðaði þetta slagorð íslensku út- rásarinnar líklega best þegar hann réttlætti eina af viðskiptaákvörð- unum sínum með orðunum: „Ég á þetta; ég má þetta.“ Samkvæmt þessari hugmyndafræði nýfrjáls- hyggjunnar er rangt og óréttlátt að skipta sér af því eða mótmæla því hvernig einstaklingar ráðstafa eign- um sínum, sama á hvaða forsend- um þau afskipti eru byggð. „Svona er þetta bara“ Þessi nauðhyggja markaðshyggj- unnar, sem náð hefur svo góðri fót- festu á Íslandi á liðnum árum, var orðuð vel af Kristjáni B. Jónassyni, formanni Félags íslenskra bókaút- gefanda, þegar hann var spurður út í förgun bókarinnar um Thorsarana í Fréttablaðinu í september í fyrra. Kristján sagði: „Það vita það líka all- ir að kjósi eigandi fyrirtækis að beita því fyrir sig á einn eða annan hátt þá gera þeir það. Ég er ekki að segja að hlutirnir eigi að vera þannig en svona er þetta bara.“ Allt of margir á Íslandi hafa annaðhvort trúað þess- ari kennisetningu á liðnum árum eða sætt sig við hana líkt og einhvers konar náttúrulögmál. Í krafti trú- arinnar á þetta lögmál lét íslensk- ur almenningur sér það í léttu rúmi liggja þegar Björgólfur Guðmunds- son fargaði bókinni um Thorsarana. Orð Kristjáns voru því miður hárrétt lýsing á hugsunarhætti okkar í góð- ærinu. Við þessa hugmyndafræði bættist að virðing okkar og hræðsla við auðmennina og peningavald þeirra var gersamlega takmarkalaus og því gátu þeir komist upp með að gera það sem þeir vildu við það sem þeir áttu, sama hvaða níðingsverk það voru. Þegar Björgólfur Guðmundsson ritskoðaði og lét farga bókinni um Thorsarana var hann ekki aðeins að gera það sem hann vildi við það sem hann átti heldur vó hann um leið að grundvallarstoðum frjáls- lyndra lýðræðisríkja: mál- og prent- frelsinu. Við búum í lýðræðissam- félagi þar sem mikilvægi þessara réttinda er undirstrikað með því að hundruð vísinda-, fræði- og blaða- manna vinna við að rannsaka og segja sannleikann og miðla honum til almennings. Ritskoðun og eyði- legging á bókum stefnir þeim gild- um sem grundvalla þessi mannrétt- indi okkar í hættu. Sá sem stundar ritskoðun og lætur eyðileggja bæk- ur vegna sérhagsmuna sinna trú- ir ekki á þessi gildi. Slíkur maður er óvinur tjáningarfrelsisins og þar með lýðræðisins. Eitt af því sem við þurfum að gera núna í kreppunni er að hafna þeim gildum sem áttu þátt í að leiða til hennar. Meðal annars að endur- skoða réttmæti þeirrar kennisetn- ingar að menn megi gera nákvæm- lega það sem þeir vilja við það sem þeir eiga. Í þessu felst ekki að við ættum að hverfa til kommúnisma og afnema eignarrétt einstaklinga á framleiðslutækjunum. Síður en svo. Í slíkri endurskoðun felst aðeins að þó framleiðslutækin og fyrirtækin verði að mestu áfram í einkaeign verði það ekki raunin að íslenskur almenningur leyfi eigendum þeirra að gera nákvæmlega það sem þeim sýnist við þessar eignir, jafnvel að brjóta gegn grunngildum samfé- lagsins. Mótmælum aðgerðum auðmannanna opinberlega Almenningur hefur ekki vald yfir því sem er í einkaeign, líkt og yfir þjóðareignum. En við getum hins vegar haft óformlegt og siðferðilegt vald og áhrif á aðgerðir einstakl- inga ef við tökum okkur saman þeg- ar gengið er fram af okkur. Ef nógu margar mótmælaraddir heyrast úr röðum almennings þegar einstakl- ingar hyggjast fremja óhæfuverk í skjóli eignarréttar síns getur al- menningur haft áhrif á gang mála með því að rísa upp og mótmæla. Fáir menn eru það kaldrifjaðir og skeytingarlausir um eigið orðspor að þeir þoli að hundruð eða þúsundir manna mótmæli og fordæmi gjörð- ir þeirra. Flestir hugsa sig tvisvar um áður en þeir gera eitthvað sem mun flekka mannorð þeirra í augum heillar þjóðar. Við sem þjóð þurfum að læra að beita þessu óformlega og siðferðilega valdi á réttan hátt þeg- ar við viljum mótmæla stefnu eða aðgerðum fyrirtækja og einstakl- inga því einkaeignarréttinum fylgja hættur sem sporna þarf við. Það sem við hefðum átt að gera þegar Björgólfur Guðmundsson lét farga bókinni um Thorsarana var að rísa upp og mótmæla; mótmæla á sams konar hátt og þegar afsagn- ar Davíðs Oddssonar seðlabanka- stjóra hefur verið krafist á götum Reykjavíkur upp á síðkastið. En við gerðum það ekki því við trúðum í blindni á algildi eignarréttarins og að hann væri yfirsterkari siðferðinu og grundvallarréttindum lýðræð- isins. Við trúðum í blindni á nauð- hyggju eignarréttarins: að menn gætu gert það sem þeir vildu við það sem þeir ættu og að það væri ekki nokkur leið fyrir okkur til að koma í veg fyrir það. Líklega hefðum við heldur ekki gert neitt ef Björgólfur hefði keypt DV og lokað blaðinu fyr- ir það eitt að segja okkur sannleik- ann, sannleika sem honum einfald- lega líkaði ekki að kæmist á prent. Hversu mikið hefðum við eiginlega sætt okkur við frá hendi auðmann- anna fyrst við sættum okkur við það þegar Björgólfur Guðmundsson tróð á tjáningarfrelsinu? Efnahagskreppan mun líklega ekki leiða til frekari ríkisvæðingar en á bönkunum þremur þannig að flest önnur fyrirtæki landsins verða áfram í eigu einstaklinga. Eign- arréttur einstaklinga er ríkjandi rekstrarform á Íslandi. En við þurf- um að endurskoða hugmyndir okk- ar um þennan eignarrétt: hversu langt menn geta gengið þegar þeir ráðstafa eignum sínum. Þessi eignarréttur er alls ekki slæmur í sjálfu sér en honum fylgir ábyrgð því menn eiga ekki að komast upp með að misnota hann til að brjóta grundvallargildi samfélagsins líkt og Björgólfur gerðist sekur um í Thorsarabókarmálinu. Almenn- ingur á Íslandi þarf að læra að taka höndum saman og mótmæla því þegar auðmenn traðka á þessum siðferðilegu gildum sem samfélag okkar er reist á. Eitt af því sem menn eiga ekki að fá að komast upp með er að ritskoða og farga bókum og að kaupa, ritskoða og loka dagblöðum til að koma í veg fyrir að almenning- ur hafi aðgang að sannleikanum. Í slíkum tilfellum er vegið að grund- vallarmannréttindum almennings: tjáningar- og upplýsingafrelsinu. Í þeirri naflaskoðun sem við Íslend- ingar stöndum nú í í kjölfar efna- hagshrunsins þurfum við að vera meðvituð um þetta. Við verðum að vera viðbúin því að sýna auðmönn- um og fyrirtækjaeigendum landsins aðhald rétt eins og við sýnum ríkis- valdinu aðhald og mótmælum þeg- ar aðgerðir þess fara fyrir brjóstið á okkur. Hornsteinn lýðræðisins Eitt af því sem við gætum byrj- að á að gera er að mótmæla því að Björgólfur Guðmundsson eigi ráð- andi hlut í útgáfufélaginu Árvakri sem gefur nú ekki aðeins út Morg- unblaðið heldur líka Fréttablaðið. Tvö stærstu og víðlesnustu dagblöð landsins eru að einhverju leyti í eigu manns sem gerst hefur sekur um að ritskoða og farga bók sem hon- um mislíkaði og hóta því að kaupa dagblaðið DV, sem varði mál- og prentfrelsi í landinu, til þess eins að leggja það niður. Eigandavald Björgólfs yfir Morg- unblaðinu birtist í sinni skýrustu og verstu mynd í fjögurra blaðsíðna drottningarviðtali við hann í blað- inu síðastliðinn sunnudag. Viðtalið var augljóslega hugsað til að afla honum samúðar meðal þjóðarinn- ar vegna þeirrar gagnrýni sem hann og aðrir íslenskir auðmenn hafa sætt á síðustu vikum í kjölfar efna- hagshrunsins. Í útgáfuteiti björgólfur stendur í dyrunum í útgáfuveislu. eiginkonan Þóra og Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi að baki honum. Björgólfur og Þóra sem eigandi eddu - útgáfu náði björgólfur að ritskoða bók þar sem birtist óþægilegur kafli um líf eiginkonu hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.