Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Page 27
föstudagur 31. október 2008 27Fókus
Hvað er að
GERAST?
föstudagur
n Sálin á Players
sálin hans Jóns míns spilar á skemmti-
staðnum Players föstudagskvöldið 31.
október. sálin hefur verið dugleg að
frumflytja ný lög undanfarnar vikur og
eiga þau eflaust eftir að hljóma á Players.
n Kreppurokk á Dillon
rokksveitirnar Nögl og Weapons halda
krepputónleika á dillon á föstudag. aðeins
kostar 500 krónur á tónleikana. Húsið
opnar klukkan 21.00. Nögl er þessa
dagana í miðjum upptökum á sinni fyrstu
plötu en frumburður Weapons kemur út
bráðlega.
n Halloween á English pub
októberfest-mánuður english pub endar
með Halloween-teiti. Hljómsveitin
Whatever! leikur fyrir dansi. sett verður
upp risa partítjald austurvallarmegin og
bjór á októberfest-tilboði í síðasta sinn á
þessu ári. Þeir sem mæta í búningum fá
sérstakt tilboð og valinn verður besti
búningurinn.
n Deluxxx á 22
sonur skemmtanalífsins, danni deluxxx,
verður að spila á 22 um helgina. danni
blandar dansvænni elektrótónlist við fyrsta
flokksv hip-hop. Þú færð ekki mikið betri
kokkteil en það á dansgólfum bæjarins.
taktu með þér sundhettuna og stingdu
þér til sunds með deluxxx.
n Útgáfutónleikar á Prikinu
Úgáfan Coxbutter heldur útgáfutónleika á
Prikinu. fram koma regnsko og sampling
og raguel. addi Intro úr forgotten Lores
tekur svo við og heldur uppi stuðinu fram
eftir kvöldi. addi, eða Introbeats, mun
reiða fram allt það ferskasta sem hip-hop
hefur upp á að bjóða. Innlent sem erlent.
laugardagur
n Hugleikur sýnir níu stuttverk
Leikfélagið Hugleikur sýnir stuttverkadag-
skrána ó, þessi tæri einfaldleiki, laugardag-
inn 1. nóvember og sunnudaginn 2.
nóvember klukkan 20 í Listasafni
reykjavíkur. sýnd verða níu ný stuttverk
sem öll eiga það sammerkt að hafa afmæli
sem þema. upplýsingar og miðasala á
hugleikur.is og í síma 694 5161.
n Janis í Íslensku óperunni
Janis 27 er nýtt verk ólafs Hauks
símonarsonar í Íslensku óperunni. Hér er á
ferðinni mögnuð frásögn af stuttu en
litríku lífshlaupi Janisar Joplin, sem lést
aðeins 27 ára gömul. tónlist Joplin skipar
stóran sess í verkinu, en Ilmur kristjáns-
dóttir og bryndís Ásmundsdóttir túlka
Janis í sýningunni.
n Stuð á Sólon
dj rikki g og dj Áki Pain munu þeyta
skífum fram á rauðanótt og skemmta
gestum sólon. fM-hnakkinn rikki er á
neðri hæðinni og sér um að halda góðri
velgju þar. en reynsluboltinn Áki Pain sér
um að halda gólfinu sjóðandi á efri
hæðinni. ekki stoppa of lengi á sama stað.
Þú gætir brennt þig.
n Retro Stefson með útgáfutónleika
Platan Montana er nýkomin út og í tilefni
af því ætlar hljómsveitin retro stefson að
halda útgáfutónleika í Iðnó í kvöld klukkan
21. Ásamt þeim verður þar oddur
Júlíusson og hin vinsæla fM belfast.
Hljómsveitin sló í gegn á nýliðinni
airwaves-hátíð en erlendir jafnt sem
íslenskir blaðamenn keppast við að lofa
hljómsveitina í bak og fyrir.
n Blús og djass á Akranesi
blús- og djasshátíð akraness fer fram um
helgina og ætti enginn áhugamaður að
láta hana fram hjá sér fara. kvöldið mun
vera helgað blús og munu margir flottir
listamenn koma fram. Hljómsveitirnar the
devil´s train, Magnús, ferlegheit og
Landsliðið með ragnheiði gröndal
innanborðs koma fram. tónleikarnir verða í
bíóhöllinni og hefjast klukkan 21.
UtAn gáttA Í
ÞJóðlEiKHÚSinU
gott
leikhús.
allt unnið af
ósvikinni
íþrótt.
m
æ
li
r
m
eð
...
ÆviSögU láRUSAR
PálSSonAR lEiKARA
tragísk
saga
tíma-
móta-
manns.
HAng on mEð
motion BoyS
fyrsta flokks
poppplata.
Vantar samt
örlítið extra til
að fara alla leið.
SAintS Row 2 á PS3
skemmtilegur
leikur.
Áminning um
að gallalaus
grafík er ekki
allt.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
SEx DRivE
byrjar
sæmilega
en er vond
þegar upp
er staðið.
sem sýningum lauk á um síðustu
helgi og í Ástríði.
Svartir englar slógu öll áhorfs-
met í íslensku sjónvarpi og lögðust
greinilega vel í landann.
„Fólk hefur áhuga á íslenskri
menningu sem er alveg æðislegt.
Rétt eftir áramótin fer svo Ástríður
í sýningu.“
Sjálf segir Þórdís að gæfan hafi
parað hana á ýmsum sviðum, því
hún lék ekki einungis í tveimur
sjónvarpsþáttum heldur voru tvö
verk eftir hana sett upp í leikhúsum
borgarinnar.
„Það var nú svolítið fyndin tilvilj-
un núna um daginn þegar general-
prufan á Dansaðu við mig var hald-
in í Iðnó sama kvöld og lokasýningin
af Fýsn var sýnd í Borgarleikhúsinu.
Það er svolítið óvenjulegt að það
væru leikin tvö verk eftir mig á svið-
um borgarinnar í einu.“
Ekki nóg með það heldur var
sama kvöld hægt að sjá Þórdísi í
Sjónvarpinu í endursýningu á Svört-
um englum.
„Þetta raðaðist bara einhvern
veginn svona því stundum vinn-
ur maður vinnuna talsvert áður en
maður uppsker svo þó að eitthvað
raðist upp á sama tíma þýðir það
ekki endilega að það sé unnið á
sama tíma.“
tvö ólík verk með
stuttu millibili
Verkin Fýsn og Dansaðu við mig
voru frumsýnd með einungis sex
vikna millibili og álagið hefur því
verið mikið á Þórdísi að undan-
förnu.
„Það er búið að vera svolítið þétt
og mikil törn.“
Að hennar sögn kristallast í leik-
ritunum tveimur algjörar andstæð-
ur í þátttöku hennar í uppsetningu
á verkunum.
„Fýsn var keypt af Borgarleik-
húsinu og það er bara fyrir höfund
svolítið eins og að senda verkið sitt á
heimavist. Svo fer það eftir því hvað
leikstjórinn vill mikið samstarf við
höfundinn hversu mikið höfundur-
inn kemur að uppsetningu verks-
ins. Ég var leikstjóranum í Fýsn tals-
vert innan handar og gaf henni mitt
álit á ferlinu, fékk að fylgjast með og
svona en kom að öðru leyti ekkert
að æfingaferlinu.“
Dansaðu við mig er aftur á móti
sett upp af sjálfstæðum leikhópi
sem að sögn Þórdísar gerir allt upp
á eigin spýtur.
„Þar vorum við ekki með sama
„budget“ sem stofnanaleikhúsin
hafa til að auglýsa sig og ekki með
tæknifólk á okkar snærum svo allir
þurfa að ganga í ýmis verk. Það er dá-
lítið lýjandi að vera í málningargall-
anum að mála sjálfur sviðsmyndina
fram á nótt, vakna svo morguninn
eftir til að fara beint í að hringja sím-
töl og plögga verkið á sama tíma og
maður er á kafi í listrænni sköpun
þess. Þetta á við um okkur öll, það
lögðust allir í hópnum á eitt um þau
verk sem þurfti að vinna. En á sama
tíma og þetta er lýjandi er þetta líka
gríðarlega gefandi.“
Höfundarverk innan
höfundarverksins
Þegar hún er spurð hvort hún
hafi einhvern tímann orðið fyrir
vonbrigðum með útkomuna á verk-
um sínum í höndum einhverra ann-
arra þarf Þórdís ekki að hugsa sig
tvisvar um:
„Nei, ég hef aldrei lent í því að
vera með leikstjóra að verkinu mínu
sem tekur ekki tillit til minna skoð-
ana. Mér finnst það í rauninni ríkj-
andi hjá leikhúsfólki að það áttar sig
á hvað samvinna er mikilvæg. Leik-
sýning er aldrei bara afkvæmi ein-
hvers eins. Þegar upp er staðið eru
svo margir sem eru með höfundar-
verk innan höfundarverksins.“
Einleikurinn sem
varð að tvíleik
Dansaðu við mig er tveggja
manna verk leikið af þeim Þrúði
Vilhjálmsdóttur og Höskuldi Sæ-
mundssyni og leikstjóri verksins er
Jón Gunnar Þórðarson.
Leikhópurinn sem kemur að
Dansaðu við mig kallar sig Leikhús
andanna og er nýstofnaður, varð til
í kringum uppsetninguna á verk-
inu. „Af því að sum okkar höfðu ekki
unnið saman áður vildum við ekkert
vera að sjá neitt of mikið fram í tím-
ann hvað myndi gerast næst. Sam-
komulagið var því á þeim nótun-
um að prófa bara þetta samstarf og
sjá hvernig gengi en útiloka ekki að
gera eitthvað aftur saman.“
Þórdís segist þó nokkuð viss um
að hópurinn muni aftur hittast og
gera eitthvað skemmtilegt eftir fæð-
ingu verksins.
„Upprunalega samdi ég einleik
fyrir konu að beiðni leikhúsmann-
eskju í London. Meðan ég var að
skrifa einleikinn hugsaði ég með
mér hversu gaman væri að gera
þetta að tvíleik.“
Á svipuðum tíma og Þórdís
skrifaði einleikinn hafði Höskuldur
samband við hana með það í huga
að setja upp eitthvert sjálfstætt verk
frá eigin brjósti. „Hann spurði mig
hvort ég væri til í eitthvað á þeim
forsendum, sem ég var, heldur bet-
ur. Ég tók einleikinn til algjörrar
endurskoðunar og skrifaði Dans-
aðu við mig alveg frá grunni. Verk-
ið fæddist því alveg í heild, þó það
hafi verið kominn ákveðinn grunn-
ur fyrir kvenpersónuna breyttist
hún talsvert við endurskrifin svo
verkið á alveg sína sjálfstæðu fæð-
ingu þó þetta hafi verið aðdrag-
andinn.“
gegnsósa af þráhyggju,
myrkri og mannaskít
Þó heiti verksins kunni að hljóma
líkt og heiti á klassísku dansverki er
Dansaðu við mig síður en svo dans-
verk.
„Þetta er nefnilega nútíma-
ástarsaga sem er svolítið öðruvísi
að mörgu leyti en mjög mannleg.
Hún markar í raun og veru ákveð-
in straumhvörf fyrir mig í skrifum.
Fýsn var lokaverkið í þríleik sem ég
skrifaði og var mjög myrkur og fjall-
aði um þráhyggju. Þráhyggjan getur
átt sér svo erfiðar og ljótar birting-
armyndir, ég var orðin gegnsósa af
þráhyggju, myrkri og mannaskít svo
ég hugsaði með mér að næsta verk
yrði að vera á hugljúfari nótum. Ekki
bara fyrir sjálfa mig og mína geð-
heilsu heldur líka til að sýna fram
á að ég eigi mér nú aðrar hliðar og
sé búin að afgreiða þetta viðfangs-
efni sem ég hef verið að fást við í þrí-
leiknum, allavega í bili.“
Að öðru leyti segir Þórdís að
verkið fjalli um það þegar fólk lað-
ast hvort að öðru, stundum þvert
gegn eigin vilja og jafnvel án þess
að mega það. Verkið segir sögu af
fjórum mjög ólíkum einstaklingum.
„Það er þarna lífeðlisfræðingur sem
heldur því fram að ást sé bara röð af
taugaskilaboðum, eins órómantískt
og það gerist. Svo er þarna myndlist-
armaður sem stendur sjálfan sig að
því að elska tvær konur í einu, ljós-
myndari sem býr yfir myrku leynd-
armáli og ástkona með sólgyllta út-
limi.“
Dugleg að hamra járnið
Í upphafi næsta árs kemur út
fyrsta bók Þórdísar en í henni er
tekin staða mála hvað varðar of-
beldi á Íslandi.
„Bókin er skrifuð af illri nauð-
syn. Ég var búin að vera ótrúlega
óhress með það hvernig ofbeldis-
málum lýkur á Íslandi. Bæði hvað
varðar dóma og bætur. Einhvern
veginn virðist umræðan vera svo-
lítið stöðnuð, það er eins og hún
komist aldrei af því plani að fólk
fjargviðrist og pirrist og sé upp-
fullt af réttlátri reiði. Að öðru leyti
á lítil sem engin þróun sér stað. Ég
er nú ekkert að reyna að halda því
fram samt að þessi bók breyti stöðu
mála en hún er innlegg í ákveðna
umræðu sem er alltaf í gangi und-
ir niðri.“
Aðspurð að lokum hvort hún
lumi á einhverju tilbúnu leikverki
ofan í skúffu sem eigi eftir að birt-
ast okkur lifandi á leikfjölunum
á næstunni svarar hún: „Nei, það
er nú ekkert ofan í skúffu. Ég hef
verið frekar heppin með það að
þegar mér finnst ég vera með til-
búna afurð hefur hún ekki þurft
að dúsa lengi ofan í skúffu. Ég hef
fengið tækifæri á að sjá verkin mín
fara upp í mörgum tilfellum. Það
er ákveðin gæfa en það er náttúr-
leg líka dugnaður. Maður þarf að
hamra járnið og það að sitja og
skrifa krefst ákveðins aga. Svo þetta
er samblanda af því að vera á rétt-
um stað á réttum tíma og vera dug-
legur og gefast ekki upp.“
Sýningar á Dansaðu við mig
standa yfir út nóvember í Iðnó og
er hægt að nálgast miða á midi.is.
krista@dv.is
Gæfa og dugnaður
í bland
Önnur breiðskífa tónlistarkon-
unnar Lovísu Elísabetar, betur
þekkt sem Lay Low, Farewell Good
night‘s Sleep kom út á dögunum.
Mér fannst fyrsta platan hennar,
Please Don‘t Hate Me nokkuð fín
en það verður að segjast að Lay
Low hefur þroskast heldur betur og
dafnað síðan sú plata kom út fyrir
tveimur árum. Bæði sem söngkona
og sem lagahöfundur. Það er ekki
að finna óöryggi í röddinni hennar
sem er einkar þægileg og falleg og
nýtur sín vel í þessum gamaldags
kántrýfíling sem ríkir á Farewell
Good night‘s Sleep. Hér finnst mér
Lovísa vera búin að finna sig algjör-
lega í tónlistinni.
Platan byrjar á laginu I Forget
It‘s Here sem gefur góð fyrirheit um
það sem koma skal. næsta lag hef-
ur verið í mikilli spilun á útvarps-
stöðum að undanförnu, By and
By sem er flott og grípandi en alls
ekki besta lag plötunnar svo þeir
sem eru að meta By and By vel ættu
ekki að verða fyrir vonbrigðum
með restina af lögunum. Í sérstöku
uppáhaldi hjá mér er lagið Why do
I Worry? sem er einstaklega svalt og
gæti vel átt heima í einhverri klass-
ískri Quentin Tarantino bíómynd.
Platan var tekin upp í London og
fékk Lovísa hæfileikaríka tónlistar-
menn til að sjá um undirspilið og
gefa hljóðfæri á borð við Banjó, ell-
efu strengja gítar og hið óvenjulega
Dobro skemmtilegan suðurríkja,
kántrýtón.
Farewell Good night‘s Sleep
er einstaklega vel unnin, þægileg
og ljúf plata sem hefur varla farið
úr spilaranum síðan ég fékk hana
í hendurnar og virðist alls stað-
ar eiga vel við, hvort sem um er
að ræða í matarboði, í bílnum eða
hreinlega á pókerkvöldi þar sem
átta karlmenn sátu og spiluðu pó-
ker og drukku bjór og bönnuðu mér
að fjarlæga Lay Low úr græjunum.
Þetta er plata sem á ekki eftir að
svíkja neinn og ef þig vantar jóla-
pakka handa þeim sem á allt get-
urðu eflaust glatt hann með þess-
ari stórgóðu afurð Lovísu enda ein
besta íslenska platan sem út hefur
komið á árinu. Krista Hall
Á alls staðar vel við
DE BloB á nintEnDo wii
kom skemmtilega á
óvart. ungir sem
aldnir geta skemmt
sér konunglega yfir
litadýrðinni og
einfaldleikanum.
tónlist
Farewell Good NiGht‘s slepp
Flytjandi: Lay Low
Útgáfa: Cod Music
vel unnin plata í alla staði önnur
breiðskífa Lay Low er ljúf og þægileg.
lærði leiklist í biblíubelti Bandaríkjanna
Þórdís valdi ekki hefðbundnu leiðina, að fara í
leiklistarnám í New York eða Los angeles,
heldur nam hún leiklistina í georgíu.
mynD: RAKEl óSK SigURðARDóttiR