Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Qupperneq 54
föstudagur 31. október 200854 Tíska
Hent fyrir
eftirlíkingu
Raunveruleikaþáttur Heidi Klum,
Project Runway, hangir nú í lausu
lofti eftir að sjónvarpsstöðin
Bravo henti
þættinum út
fyrir eftirlík-
inguna Fash-
ion House.
Bravo hefur nú
þegar efnt til
áheyrnarprufa
fyrir þátttöku
í þessum nýja
þætti en á heimasíðu sjónvarps-
stöðvarinnar segir: „Við erum
nú að taka við umsóknum frá
hæfileikaríkum fatahönnuðum
til að taka þátt í nýjum raunveru-
leikaþætti um hæfileikaríkasta
tískuhönnuðinn.“ Það verður að
viðurkennast að lýsing þessi er
heldur áþekk lýsingunni á Project
Runway og Heidi ku því vera allt
annað en sátt við sína gömlu fé-
laga hjá Bravo.
ralpH lauren
sá valdamesti
Tískukóngurinn Ralph Laur-
en hefur verið útnefndur einn
valdamesti maðurinn í tísku-
bransanum og er þetta annað
árið í röð sem hann hlýtur þenn-
an titil. Giorgio Armani lenti í
öðru sæti en listi yfir hundrað
valdamestu mennina í brans-
anum birtist á vefnum dnr.com
fyrir stuttu Báðir hafa þeir ára-
tuga reynslu af viðskiptum en
Ralph Lauren styrkti bandarísku
ólympíufarana fyrr á þessu ári og
þótti það gera mikið fyrir stöðu
hans á þessum lista. Á meðan
opnaði Armani tvær nýjar búðir
í Indlandi, eina í Moskvu og eina
í Peking.
rauðar
varir í vetur
Rauðar og kynþokkafullar varir
eru án efa málið þennan vet-
urinn. Verslanir Make Up Store
í Kringlunni og Smáralindinni
eiga nú von á glæsilegri nýrri
línu þar sem rauður mun vera
í aðalhlutverki. Línan nefnist
Ruby Red og leggur sérstaka
áherslu á rauðar varir. Þið konur
sem teljið ykkur ekki geta notað
rauðan varalit ættuð að fá ráðgjöf
fagfólks og prófa ykkur áfram þar
til rétti tónninn finnst. Úrvalið
hefur sjaldan verið meira og ættu
því allar konur að geta fundið
sinn rétta rauða lit.
KonuKvöld í debenhams föstudags-
kvöldið 31. október mun debenhams
halda glæsilegt konukvöld þar sem boðið
verður upp á ljúfa tónlist, léttar veitingar,
sýnikennslu í förðun, dregið í happdrætti
og margt fleira. einnig verður boðið upp á
flottan aflsátt af ýmsum vörum og dregið
í veglegu happdrætti. konukvöldið hefst
klukkan 20.00 og lýkur klukkan 22.00.
Útidress
sigrún lilja Guðjónsdóttir er eigandi og hönnuður Gyðju Collection en aníta briem
vakti mikla athygli í skóm og belti frá Gyðju á rauða dreglinum á dögunum. Hönnun
Sigrúnar má nálgast á gydja.is en þar er meðal annars hægt að kaupa skó, töskur, belti,
hundaólar og fatnað.
Kokteil-
klæðnaðurinn
Vinnudressið
Gaman að
vera í stíl
Kjóll: keyptur í Þýskalandi
sKór: gyðja
hársKraut: skart Company
hálsmen: swarowsky, gjöf frá
vinkonu
„Þennan senjorítukjól keypti ég í
Þýskalandi en ég er mjög hrifin af
þessu sniði. Ég er rosalega mikið í
kjól þegar ég fer út á lífið og finnst
mjög gaman að vera þá með
eitthvað flott hárskraut eða
eitthvað slíkt í stíl.“
Sparidressið
ÚtivistaGalli: o‘Neill í
serbíu.
lopapeysa: Prjónuð af
ömmu
„Þetta útidress keypti ég í
serbíu um síðustu jól og
kemur að góðum notum yfir
vetrartímann. Ég er mikið í
útivist með hundinn minn
hana Ísey og þá reyni ég að
klæða mig eftir veðri.“
stíGvél: gyðja
pils: keypt í ameríku
bolur: keyptur í ameríku
„Ég er mikið á fundum og vinn
skrifstofuvinnu og þá finnst
mér bæði einfalt og gaman að
vera í fallegu pilsi og til dæmis
rúllukragabol með flott
hálsmen. Ég hef átt frekar oft
erindi til útlanda og versla þá
mikið í leiðinni.“
Kápa: Newman Marcus í
ameríku
sKór: gyðja
„Mér þykir ótrúlega vænt
um þessa kápu sem ég
keypti í ameríku. Hún er
svolítið öðruvísi og
skemmtileg í sniðinu og
mér finnst mjög gaman að
klæðast henni þegar ég er
að fara eitthvað svona
aðeins fínna. svo finnst mér
líka svolítið gaman að vera í
stíl og leyfa litunum að
njóta sín og þess vegna er
ég í þessum gullskóm við
kápuna.“
tíska
Umsjón: Krista Hall Netfang: krista@dv.is
mynd Gunnar Gunnarsson