Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Síða 12
20 Hrunverjar áfram á þingi
12 Fréttir 12.–14. október 2012 Helgarblað
K
rafan um endurnýjun á Al-
þingi hefur verið hávær eft-
ir hrun. Ef þeir þingmenn
sem gefa kost á sér í próf-
kjöri fyrir næsta kjörtímabil
ná allir kjöri verða 20 hrunverjar á
þingi eftir næstu kosningar. Þetta
miðast við að orðið hrunverji þýði
þingmaður sem var í ríkisstjórn-
arflokki á árunum fyrir hrun. Með
„hrunverja“ er auðvitað ekki átt við
hann beri alla ábyrgð á efnahags-
hruninu en hafi engu að síður verið í
áhrifastöðu þegar hrunið varð. Þessir
20 þingmenn eru í allir í Sjálfstæðis-
flokknum (ellefu talsins) og Samfylk-
ingunni (níu talsins).
Í þriðja flokknum sem stýrði
landinu í aðdraganda hrunsins,
Framsóknarflokknum, verður orðin
algjör endurnýjun eftir að ljóst varð
að Birkir Jón Jónsson ætlaði að draga
sig í hlé, en hann hefur setið á þingi
frá árinu 2003. Höskuldur Þór Þór-
hallsson settist reyndar á þing árið
2007 en Framsóknarflokkurinn var
þá í stjórnarandstöðu. Þá má nefna
að Eygló Harðardóttir settist óvænt
á þing haustið 2008, rétt fyrir efna-
hagshrunið.
Erfitt að komast að
Óvenju mikil endurnýjun var á þing-
mönnum í kosningunum 2009 þegar
26 nýir þingmenn tóku sæti á Al-
þingi. Kosið var í kjölfar búsáhalda-
byltingarinnar eftir háværa kröfu
um uppstokkun. Þessar raddir heyr-
ast enn. Stefanía Óskarsdóttir stjórn-
málafræðingur bendir á að það sé afar
snúið fyrir nýtt fólk að komast að hjá
öðrum af stóru flokkunum. Þeir sem
séu eldri og hafi starfað lengi á vett-
vangi stóru flokkanna hafi mikið for-
skot á þá sem koma nýir inn. Ógnar-
mikið verk sé að kynna sig fyrir öllum
og afla sér fylgis í stórum hreyfingum.
Ef til vill þess vegna gangi endurnýj-
un hægar í Sjálfstæðis flokknum og
Samfylkingunni. „Það að vera stjórn-
málamaður er ákveðið fag. Maður
þarf mikla færni og góða „kontakta“.
Það getur tekið áratugi að þjálfa sig í
að vera stjórnmálamaður og komast í
efsta lagið. Sérstaklega í stærri flokk-
um. Í litlum flokki eins og VG var lengi
þarf minna til að ná til allra.“ Hún seg-
ir að prófkjörin séu mikill þröskuldur
fyrir þá sem koma nýir inn. Þar þarf
að keppa við þá sem fyrir eru. Þá þurfi
fólk oft að taka á sig mikla launalækk-
un auk þess sem erfitt geti verið fyr-
ir stjórnmálamenn, sérstaklega kon-
ur, að komast að í annarri vinnu að
stjórnmálaferli loknum.
Flestir ganga í hlutverkin
Stefanía er ekki á því að ásýnd þings-
ins hafi breyst eftir hrun, þó margir
nýir þingmenn hafi komið inn. Flest-
ir hafi gengið inn í þau hlutverk í rót-
grónu flokkunum sem hafi þróast
í áratugi. Þau hlutverk felast með-
al annars í því að standa saman út á
við, tala einum rómi á þingi og greiða
atkvæði eins og fyrir sé lagt. Undan-
tekningar séu þó Lilja Mósesdóttir
og Atli Gíslason sem hafi snúist gegn
forystu VG og klofið sig frá flokknum.
„Þar sáum við fólk sem dró visku for-
ystunnar í efa. Og það leiddi ef til vill
til þess að við fengum þessa þjóðar-
atkvæðagreiðslu um Icesave. Það
styrkti kröfuna um beint lýðræði og
setti valdi þingsins skorður,“ segir hún
og bætir við: „En ef við lítum á stóru
myndina þá hefur ekkert stórkostlegt
breyst.“
Forystan framfylgi stefnunni
Stefanía segir að í stjórnmálunum
togist stefnan á við mennina. Bæði
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi eftir hrun lagt áherslu á
að forysta flokkanna framfylgi stefnu
þeirra í auknum mæli. Hún segir það
sína tilfinningu að krafan um endur-
nýjun sé fyrst og fremst krafa eft-
ir andlitslyftingu flokkanna. „Fólk
er að leita að góðum fulltrúum sem
n Margir þingmenn voru í áhrifastöðum fyrir hrun n 26 nýir komu inn 2009 n Þungavigtarmenn hætta á þingi í vor
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Sjálfstæðisflokkur
n Árni Johnsen
Settist fyrst á þing 1983
n
Ásbjörn Óttarsson
Settist fyrst á þing 2009
n
Birgir Ármannsson
Settist fyrst á þing 2003
n
Bjarni Benediktsson
Settist fyrst á þing 2003
n
Einar K. Guðfinnsson
Settist fyrst á þing 1991
n
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Settist fyrst á þing 2003
n
Illugi Gunnarsson
Settist fyrst á þing 2007
n
Jón Gunnarsson
Settist fyrst á þing 2007
n
Kristján Þór
Júlíusson
Settist fyrst á þing 2007
n
Ólöf Nordal
Settist fyrst á þing 2007
n
Pétur H. Blöndal
Settist fyrst á þing 1995
n
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Settist fyrst á þing 2007
n
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Settist fyrst á þing 2007
n
Tryggvi Þór
Herbertsson
Settist fyrst á þing 2009
n
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Settist fyrst á þing 2009
n
Þorgerður K.
Gunnarsdóttir
Settist fyrst á þing 1999
Samfylking
n
Katrín Júlíusdóttir
Settist fyrst á þing 2003
n
Árni Páll Árnason
Settist fyrst á þing 2007
n
Ásta R.
Jóhannesdóttir
Settist fyrst á þing 1995
n
Björgvin G.
Sigurðsson
Settist fyrst á þing 2003
n
Guðbjartur
Hannesson
Settist fyrst á þing 2003
n
Helgi Hjörvar
Settist fyrst á þing 2003
n
Jóhanna
Sigurðardóttir
Settist fyrst á þing 1978
n
Jónína Rós
Guðmundsdóttir
Settist fyrst á þing 2009
n
Kristján L. Möller
Settist fyrst á þing 1999
n
Lúðvík Geirsson
Settist fyrst á þing 2011
n
Magnús Orri Schram
Settist fyrst á þing 2009
n
Mörður Árnason
Settist fyrst á þing 2003
n
Oddný G.
Harðardóttir
Settist fyrst á þing 2009
n
Ólína
Þorvarðardóttir
Settist fyrst á þing 2009
n
Róbert Marshall
Settist fyrst á þing 2009
n
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
Settist fyrst á þing 2009
n
Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir
Settist fyrst á þing 2009
n
Skúli Helgason
Settist fyrst á þing 2009
n
Valgerður
Bjarnadóttir
Settist fyrst á þing 2009
n
Össur
Skarphéðinsson
Settist fyrst á þing 1991
VG
n
Álfheiður Ingadóttir
Settist fyrst á þing 2007
n
Árni Þór Sigurðsson
Settist fyrst á þing 2007
n
Björn Valur Gíslason
Settist fyrst á þing 2009
n
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Settist fyrst á þing 2009
n
Jón Bjarnason
Settist fyrst á þing 1999
n
Katrín Jakobsdóttir
Settist fyrst á þing 2007
n
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Settist fyrst á þing 2009
n
Steingrímur J.
Sigfússon
Settist fyrst á þing 1983
n
Svandís
Svavarsdóttir
Settist fyrst á þing 2009
n
Þráinn Bertelsson
Settist fyrst á þing 2009
n
Þuríður Backman
Settist fyrst á þing 1999
„En ef við
lítum á
stóru myndina þá
hefur ekkert stór-
kostlegt breyst
það getur speglað sig í,“ segir hún. Þó
séu þeir til sem vilja losna við flokk-
ana og kjósa fólk í staðinn. Persónu-
kjör þurfi þó ekki endilega að þýða
að auðveldara verði fyrir nýja fram-
bjóðendur að komast að. Þeir sem
séu þekktir og hafi bakland í stór-
um flokkum hafi mikið forskot á nýtt
fólk. n