Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Qupperneq 44
föstudagur 31. október 200844 Helgarblað DV
umsjón: kolbrún pálína helgadóttir kobrun@dv.is
Kanntu
brauð
að baKa?
Á krepputímum sem þessum
ættu allar húsmæður að gera
meira af því að baka. Brauði af
öllum toga má skella inn í frysti
og taka út með stuttum
fyrirvara. DV tók saman
uppskriftir að nokkrum
einföldum og ljúffengum
brauðum sem tilvalið er að
bjóða upp á ef gesti ber að
garði.
döÐlubrauÐ
n 1 stór bolli vatn
n 1 stór bolli döðlur
n 1 stór bolli dökkur púðursykur
n 2 stórir bollar hveiti
n 1 egg
n 1 matskeið smjör
n 1 teskeið matarsódi
Aðferð: sjóðið vatn í potti, skerið
döðlurnar í tvennt og setjið út í
vatnið ásamt púðursykrinum.
hitið þar til döðlurnar eru orðnar
linar, setjið því næst smjörið út í
pottinn og takið hann af hellunni.
bætið hveitinu og matarsódanum
út í og svo egginu, hrærið létt
saman með sleif og setjið í ílangt
form. bakið við 180°C í 40 mínútur.
krYddbrauÐ
n 6 dl. haframjöl
n 6 dl. spelthveiti
n 3 dl. hrásykur
n 5 dl. léttmjólk
n 4 tsk. natron
n 1 tsk. kanill
n 1 tsk. engifer
n 1 tsk. negull
Aðferð: blandið þurrefnunum
saman, bætið mjólkinni út í og allt
hrært saman. skiptið deiginu í tvö
miðlungsform. bakið við 175°C í 1
klukkustund.
bananabrauÐ
n 100 gr smjör
n 1 bolli sykur
n 2 bollar hveiti
n 2 egg
n 1 tsk. matarsódi
n 3 dökkir bananar
Aðferð: blandið saman þurrefn-
unum, bræðið smjörið og bætið
því ásamt tveimur eggjum við og
hrærið allt saman. bakist við 175°C
í 80 mínútur neðst í ofninum.
& ínMatur
Forsíða síðasta tölublaðs
Gestgjafans vakti athygli
fyrir afar glæsilega mynd
af elgsteik. Gestgjafinn
deilir nú uppskriftinni af
þessari dýrindismáltíð
með lesendum DV. Ásamt
þessari skemmtilegu upp-
skrift er blaðið fullt af
skemmtilegum villibráðar-
uppskriftum enda tileink-
að sjálfri villibráðinni.
Uppskrift fyrir 4
n 4 x 200 g elgssteikur
n salt og nýmalaður pipar
n 2 msk. olía
n 30 g þurrkaðir villisveppir,
malaðir í kaffikvörn eða
matvinnsluvél
n 1 dl portvín
n 1/2 dl brandí
n 2 1/2 dl rjómi
n 1/2 msk. nautakjötskraftur
n sósujafnari
kryddið elgssteikur með salti
og pipar og steikið í olíu á vel
heitri pönnu í 2 mín. á hvorri
hlið. takið steikurnar af
pönnunni og setjið í 180°C
heitan ofn í 5-7 mín. setjið
sveppaduft á sömu pönnu
ásamt portvíni og brandíi og
sjóðið vínið niður um 3/4.
bætið rjóma og kjötkrafti í
sósuna og þykkið til með sósu-
jafnara. smakkið til með salti
og pipar.
gljáÐur skalotlaukur:
n 8-12 skalotlaukar
n 1/2 l vatn
n 2 msk. olía
n 4 msk. sykur
n 3 tímíangreinar
n 2 lárviðarlauf
n 2 msk. balsamedik
n 1 dl rauðvín
n salt og pipar
setjið skalotlauk og vatn
saman í pott, þannig að rétt
fljóti yfir laukinn, kveikið undir
en takið pottinn af hellunni
um leið og suðan kemur upp.
skrælið þá laukinn og steikið í
olíu á pönnu þar til hann er
orðinn fallega brúnn. setjið
sykur á pönnuna og látið hann
„karamelliserast“. bætið
tímíangreinum, lárviðarlauf-
um, balsamediki, rauðvíni, salti
og pipar á pönnuna og sjóðið
vökvann niður um 3/4.
portobello-sveppir:
n 4-6 portobello-sveppir,
skornir í báta
n 1-2 msk. smjör
n salt og nýmalaður pipar
steikið portobello-sveppi upp
úr smjöri á vel heitri pönnu í 2-
3 mín. og kryddið með salti og
pipar.
uppskrift: úlfar finnbjörnsson
mYnd: kristinn magnússon
KoKKApArtí Veisluturnsins
veisluturninn býður upp á skemmtileg mat-
reiðslunámskeið fyrir hópa, 15 til 30 manns. fólk
lærir að útbúa girnilegt sushi og lærir galdurinn
á bak við góða steik og alvöru bernaise-sósu.
kvöldið hefst á tuttugustu hæð turnsins þar sem
hópurinn fær stutt námskeið í hinum fræga mojito.
eftir námskeiðið njóta allir kræsinganna saman. nám-
skeiðið er í boði mánudaga til miðvikudaga frá 18.30 til 22.00.
verð er 9.800 á mann, innifalið er allt hráefni, mojito og máltíð.
Ég ætla að deila með þér tveim upp-
skriftum sem eru bæði góðar og ódýrar og
allir geta gert, jafnvel latir þingmenn.
GuðmAnn mArel siGurðsson
örYggisvörÐur
sítrónUkjúklingUr
heill kjúklingur er olíuborinn og kryddaður með kjúklinga-
kryddi og season all, þá er hann fylltur af sítrónum og
rósmarín eftir smekk (má sleppa). settur í 180°C heitan ofn
og steiktur í 60 til 90 mínútur.
á meðan kjúllinn er í ofninum eru skornar niður kartöflur í
jafna báta og þær steiktar með síðustu 40-50 mínúturnar,
einnig má bera fram hrísgrjón með þessu eða hvort
tveggja, þá hef ég með þessu kjúklingasósu og mango
chutney, þetta er mjög bragðgóður réttur.
svo er það súpa sem við köllum hér á heimilinu „taka til í
ísskápnum súpa með kjúkklingabringum“ ódýr og góð
súpa. magn miðast við fjölda, einnig má nota pasta í stað
kjúklingabringna.
aÐferÐ
kjúklingabringa eða tvær kryddaðar eftir smekk og steiktar
á pönnu, teknar af og látnar kólna, þá er farið í ísskápinn og
allt grænmeti sem þar er og hægt er að nota í súpu til
dæmis gulrætur, eggaldin og margt fleira sett í pott með
olíu og svissað þar, þá er bætt út í vatni og súpukrafti og
látið malla, þá er einnig sett út í með grænmetinu einn
pakki af mínútu núðlupakkasúpu og svo er kjúklingabring-
an skorin í jafna bita og bætt út í.
Báðir þessir réttir eru mjög góðir og ódýrir sem er gott í þessari
kreppu. Í framhaldi af þessu vil ég skora á Ragnar Marínósson
sem er alkunnur sælkeri og matmaður og vinnur í þjónustu-
deild 365 miðla í Skaftahlíð.
Verði ykkur að góðu.
M
atg
æð
ing
ur
inn
Elgssteik
með gljáðum skalotlauk, portobello-
sveppum og villisveppamauksósu
Tvær góðar í kreppunni