Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Page 8
„Hef ekkert gert gegn betri vitund“ Gunnar enn undir feldi n Sjálfstæðisflokkur myndi bæta við sig þingmanni í Kraganum N ei, ég er ennþá undir feldi,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi  Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi, að- spurður hvort hann sé búinn að ákveða hvort hann gefi kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar á næsta ári. DV greindi frá því í byrjun sept- ember að Gunnar væri að íhuga framboð. „Menn hafa rætt það við mig en ég er ekki búinn að taka ákvörðun,“  sagði hann á sín- um tíma. Gunnar myndi væntan- lega bjóða sig fram í Suðvesturkjör- dæmi, kjördæmið sem kallað er Kraginn, enda er Kópavogur hluti af því kjördæmi. Sjálfstæðisflokkurinn er nú með fjóra þingmenn í kjördæminu, árið 2007 var flokkurinn með sex þing- menn í kjördæminu og fimm árið 2003. Ef marka má skoðanakannan- ir, sem bent hafa til 33 prósentustiga fylgis flokksins, sem er sex prósenta aukning frá síðustu kosningum, mætti álykta að flokkurinn hlyti fimm þingsæti. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur iðulega verið með sterkt vígi í Kraganum, 4–7 prósentum yfir meðaltalsfylgi flokksins á landsvísu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tilkynnti í lok september að hún myndi ekki gefa kost á sér fyrir kom- andi kosningar og því er ljóst að laust sæti er í kjördæminu. Bæti flokkurinn við sig sæti, líkt og spár benda til, eru tvö laus sæti fyrir meðlimi flokksins. Fjölmiðlakonan Elín Hirst hefur tilkynnt framboð sitt í kjördæminu. n simon@dv.is 8 Fréttir 12.–14. október 2012 Helgarblað E ndurskoðendaskrifstofan PwC gagnrýnir Sigurð Jóns- son, endurskoðanda og fyrr- verandi framkvæmdastjóra KPMG, harðlega í skýrslu sem fyrirtækið vann um viðskipti Kaup- þings og fjárfestingarfélagsins Giftar. Skýrslan var unnin fyrir slitastjórn Kaupþings. Þetta herma heimildir DV. Sigurður skrifaði undir árshluta- uppgjör Kaupþings um mitt ár 2008 en sat á sama tíma í slitastjórn Giftar sem þá var komið í verulega rekstrar- erfiðleika, meðal annars vegna tug- milljarða viðskipta með hlutabréf í Kaupþingi með lánum frá bankanum. Hann var því á sama tíma endurskoð- andi Kaupþings og í slitastjórn stórs hluthafa og lántakanda í bankanum. Viðskipti Giftar við Kaupþing hafa verið til rannsóknar hjá embætti sér- staks saksóknara vegna gruns um markaðsmisnotkun. Hlutabréfin í Kaupþingi sem Gift keypti í viðskipt- unum í desember 2007 fyrir um 20 milljarða króna höfðu áður verið í eigu fjárfestingarfélagsins Gnúps sem lenti í rekstrarerfiðleikum í árslok 2007. Gnúpur hafði meðal annars átt hlutabréf í Kaupþingi sem selja þurfti á þessum tíma. Kaupþing sá um söluna á Gnúpsbréfunum, líkt og fjall- að er um í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, og lánaði fyrir þeim. Um var að ræða rúmlega 23 milljónir hluta í bankanum. Skrifaði upp á uppgjörið Þrátt fyrir erfiða stöðu Giftar um mitt ár 2008 sá þess ekki stað í árshluta- uppgjöri Kaupþings sem Sigurður skrifaði undir, jafnvel þó að hann hefði setið í slitastjórn Giftar á þess- um tíma. Enginn fyrirvari var gerður í árshlutauppgjöri Kaupþings vegna útistandandi lána til Giftar. Orðrétt segir í ársreikningnum: „Byggt á endurskoðun okkar þá er ekkert sem komið hefur fram sem gefur tilefni til að ætla að meðfylgjandi árshlutaupp- gjör gefi ekki sanna og sanngjarna mynd af fjárhagsstöðu fyrirtækisins þann 30. júní 2008 …“ Þetta telja höfundar skýrslu PwC um viðskipti Giftar og Kaupþings vera gagnrýnivert. Þar að auki ber að nefna að Sigurður hafði sömuleiðis verið endurskoðandi Giftar á þessum tíma og aðstoðaði aðstandendur félagsins við alls kyns mál á árinu 2007, sam- kvæmt gögnum úr fyrirtækjaskrá. Sig- urði hefði því mátt vera ljóst manna best hversu erfið staða Giftar var á þessum tíma og hefði hún átt að hafa áhrif á uppgjör Kaupþings. Þá liggur fyrir að Kaupþing gekkst síðar í ábyrgðir vegna lána sem Gift tók hjá Glitni og Landsbankanum og gerði engin veðköll hjá félaginu þrátt fyrir brot á ákvæðum í lánasamn- ingum þess. Líklegt má telja að þetta hafi verið gert til að koma í veg fyrir að hlutabréfin í Kaupþingi færu út á markað en slíkt hefði getað leitt til lækkunar á hlutabréfunum. Alltaf heiðarlegur Sigurður segist, aðspurður út í gagn- rýnina sem fram kemur í skýrslunni, ekki hafa skrifað undir árshlutaupp- gjör Kaupþings gegn betri vitund. Hann segist ekki hafa séð skýrslu PwC en svör hans við spurningunni eru al- menn: „Ég hef ekkert gert gegn betri vitund í lífinu.“ Spurður hvort hann hafi verið heiðarlegur í þessari endur- skoðun Kaupþings sem endranær segir Sigurður: „Alltaf. Það er bara þannig.“ Samkvæmt þessu svari Sigurðar var hann því alltaf hlutlægur og heiðarlegur við endurskoðun árs- reikninga og árshlutauppgjöra fyrir hrun. Blekkingar Kaupþings Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing- is kemur fram að ef hlutabréf Gnúps í Kaupþingi hefðu farið á markað má ætla að bréfin hefðu lækkað í verði. Jafnframt segir þar að ef Kaupþing hefði átt bréfin sjálft hefði bankinn farið yfir það lögbundna hámark af eigin hlutabréfum sem bankinn mátti eiga. Markaðsmisnotkunin í viðskipt- unum gæti því hafa falist í því að með sölunni til Giftar hafi verið komið í veg fyrir að Kaupþingsbréfin færu á markað sem aftur hefði getað lækkað verð á hlutabréfum í bankanum. Um þessi atriði segir í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis: „Þó má ljóst vera að ef hlutur í Kaupþingi af þessari stærðargráðu hefði verið seldur á markaði þá hefði það valdið umtals- verðum þrýstingi til lækkunar á verði bréfanna. Einnig má ljóst vera að hefði bankinn sjálfur keypt umrædd hluta- bréf þá hefði hann farið nálægt, eða jafnvel yfir þau mörk sem gilda um flöggun á eignarhlut í eigin bréfum. Því má ætla að ríkur hvati hafi verið fyrir bankann að liðka fyrir sölunni á bréfunum með lánveitingum.“ Inntakið í gagnrýni PwC á endur- skoðun Sigurðar á árshlutauppgjöri Kaupþings er að hann hafi tekið þátt í þessum blekkingum með Kaupþings- bréf Giftar með því að skrifa undir reikninginn án athugasemda. n n Var endurskoðandi Kaupþings og Giftar og sat að auki í slitastjórn Giftar „Byggt á endur- skoðun okkar þá er ekkert sem komið hef- ur fram sem gefur tilefni til að ætla að meðfylgj- andi árshlutauppgjör gefi ekki sanna og sanngjarna mynd af fjárhagsstöðu fyrirtækisins þann 30. júní 2008. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is PwC gagnrýndi Sigurð Endurskoðenda- fyrirtækið PwC gagnrýndi Sigurð Jónsson hjá KPMG fyrir að hafa skrifað undir árshlutauppgjör Kaupþings án athugasemda, þrátt fyrir að hafa á sama tíma setið í slitastjórn Giftar. mynd gvA Lestrarömmur í Reykjanesbæ „Fjórar konur hafa aðstoðað okkur við lestrarþjálfun í vetur og þannig hjálpað börnum að stíga sín fyrstu skref í lestrinum. Þessi stuðningur hefur skipt miklu máli. Það er ómetanlegt að vita til þess að til sé fólk sem er tilbúið að leggja á sig að koma í skólann, til að aðstoða börn sem á því þurfa að halda, einungis ánægjunnar vegna,“ segir Jóhann Geirdal, skólastjóri Holta- skóla, á heimasíðu Reykjanesbæj- ar. Ákveðið var að prófa að veita börnum, sem ekki gátu fengið nauðsynlega lestrarþjálfun heima fyrir, aðstoð „lestraramma“ og „lestrarafa“. Samkvæmt mælingum heppnaðist tilraunin vel og greina mátti jákvæðar framfarir í lestrin- um hjá þeim sem tóku þátt. Á myndinni eru Jóhann Geirdal skólastjóri, María Sjöfn Helga- dóttir lestrarþjálfari, Guðbjörg Rut Þórisdóttir lestrarfræðingur Holta- skóla og Harpa Þorvaldsdóttir lestrarþjálfari. Alfreð var á sjúkrahúsi Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformaður OR, hafði mik- inn áhuga á að mæta fyrir út- tektarnefndina sem skilaði á miðvikudag svartri skýrslu um fyrirtækið. Alfreð hafði hins vegar ekki tök á að mæta á fund nefndarinnar vegna langvarandi sjúkrahúslegu, að því er segir í til- kynningu frá nefndinni. Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, mætti heldur ekki til fundar við nefndina þrátt fyrir margar beiðn- ir en á því hafa ekki fengist skýr- ingar. Óviss Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, íhugar framboð í Kraganum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.