Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Page 23
Ég hef ákveðið að segja skilið við Samfylkinguna Hafði drukkið einu sinni um 14 ára aldur Róbert Marshall gengur til liðs við Bjarta framtíð. – DVUngmenni segja foreldra ekki eiga að senda unglinga of snemma í meðferð. – DV Spurningin „Bara „chill“ með vinunum.“ Hákon Örn Harðarson 16 ára nemi „Ég ætla að læra.“ Eygló Dögg Ólafsdóttir 16 ára nemi „Ég er að fara að keppa í körfu- bolta.“ Andrea Rán Snæfeld 16 ára nemi „Er að fara að keppa í fótbolta.“ Hrund Hauksdóttir 16 ára nemi „Ég er að fara upp í sveit að hitta fjölskylduna.“ Inga Júlía Ólafsdóttir 27 ára ferðamálafrömuður Hvað er á döf­ inni um helgina? 1 Segir Lopez skorta siðferðis­kennd Skákmeistarinn Garry Kasparov gagnrýnir Jennifer Lopez fyrir að skemmta Vladimír Pútín. 2 Íslendingar komast ekki á kaffihús vegna ferðamanna Þór Saari óttast ágang ferðamanna á Íslandi. 3 Stevie Nicks um Nicki Minaj: „Hefði myrt hana“ Söngkonan ósátt við framkomu Minaj í garð Mariuh Carey í American Idol. 4 Spáði því fyrir ári að Róbert gengi til liðs við Guðmund Guðni Ágústsson sagði Össur Skarphéðinsson vera leikstjórann í hrókeringunum. 5 „Saari setur þarna met í útlendinga­andúð“ Teitur Atla- son ósáttur við ummæli Þórs um að of margir ferðamenn heimsæki Ísland. 6 Róbert fundaði með Jóhönnu Róbert Marshall tilkynnti for- manninum um brotthvarf sitt úr Samfylkingunni. 7 Róbert ver ríkisstjórnina vantrausti Róbert Marshall ætlar að styðja stjórnina til loka kjörtímabilsins. Mest lesið á DV.is Ákæran þingfest Ákæra sérstaks saksóknara gegn Lýði Guðmundssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Exista, var þingfest á fimmtudaginn. Málið snýst um meint lögbrot hans í hlutafjáraukningu Exista árið 2008. Hann sést hér í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudaginn ásamt Gesti Jónssyni hæstaréttarlögmanni. Mynd Sigtryggur ariMyndin Umræða 23Helgarblað 12.–14. október 2012 Clara og Katla hafa húmor fyrir veikindum sínum. – DV Það þýðir ekkert annað Leyfðu þeim ekki að ljúga Þrælslund ríkisstjórnarinnar er þjóðinni dýrkeypt Í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðs­ ins um efnahagsástandið í heiminum viðurkennir sjóðurinn að efnahags­ áætlun eins og sú sem AGS keyrði hér í gegn eftir hrun sé kreppudýpkandi. Í október 2008 varaði ég eindregið við efnahagsáætlun AGS og vísaði í slæma reynslu annarra þjóða. Efnahagsáætlun AGS var hins vegar framfylgt af mikilli fylgispekt og afar háir vextir hækkaðir enn frekar og samþykkt að skera niður 200 milljarða halla á fimm árum. Reynsla annarra þjóða af fjármála­ kreppum sýndi að hátt vaxtastig í landi þar sem heimili og fyrirtæki berjast við of mikla skuldsetningu eftir hrun hluta­ bréfa­ og fasteignaverðs dregur veru­ lega úr fjárfestingum einkageirans og þar með vexti hagkerfisins. Hjarðhag­ fræðingar háskólanna og fylgisfólk efna­ hagsstefnu AGS gerði lítið úr reynslu kreppuþjóða og rökum þeirra sem gagn­ rýndu efnahagsstefnu AGS. Sultaról al­ mennings var hert með hækkun skatta og niðurskurði ríkisútgjalda í samræmi við efnahagsáætlun AGS. Samkvæmt skýrslu AGS er aðhalds­ söm peninga­ og ríkisfjármálastefna á sama tíma og ekkert gengur að fá fjár­ málastofnanir til að afskrifa skuldir kreppudýpkandi. „Norræna velferðar­ stjórnin“ getur ekki borið fyrir sig þekk­ ingarleysi á kreppufræðum núna þegar hún þarf að að skýra fyrir almenningi hvers vegna hún kom markvisst í veg fyr­ ir að lífskjör yrðu betri en raun ber vitni. Við vorum nokkur í þingflokki VG sem reyndum að sannfæra aðra stjórn­ arliða árið 2009 og 2010 um nauðsyn þess að fara hægar í niðurskurðinn til að vinna gegn neikvæðum áhrifum of hás vaxtastigs og skuldakreppu heimila og fyrirtækja. Þegar ljóst var að barátta okk­ ar yrði árangurslítil gripum við Atli Gísla­ son og Ásmundur Einar Daðason til þess neyðarúrræðis að sitja hjá við afgreiðslu fjárlaga í desember 2010. Viðbrögðin við hjásetu okkar voru ásakanir um að við værum að gera lítið úr fjárlaganefnd og forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardótt­ ir, bað okkur um að íhuga stöðu okkar í stjórnarliðinu. Eftir þessa uppákomu var okkur þremenningunum ekki lengur vært í stjórnarliðinu. Þvert á efnahagsáætlun AGS sem „norræna velferðarstjórnin“ innleiddi í blindni, ráðleggur AGS nú kreppulönd­ um að taka upp lausbeislaða peninga­ málastefnu. Slík stefna hér á landi myndi krefjast vaxtalækkunar og afnáms verð­ tryggingar. Jafnframt leggur AGS áherslu á að tapaðar skuldir í bankakerfinu verði afskrifaðar en „norræna velferðarstjórn­ in“ kaus frekar að hvetja heimili og fyr­ irtæki til að fara í langdregin dómsmál til að ná fram rétti sínum til skuldaleið­ réttinga. Dómstólaleiðin hægir ekki að­ eins á efnahagsbatanum heldur mis­ munar fólki eftir því hvar það tók lán og hvort það hafði efni á að standa í skilum eftir hrun. Kreppudýpkandi efnahagsstefna AGS hér á landi hefur dregið úr efnahagsbat­ anum sem alltaf fylgir í kjölfar banka­ hruns. Lífskjör almennings á Íslandi eru því verri og skuldir hins opinbera hærri en ella hefði orðið. Efnahagsáætl­ un AGS er á ábyrgð Samfylkingar, Sjálf­ stæðisflokks og Vinstri grænna en þessir flokkar hafna afnámi verðtryggingar og almennri skuldaleiðréttingu. Nú er það okkar að hafna í næstu kosningum flokk­ um sem markvisst hafa skert lífskjör í landinu eftir hrun með rangri efnahag­ stefnu. V ið vitum öll að aumingjadómur­ inn ríður ekki við einteyming hjá Framsókn og Sjálfstæðis­ flokki þegar nýja stjórnarskrá ber á góma. Ekki það að ég treysti stjórn­ málamönnum til að taka endanlega ákvörðun um það hvað stjórnarskrá eigi að innihalda, en samt sem áður hefði ég haldið að þeir hefðu ögn af döngun; gætu kannski einu sinni á ævinni leyft sér að sýna vott af hugrekki og gætu jafn­ vel látið glitta í sanngirni og réttlæti. Nei, þá er það íhaldsóttinn sem tekur við. Ég var að vona að menn sýndu stuðning, en sé þá, að þingmenn Vinstri grænna eru með svo skelfilegan íhaldsótta að þeir þora ekki að segja hug sinn varðandi nýja stjórnarskrá. Þeir eru svo hræddir um að sjallaballar verið í oddaaðstöðu eftir næstu kosningar. Og ekki vill mað­ ur styggja þann sem á vendinum held­ ur. Samtryggingin er sýnileg þeim sem horfa og einnig þeim sem líta undan. Tveir flokkar, sem núna eiga fulltrúa á hinu háa Alþingi, státa af því að hafa opinberlega lýst yfir stuðningi við nýja stjórnarskrá og hafa virkilega sýnt að vilja til þeirra verka skortir ekki. Þetta eru Samfylkingin og Borgarahreyfingin. Hin­ ir flokkarnir virðast einungis skarta fólki sem hefur óttann sem sitt aðalsmerki; gunnfáni grátkórsins fær þar að blakta í fúlli golu þeirra sem óttast peningaöfl­ in. Að vísu lít ég á það sem stuðning við nýja stjórnarskrá, að Mogginn og íhaldið skrifi gegn henni. Slík skrif sýna okkur nefnilega hversu hættuleg nýja stjórn­ arskráin er þeim ólýðræðislegu vinnu­ brögðum sem Dabbi litli blaðasnápur og slefberar kvótakónga vilja helst af öllu flíka. Og svo ber að þakka framsóknar­ mönnum fyrir auglýsinguna sem þeir settu á netið fyrir síðustu kosningar. En þar er þess krafist að Íslendingar fái nýja stjórnarskrá. Eins ber að þakka órólegu deildinni í VG fyrir stuðninginn; þögnin þar á bæ hefur svo sannarlega verið mál­ stað okkar til framdráttar. Það fólk sem vinnur að því að gefa íslenskri þjóð nýja stjórnarskrá, er fólk sem vandar til verka og vinnur fórn­ fúst starf í þágu framtíðar. Um er að ræða einstaklinga sem vilja gefa þjóð­ inni sanngirni, réttlæti og önnur grunn­ gildi sem geta lyft hugsjónum lýðræðis á efsta stall og virkjað allt hið besta sem þjóð hefur að geyma. Um er að ræða þakklátt fólk sem vill gefa þjóðinni, fólk sem ekki hefur annað í hyggju en fagra hugsun sem stuðlað getur að bættum hag fyrir alla Íslendinga. En hvernig á þjóð, sem alist hefur upp við svik, þjófn­ að og lygi, að trúa því að til séu fórnfúsir einstaklingar sem verja ómældum tíma í það að styrkja lýðræði og skjóta sterkum stoðum undir velferð þjóðarinnar? Auðvitað óttast íhaldið nýja stjórnar­ skrá. Ný stjórnarskrá mun nefnilega draga vígtennurnar úr spillingaröflun­ um. Þessa dagana er allt reynt. Virtir lög­ spekúlantar og uppdubbuð gáfumenni eru sett á stall. En þeim er fyrst og fremst ætlað að koma til þjóðarinnar þeim hræðsluáróðri, að veiðar muni leggjast af ef útgerðin fær ekki að ráða öllu, að trú verði bönnuð, að krossinn verði tek­ inn úr fánanum, að landsbyggðin muni glata vægi sínu á þingi. Og svo er því einnig logið, að um sé að ræða skoðana­ könnun. En ég segi ykkur einsog er: Um er að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu, og sú þjóðaratkvæðagreiðsla getur tryggt öll­ um Íslendingum betra líf. Þrjótar landsins þreyttir nú þjóðarspenann sjúga, þeir sýna okkur sanna trú; svíkja, stela, ljúga. Kjallari Lilja Mósesdóttir „Lífskjör almennings á Íslandi eru því verri og skuldir hins opinbera hærri en ella hefði orðið. „Auðvitað ótt­ ast íhaldið nýja stjórnarskrá Skáldið skrifar Kristján Hreinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.