Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Síða 52
Skotleikurinn Fallout 3 er kom- inn út en leikurinn hefur fengið frá- bæra dóma. Búast má við leiknum til landsins á næstu vikum en hann kemur út á Xbox 360, PS3 og PC. Af þessum þremur útgáfum af leikn- um hefur sú á Xbox fengið hæstu einkunnina eða 93,2% á heimasíð- unni gamerankings.com Sú einkunn er sett saman úr dómum 27 netmiðla og tíma- rita. Næst kemur PC-útgáfan með 91,5% og loks PS3 með 90,6%. Þó svo að munurinn á útgáfunum sé eflaust ekki stórkostlegur virðist Xbox nánast alltaf hafa vinninginn yfir PS3 þegar stórir leikir koma út fyrir báðar vélarnar. Tveir nýir leik- ir sem segja til dæmis söu sögu eru Far Cry 2 og Midnightclub: LA þar sem Xbox er aðeins ofar í báðum tilvikum. Saga Fallout 3 gerist 30 árum eft- ir að atburðir Fallout 2 áttu sér stað. Saga leikjanna gerist einhverjum 200 árum eftir að kjarnorkuheimsstyrj- öld hefur herjað á heiminn. Nánar- tiltekið árið 2277. Leikurinn er spil- aður bæði í þriðju og fyrstu persónu. Aðalpersóna leiksins er með- limur Vault 101 þar sem hún eða hann lifir með föður sínum. Það er enginn annar en stórleikarnn Liam Neeson sem talar fyrir föður- inn. Dag enn vaknar aðalpersónan en þá er faðirinn horfinn á braut. Upphefst þá leitin að föðurnum og verður spilandinn að vinna sig í gegnum hrjóstrugt landslag Wash- ington-borgar eftir að henni hefur verið eytt að mestu með kjarnorku- vopnum. asgeir@dv.is WindoWs 7 Microsoft kynnti í vikunni næsta stýrikerfi fyrirtækisins, Windows 7, sem samkvæmt kynningunni á að vera snarpara og einfaldara en Vista. Fyrirtækið íhugar einnig að setja á markað veflæga útgáfu af Office-ritvinnslupakkanum sem svar við Google Docs og Zoho en þau eru veflæg og frí og bjóða upp á alhliða ritvinnslu, til dæmis textaritil og töflureikni. Ekki kom hins vegar fram hvernig Micro- soft myndi hagnast á slíku framtaki því erfitt er að fara í samkeppni við fría þjónustu. Office-ritvinnslupakkinn hefur skilað fyrirtækinu meiri tekjum en sala Vista-stýrikerfisins á síðasta ársfjórðungi og eðlilegt að forsvarsmenn Microsoft séu áhyggjufullir ef sala hans dvínar. Útsendingar nokkurra stærstu bandarísku sjónvarpsstöðvanna voru rofnar síðastliðinn þriðjudag á stóru svæði í um tvær mínútur. Þegar pirraðir áhorfendur reyndu að stilla tæki sín til að ná útsendingum aftur kom í ljós að þetta var í raun samhæft átak stöðvanna til að vekja athygli almennings á því að 17. febrúar næstkomandi verður „analog” eða hliðrænum útsendingum hætt þannig að allir þeir sem enn eru með gömlu loftnetin munu sitja í myrkrinu ef þeir skipta ekki yfir í stafrænan móttökubúnað. Þetta hefur að sjálfsögðu ekki áhrif á þá sem ná útsendingum í gegnum kapalkerfi eða gervihnött. Einnig er hægt að ná stafrænum útsendingum með nýrri gerðum sjónvarpstækja og loftneta. Stjórnvöld hafa þegar gefið út sérstaka afsláttarmiða til að almenningur geti keypt búnað til að breyta stafrænu merki í hliðrænt og þannig notað gömlu sjónvörpin sín áfram en þrátt fyrir að um 32 milljónir miða hafi verið pantaðir hefur aðeins rétt um helmingur verið notaður enn sem komið er. Það sem verra er og veldur yfirvöldum og sjónvarpsstöðvunum töluverðum áhyggjum er að tæpar 10 milljónir afsláttarmiða eru runnir út á tíma, þar sem þeir voru ekki nýttir innan 90 daga. Í Evrópu verður hliðræn- um útsendingum einnig að fullu hætt á allra næstu árum. Bretar hafa til dæmis þegar hætt hliðrænum útsendingum á nokkrum svæðum í landinu og áætla að stafrænar útsendingar taki að fullu við um 2012. Við hér á Íslandi erum á góðum tíma með okkar áætlun en samkvæmt henni taka stafrænar útsendingar að fullu við um 2010. palli@dv.is Úr hliðrænu merki í stafrænt sjónvarp föStudagur 31. októBEr 200852 Helgarblað DV Tækni umSjón: PÁLL SVanSSon palli@dv.is Guitar HErO: MEtallica Eftir að falin stikla skaut upp kollinum þar sem bregður fyrir lógóinu guitar Hero: metallica hafa vaknað ýmsar spurningar. Síðan game- spot.com hefur staðfest að stiklan sé ekta og að væntanleg sé útgáfa af leiknum þar sem metallica sé aðalbandið. Leiknum myndi þá eflaust svipa til guitar Hero: aerosmith. Eins og aðrir guitar Hero-leikir verður hann sennilega fáanlegur á allar gerðir leikjavéla. GTA4 uppfærð- ur á XboX oG pc Væntanlegar eru uppfærslur fyrir Gta4 á Xbox360 og Pc. Hægt verður að hala niður uppfærsl- unni gegn gjaldi en með henni bætast við ný verkefni og nýir hlutir. uppfærslan verður ekki fáanleg á PS3. upphaflega átti uppfærslan að vera fáanleg 18. nóvember næstkomandi en nú virðist sem henni verði seinkað. Í það minnsta á Pc og þá til 2. desember. Gta4 komst í heimsmetabók Guinness sem stærsta opnun tölvuleiks fyrr og síðar þegar leikurinn seldist í 3,6 milljónum eintaka á fyrsta sólarhringnum. TæknirisAr GeGn broTum Fyrirtækin Yahoo, Google og Microsoft hafa undirritað sameiginlegan samning sem skuldbindur þau til að fara eftir ákveðnum grundvallarreglum í samskiptum við stjórnvöld þeirra ríkja sem hvað helst hafa verið gagnrýnd fyrir ritskoðun og rafrænt eftirlit á netinu á undanförnum árum. Má þar til dæmis nefna Kína, Burma, Víetnam, Sýrland og Íran. undirritun samningsins er hálfgerður viðsnúningur af hálfu þessara tæknirisa en Google og Microsoft voru harðlega gagnrýnd af ýmsum mannrétt- indasamtökum á síðustu Ólympíuleikum þegar samstarf þeirra (eða undanlátssemi) við kínversk stjórnvöld komst í hámæli vegna ritskoðunar á bloggsíðum og leitarvéla sem sýndu aðeins valdar niðurstöður. Gömul sjónvörp Verða brátt gagnslaus nema með sérstökum búnaði til að breyta merki útsendinga. Fær Frá- bæra dóma Fallout 3 Er kominn út. Frábærir dómar fær yfir 90% á gameraning.com Fallout 3 er kominn út og er búist við miklum vinsældum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.