Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Síða 48
föstudagur 31. október 200848 Helgarblað DV
Sakamál
Borgað fyrir Barnsmorð dina
rodriques taldi sig himin hafa höndum tekið þegar hún
kynntist Neil Wilson. Þau tilheyrðu bæði miðstétt hvítra í
suður-afríku og voru vön að fá sínu framgengt.
en gleði dinu varð skammvinn, því hún komst að því að
Neil átti stúlkubarn fyrir. Það skipti hann svo sem engu
máli, en barnið varð þyrnir í augum dinu, hluti af fortíð sem
hún kærði sig ekki um að fylgdi Neil. Hún ákvað að grípa til
sinna ráða. Í fjölmiðlum landsins var hún síðar kölluð „hataðasta kona þjóðar-
innar“. Lesið um konuna sem pantaði barnsmorð í næsta helgarblaði dV.umsjóN: koLbeiNN ÞorsteiNssoN kolbeinn@dv.is
SMS-NEYÐARKALL
Þrátt fyrir að vera dauðskelfd nýtti Lizzie shoaf sér eina tækifærið sem henni gafst til að koma skilaboðum
til móður sinnar. Lizzie var haldið í neðanjarðarbyrgi í tíu daga og á þeim tíma hafði hún verið leiksoppur
tæplega fertugs barnaníðings. En Lizzie lét ekki bugast og það varð henni til bjargar.
„Hæ mamma, þetta er Lizzie. Ég
er í holu skammt frá Charm Hill þar
sem stóru vörubílarnir koma og
fara. Hann segir að hér sé sprengja.
Hringdu á lögregluna.“ Svona
hljóðuðu sms-skilaboðin sem urðu
Lizzie Shoaf til bjargar.
Elizabeth Shoaf, fjórtán ára,
hafði verið rænt tíu dögum áður
og hafði upplifað helvíti í höndum
barnaníðingsins Vinson Filyaw. Í
neðanjarðargreni sínu hafði Filyaw
nauðgað Lizzie og misþyrmt hinni
hjálparvana stúlku nokkrum sinn-
um.
En þegar Filyaw hafði svifið inn
í mók vegna fíkniefnaneyslu safn-
aði Lizzie hugrekki og nældi í far-
síma hans. Hún sendi móður sinni,
Madelaine, símaskilaboð úr þeirri
dimmu gryfju sem var prísund
hennar. Þegar Vinson Filyaw, þrjá-
tíu og sjö ára, vaknaði á ný tókst
Lizzie að láta sem ekkert væri og
sagðist hafa verið að spila leiki sem
voru í símanum. Hann trúði henni.
síminn miðaður út
„Hjarta mitt tók stökk, þegar ég
las skilaboðin. Dóttur minnar hafði
verið saknað svo lengi, og lögreglan
hafði sagt mér ýmislegt sem ég vildi
ekki heyra,“ sagði Madelaine um
viðbrögð sín við símaskilaboðun-
um. Hún fór beint til bónda síns og
sagði honum að hafa samband við
lögregluna. „Hún er í holu,“ sagði
Madelaine við eiginmanninn.
Rannsóknaraðilar höfðu sam-
band við deild innan lögreglunnar
sem hafði tækni til að rekja símann
fyrir tilstilli SMS-skilaboðanna og
fara yfir símtalaskrá. Sú rannsókn
leiddi í ljós að síminn hafði verið
keyptur af Cynthiu Hall, sambýlis-
konu Vinsons Filyaw.
Á heimili Cynthiu fann lögregl-
an ýmislegt sem sýndi að Filyaw
væri ekki aðeins fær um að grafa
góða holu, heldur væri útsmoginn
að auki. Um hálfs árs skeið hafði
Filyaw nýtt sér kunnáttu sína við
húsasmíðar og hæfileikann til að
komast af úti í nátturunni til að
komast hjá handtöku vegna gruns
um kynferðislega glæpi, sem einn-
ig sneru að tólf ára dóttur sambýlis-
konu hans.
„Hann var með tæplega fer-
metra stóra holu í gólfinu, sem
hann gat hulið með dýnu. Í hvert
skipti sem einhver kom með stefnu,
hefur hann stokkið ofan í holuna og
falið hana,“ sagði lögreglustjórinn í
Kershaw-sýslu, Steve McCaskill.
Dulbúinn sem lögreglumaður
Vinson Filyaw þekkti Lizzie, hún
gekk í sama skóla og dóttir Cynthiu.
Hann hafði gefið sig á tal við Lizz-
ie þegar hún steig af skólarútunni
og lokkað hana á brott, íklæddur
gervilögreglubúningi. Filyaw fór
með Lizzie inn í Dry Branch-skóg-
inn, sem er svo þéttur að varla er
hægt að sjá hvað er handan næsta
trés. „Það hefur tekið marga mán-
uði að koma upp byrginu sem hann
fór með hana í. Hann hafði greini-
lega skipulagt þetta í marga mán-
uði,“ sagði McCaskill. Byrgið var
tveir og hálfur metri að dýpt og sex
metra göng voru að einum útgang-
inum, en þeir voru tveir. „Hann
hefur flutt þrjátíu tonn af jarðvegi
til að búa byrgið til,“ sagði lögreglu-
stjórinn.
Innandyra var allt til alls. Eld-
unaraðstaða, svefnstæði, hillur
fyrir nauðsynjar og handgert sal-
erni. Úr lofti hefði verið ómögulegt
að sjá nokkuð athugavert, og jafn-
vel á jörðu niðri var það erfitt. Inn-
gangurinn var fullkomlega hulinn
með greinum og laufskrúði. Inni
í hinu djöfullega greni voru sígar-
ettustubbar, tómar bjórflöskur og
klámblöð úti um allt líkt og hráviði.
Björgun og leit
Nokkrum sinnum hafði Filyaw
farið með Lizzie út undir bert loft,
aðallega til að rugla hana í ríminu
svo hún fengi ekki tilfinningu um
hvar henni væri haldið. Í raun var
henni haldið í innan við tveggja
kílómetra fjarlægð frá heimili sínu.
Þegar löggan fann Lizzie stóð hún
hljóðandi fyrir utan byrgið. „Hún
hafði greinlega heyrt í talstöðvum
okkar þegar við leituðum hennar og
hóf að hrópa og kalla á hjálp,“ sagði
McCaskill. Þegar hér var komið sögu
hafði Vinson Filyaw lagt á flótta.
Lizzie var í ágætu ásigkomu-
lagi, en það álag sem á Filyaw lagði
á hana hlýtur að hafa verið mikið.
„Hann hélt henni í holunni með því
að segja að hann hefði lagt sprengju-
gildrur í byrgið og á svæðið um-
hverfis. Við fundum blysbyssu og
heimagerðar handsprengjur gerðar
úr pilluglösum fylltum með byssu-
púðri,“ sagði McCaskill.
Öryggi Elizabethar var nú tryggt,
en enn áttu eftir að líða tuttugu og
fjórar stundir þar til lögreglunni
tækist að hafa hendur í hári Fily-
aws.
Fjölskyla Elizabethar og ná-
grannar hennar voru flutt á brott.
Filyam var álitinn hættulegur. Leit-
arþyrlur flugu yfir svæðinu og leit-
argeislar lýstu upp skóginn fyrir
neðan. En Filyaw var vel kunnug-
ur þessum skógi. „Hann gæti hafa
lagst niður og við myndum ganga
beint fram hjá honum,“ sagði lög-
reglustjórinn um leitina.
skítugur og hrakinn
Vinson Filyaw átti ekki því láni
að fagna og klukkan fjögur síðdeg-
is næsta dag var hann handtek-
inn. Hann hafði reynt að laumast
í gegnum net leitarmanna, en ekki
haft erindi sem erfiði. Hann var
skítugur og hrakinn og hafði lítinn
riffil og veiðihníf. Í bakpoka hans
fannst rafbyssa og farsíminn sem
Lizzie hafði notað til að senda hin
örlagaríku skilaboð.
Í september 2007 var Vinson
Filyaw dæmdur til 421 árs fang-
elsisvistar og skyldi dómurinn af-
plánaður í einni lotu. Ákæruat-
riðin voru sautján, þeirra á meðal
nauðgun, varsla áhalda til íkveikju
og að hafa villt á sér heimildir sem
lögreglumaður.
„Það kann að vera að hann sé
góður í að grafa, en sjáum hann
reyna að grafa sig út úr þess-
ari holu,“ sagði Madelaine, móð-
ir Lizzie, þegar dómur hafði verið
kveðinn upp, og bætti við að hún
myndi aldrei í framtíðinni kvarta
ef dóttir hennar notaði farsímann
of mikið.
Um hálfs árs skeið hafði
Filyaw nýtt sér kunn-
áttu sína við húsasmíð-
ar oghæfileikann til
að komast af úti í nátt-
urunni til að komast
hjá handtöku vegna
gruns um kynferðislega
glæpi, sem einnig sneru
að tólf ára dóttur sam-
býliskonu hans.
Vinson filyaw Var
dæmdur til 421 árs
fangelsisvistar.
greni Vinsons rusl,
sígarettustubbar og
klámblöð lágu úti um
allt eins og hráviði.
Elizabeth shoaf
Hugrekkið sveik hana ekki
á ögurstundu og það varð
henni sennilega til lífs.