Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Side 33
föstudagur 31. október 2008 33Helgarblað „Við höfum horfið frá þessu nor- ræna módeli. Í hvaða tilgangi? Af hverju var það brotið niður? Ég get ekki hlustað á fólk sem segir að mark- aðshyggjan sé af hinu góða. Ég skil ekki hvernig þetta fólk sem talar fyr- ir hönd hennar geti verið svona blint, rétt eins og það tilheyri sértrúarsöfn- uði,“ bætir hún við. LandsfLótti á næstunni Kolfinna segir það ekki hafa kom- ið til greina að fara í pólítík er hún sneri aftur heim. „Það er ekki ein- ungis að ég hafi ekki fundið flokk til að tilheyra. Það er líka erfitt að koma inn rétt si svona, án þess að hafa unn- ið fyrir „flokkinn“. Það eiga sér stað innbyrðis átök í flokkum. Ég hafði ekki verið nógu lengi heima til þess að taka þátt í því, þegar síðustu kosn- ingar fóru fram,“ segir hún. „En nú hefur allt gerbreyst. Í dag eru breytt- ir tímar. Þetta eru nýir tímar sem við lifum sem þýðir ný gildi og nýtt fólk. Það verður að vera algert. Við getum ekki haldið áfram í þykjustuleikjun- um sem ganga út á frasa. Það þýðir ekki lengur að hafa „bara“ skoðanir. Núna er verið að berjast í bökkum. Það þurfa að vera skýrar línur um hvert við erum að stefna,“ bætir hún við. Hún segir íslensku þjóðina vera í algjöru myrkri. „Jú, það voru haldnir blaðamannafundir. Og hvað var okk- ur sagt á þeim?“ spyr hún undrandi. „Allar upplýsingar hingað til hafa verið þvers og kruss. Einn segir þetta, hinn þetta. Og áður en við vitum af erum við sokkin í hyldýpi orðagjálf- urs. Ef ekki verður skapað svigrúm til að gera algerar breytingar á því kerfi sem hefur sýnt sig nú á undanförn- um vikum sem rotið inn að beini, á hvaða sviði sem það er, getum við al- veg eins pakkað niður og farið,“ segir Kolfinna af miklum eldmóði. „Davíð er sagður hafa hækk- að stýrivexti til að koma í veg fyr- ir gjaldeyrisflótta. En það eina sem það gerði var að skapa enn meiri úlf- úð og glundroða. Og var enn frekari hvatning fyrir fólk til að pakka nið- ur og fara. Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að koma í veg fyrir lands- flótta? Það er talað um mannauð- inn, menntuð þjóðin hljóti að koma okkur aftur á kjöl, en það þarf þá að halda í þann mannauð, áður en hann fer og skilur þessa sviðnu jörð eftir til að visna enn frekar,“ segir Kolfinna. Engar LangtímaLausnir Hún segir helsta vandamál Íslands vera skammtímalausnir. Að henn- ar mati útskýrði listamaðurinn Diet- er Roth þetta best í heimildarmynd sem sýnd var fyrir skömmu. „Þegar hann kom fyrst til landsins í byrjun sjöunda áratugarins leit hann í kring- um sig og sagði þessi orð sem ég hef nú eignað mér. Hann upplifði Ísland eins og verbúð, að hér væri byggt til bráðabirgða, eins og við værum ekki komin til að vera. Þessi orð hans gáfu mér loksins orð til að lýsa ástandinu sem hér ríkir. Það er ekkert langtíma- plan. Það var ekki einu sinni plan B þó margir, ef ekki flestir, hafi vitað að ekki myndi spilaborgin endast lengi,“ segir Kolfinna. „Við sitjum uppi allslaus. Við höf- um því engu að tapa. Það er djarft að biðja um nýjar kosningar, en við þurfum að vera djörf. Við höfum eng- an annan valkost. Hún segir síðustu tvær vikur í lífi sínu hafa verið magnaðar. „Mér finnst eins og allur heimurinn sé að vakna til vitundar. Komin á botn- inn skulum við svo sannarlega nýta okkur það tækifæri til að búa okkur til betra samfélag. Ríkisstjórnin seg- ir að við eigum að vera róleg, en ég trúi ekki að það sé lausnin. Við eigum að krefjast þess að nú verði byrjað að byggja upp samfélag á sanngjarnari hátt en áður, á jöfnuði.“ ViLL komast á sjóinn Kolfinna fer sínar eigin leiðir í líf- inu og hefur alltaf gert það. „Ég hef verið spurð hvort ekki sé erfitt að koma heim eftir langa dvöl erlendis og aðlagast á ný. Ég hef ekki orðið vör við það fyrr en nú. Nú eru liðin tvö ár og eftirköstin eru kannski fyrst að koma í ljós núna. Það er svolítið eins og maður fái ekki að tilheyra, eins og ég hefði átt að halda í gömlu skóla- klíkurnar, sitja í nefndum, tilheyra matarklúbbum eða öðrum félögum til að komast í rásir með mitt. Fólk á mínum aldri eru búið að koma sér fyrir í sínum rásum og er þannig að fá útrás á þeim hugsananetum sem það tilheyrir. Að því leyti er Ísland lokað samfélag og það er erfitt að troða sér inn. Útlendingar kvarta undan þessu sama.“ En þó að mótmælin eigi hug og hjarta hennar allt þessa dagana er Kolfinna að vinna í hinum ýmsu verk- efnum þar á meðal tveimur heim- ildarmyndum, sem nú virðast vera komnar í biðstöðu, því erfitt er að fá styrki um þessar mundir. Hún hef- ur einnig unnið mikið með ítölskum félögum sínum og langar þau í sam- einingu að opna „visual arts“-skóla á Ísafirði, hennar gamla heimabæ. En Kolfinna segir það sorglegt hvernig farið hefur fyrir landsbyggð- inni, og leggur á það áherslu að kvót- inn komist aftur í hendur þjóðarinn- ar sem fyrst. Annars er Kolfinna að leita sér tækifæra. „Ég er eins og hver annar Íslend- ingur um þessar mundir. Þarf að finna mér aur og það strax. Best væri að komast á sjóinn, nú er fiskurinn það eina sem heldur í okkur lífi. En menn eru líklegast að berjast um plássin núna og án efa vanari menn en ég. En ég er ágæt í að flaka, enda vann ég í frystihúsum fyrir vestan sem ungl- ingur. Svo er ég reyndar með tvær meistaragráður, eina í sögu og aðra í alþjóðalögum, sú menntun ætti að gagnast mér eitthvað, nú þegar bestu störfin er ekki lengur að finna í bönk- unum, heldur í hugmyndabanka há- skólasamfélagsins, eins og um hefur verði rætt undanfarið,“ segir hún. nýr kafLi að hEfjast Í miðjum samræðum erum við stoppaðar af þjóninum sem hefur sitt að segja um efnahagsástandið. Konan er frá Spáni og skilur ekki af hverju Íslendingar eru enn með bros á vör og ekki úti að mótmæla. Við hættum að tala um ástandið í þjóðfélaginu og snúum okkur að fjölskyldunni. „Ég hef alla tíð ver- ið einstæð móðir. Varð ólétt 19 ára. Starkaður kom í heiminn og svo hélt lífið áfram. Íslenski raunveruleikinn er þannig að við setjum okkur lítið í hefðbundnar móðurstellingar, enda aldar upp í mæðraveldi, þar sem börnin öðluðust fljótt sjálfstætt líf. Þannig var það allavega, en það hef- ur líka breyst. Mér líður eins og eld- gamalli kerlingu þegar ég tala svona,“ segir Kolfinna og hlær. „En nei, mér þótti það aldrei tiltökumál að flakka um heiminn með tvö börn,“ seg- ir hún, en Magdalena dóttir henn- ar kom í heiminn er Kolfinna var 23 ára. „Eftir á að hyggja var þetta svo- lítið sniðugt að gera þetta svona ung því þá tekur maður breytingunum auðveldar, og má segja kæruleysis- legar. Í dag hafa þau bæði vaxið mér yfir höfuð og eru meira eins og bestu vinir mínir og ekkert gleður mig eins mikið. Ég er ánægð að þessum kafla sé lokið, og annar tekinn við.“ Ferðalagið um heiminn opnaði augu barna hennar einnig. „Þau tala bæði mörg tungumál. Þau hafa séð og upplifað hluti sem mun reynast þeim dýrmætt veganesti,“ segir Kolf- inna. Hún segir það að festa búsetu með börn hafi auðveldað henni að aðlagast á hverjum og einum stað. „Að koma börnunum inn í skólakerf- ið, heilbrigðiskerfið, tómstundagam- anið, skapa þeim félagsleg tengsl var mesta reynslan sem ég hefði aldrei lært hefði ég verði barnlaus. Sam- skipti foreldra og barna eru til dæm- is gerólík í Bandaríkjunum og Belgíu, hvað þá Kósóvó. Menntakerfið þver- ólíkt, svo ég tali nú ekki um heil- brigðiskerfið og yfirhöfuð mannleg samskipti. Hún segir það í raun vera lúxus að vera einstæð móðir. „Á sumrin fóru börnin heim til Íslands og ég nýtti mér þann tíma til þess að fara á mitt flakk,“ en Kolfinna hefur ferðast víða. tiLhugaLífið á fErtugsaLdrinum Að vera ástfangin einstæð móðir var aðeins erfiðara. „Það er ekki auð- velt fyrir einstæðar mæður að stunda tilhugalíf. Hef reynt það nokkrum sínum en oftast gefist upp. Við þurf- um að vera svo sannfærðar um ágæti mannsins til að taka stóra skrefið að kynna hann fyrir börnunum. Og þeg- ar maður er á flakki gengur dæmið ekki upp. Síðasti maðurinn minn var Ítali, Francesco. Við vorum saman í þrjú ár og það var ekkert einfalt,“ út- skýrir Kolfinna. Þau bjuggu saman í Kósóvó og er óhætt að segja að hús- haldið hafi verið alþjóðlegt. „Ég talaði íslensku við börnin. Francesco talaði frönsku við okkur Magdalenu og ensku við Starkað og við töluðum svo saman á ítölsku. Ég sá hann ekki fyrir mér á Íslandi. Það getur verið mjög erfitt fyrir útlend- inga að aðlagast hér,“ segir Kolfinna og bætir við: „Hann er frá Suður-Ít- alíu, Puglia, og fannst einfaldlega of kalt hér.“ Hún kvaddi Francesco og flutti heim með börnunum. „En kannski vegna þess að for- eldrar mínir eru búnir að vera giftir í 50 ár trúi ég samt á ævilangt hjóna- band. En ég er nú komin á þenn- an ógnaraldur að það verður ekki auðvelt að kenna gömlum hundi að sitja,“ segir hún og kímir. stEndur á tímamótum Í dag segist hún standa á tíma- mótum, óviss um framtíðina: „Þetta er vendipunktur fyrir okkur öll. At- burðarásin er farin af stað en hvert hún fer með okkur er óvitað. En við verðum að hafa einhverja stefnu og skipuleggja okkur vel. Við verðum að vita hvað við viljum. Sem þjóð og sem einstaklingar,“ segir hún. „Sem stendur er ég í hópi góðs fólks sem vinnur að því hörðum höndum að skipuleggja kröfugöngu, mótmæli gegn því kaosi sem við stöndum frammi fyrir, því einhvers staðar þurfum við að fá útrás fyr- ir reiði okkar yfir því sem látið hefur verið yfir okkur ganga, að því virðist stefnu- og stjórnlaust. Ef okkur verð- ur ekki gefið rými og rödd til að koma kröfum okkar á framfæri getum við allt eins pakkað niður og farið.“ Á morgun mun Kolfinna leiða Ís- lendinga frá Hlemmi niður á Austur- völl. Mótmælin hefjast klukkan 14. hanna@dv.is „Á tímum góðærisins var ég kölluð „litla helvítis kommastelpan“ fyrir að voga mér að tala gegn einkavæðingu.“ „Ég fór einstæð móð- ir með tvö börn undan tveimur pöbbum.“ á sjóinn kolfinna, eins og margir Íslendingar leitar nýrra tækifæra. Hún segir það koma sterklega til greina að fara á sjóinn. höfum engu að tapa „Við sitjum uppi allslaus. Við höfum því engu að tapa. Það er djarft að biðja um nýjar kosningar, en við þurfum að vera djörf. Við höfum engan annan valkost.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.