Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Page 36
12.–14. október 2012 Helgarblað
Náttúruleg fegruNarlyf
B
estu fegrunarlyfin eru meðal
annars unnin úr jurtum, kryddi
og ávöxtum sem vaxa í dýpstu
frumskógum jarðarinnar og á
toppum hæstu fjallanna. Inn-
fæddir á þessum svæðum höfðu yfirleitt
uppgötvað virkni þessara náttúrulegu
efna löngu áður en Vesturlandabúar
fóru að nota þau í hinar ýmsu snyrti-
vörur. Oft er þó best að nota jurtirnar,
kryddið og ávextina í hreinu formi, en
ekki sem virk efni í snyrtivörum.
Hér eru nokkur dæmi um náttúru-
leg fegrunarlyf og uppruna þeirra.
Kúrkúma (túrmerik, kryddjurt af
engiferætt)
Kúrkúma er það sem gefur karríi gula
litinn. Það hefur einnig bæði sótt-
hreinsandi eiginleika og bólgueyð-
andi. Það er hefð á Indlandi að brúð-
hjón smyrji á sig mauki úr kúrkúma og
kjúklingabaunum fyrir sjálfan brúð-
kaupsdaginn. Til viðbótar við sótt-
hreinsandi eiginleika kúrkúma þá eru
kjúklingabaunirnar mýkjandi fyrir
húðina og góðar til að fjarlægja dauðar
húðfrumur.
Papaja
Smyrsl úr papajaávextinum er í Ástralíu
talið allra meina bót. Það er sett á sól-
brennda húð, skordýrabit, varaþurrk og
bara einfaldlega notað sem mýkjandi
krem á húðina alla.
Shea-smjör (shea butter)
Shea-smjörið er mjög vinsælt um þess-
ar mundir og er mikið notað í ýmiss
konar krem. Það er unnið úr hnetum
af karite-trjánum sem vaxa í Vestur-
Afríku. Sá eiginleiki shea-smjörsins að
bindast vatni verndar húðina og dregur
úr hrukkumyndun.
Óléttar konur í Vestur-Afríku hafa
í gegnum tíðina nuddað shea-smjöri
á líkamann, þá sérstaklega magann,
til að húðin fari betur þegar teygist á
henni. Konur á Vesturlöndum eru nú
farnar að gera slíkt hið sama til að koma
í veg fyrir slit.
Argan-olía
Í Afríku hefur lengi verið talað um
olíuna sem eitt af undrum náttúrunn-
ar og eru Vesturlöndin að uppgötva
hana. Það voru konur úr Berbere-þjóð-
flokknum í Marokkó sem fóru að vinna
olíuna úr hnetum af argan-trjánum.
Er hún einstaklega rík af E-vítamíni og
fitusýrum sem hægja á öldrun húðar-
innar. Argan-olían er góð í baráttunni
við allt frá unglingabólum til þess að
draga úr hrukkumyndun. Þá er gott að
setja hana í hárið til að ná fram falleg-
um gljáa.
Monoi-olía
Konur á Tahiti hafa notað olíuna í gegn-
um tíðina bæði á húð sína og hár. Olían
hefur einstaklega mýkjandi áhrif og
verndar einnig bæði húð og hár fyrir
skemmdum. Þá spillir ekki fyrir að hún
lyktar einnig vel.
Kamelíuhnetuolía
Japanskar konur hafa notað olíuna
til að næra og mýkja húð sína. Þá hef-
ur olían verið borin á brunasár, slit og
til að styrkja neglur. Hún er rík af E-
vítamínum og andoxunarefnum. Tveir
dropar af kamelíuhnetuolíu út í eina
teskeið af hrísgrjónavíni er hin full-
komna blanda til að ná fram fallegri
og mýkri húð.
Lárpera
Lárperur eru ekki bara hollur og góð-
ur matur heldur eru þær einnig góð-
ar fyrir húð og hár. Ávöxturinn er
fituríkur og inniheldur E-vítamín en
suðuramerískar konur í gegnum tíð-
ina hafa notað hann til að næra húð
sína og hár. Í raun er nánast hægt að
nýta alla hluta lárperunnar, meira að
segja börkinn. Það er gott að nudda
honum á andlitið á sér en hann er
ríkur af lárperuolíu og áferðin losar
um dauðar húðfrumur. Þessi sam-
setning er mjög góð í baráttunni við
ýmis húðvandamál. Einnig getur
verið gott að gera andlitsmaska úr
lárperu og hunangi sem dregur úr
bólgum.
Næturgalaskítur
Þetta kann að hljóma bæði furðu-
legt og ógeðfellt en næturgalaskítur
hefur verið notaður í Japan til að
jafna húðlit og ör eftir bólur. Skítur-
inn sem er ríkur af próteini og hvítt-
unarensímum er sótthreinsaður og
úr honum búið til duft sem stund-
um er blandað með hrísgrjóna-
hýði. Duftinu er makað á andlitið og
hreinsað af með vatni. n
n Ýmsar kryddjurtir og ávextir gera kraftaverk fyrir húð og hár n Þú getur útbúið þín eigin fegrunarlyf
Lárpera Hægt
er að nýta nánast
alla lárperuna,
bæði til matar og í
fegrunarskyni.
Papaja Smyrsl
úr ávextinum er
talið allra meina
bót í Ástralíu
Shea-smjör
Barnshafandi konur
smyrja gjarnan á sig
shea-smjör til að koma
í veg fyrir slit á húð.
Argan-olía
Undraolía sem
notuð er á allt
frá unglingaból-
um til hrukkna.
36 Lífsstíll
E
gils Appelsín hefur verið
framleitt af Ölgerð Egils
Skallagrímssonar í núver-
andi mynd síðan 1955. Síð-
an framleiðsla hófst hefur
Egils Appelsín alltaf notið mikillar
hylli meðal íslenskra neytenda, sér-
staklega í kringum jólin en sú hefð
að blanda saman Egils Malti og Egils
Appelsíni hófst mjög fljótlega eftir að
varan kom á markað. Um uppruna
þeirrar hefðar er ekki nákvæm-
lega vitað, en einhverjar kenningar
eru uppi um að það hafi verið til að
drýgja maltið, þar sem Egils Malt
var dýrara en Egils Appelsín og þótti
mikil munaðarvara í þá daga. Hvað
sem því líður upphófst strax ágrein-
ingur milli fólks um hvað væri „rétta
blandan“, hversu stórt hlutfall app-
elsíns ætti að vera og hvort ætti að
fara í könnuna á undan – maltið eða
appelsínið o.s.frv. Þessi ágreiningur
er óleystur nú 57 árum síðar. Nýtt út-
lit var kynnt nýverið en forvitnilegt
er að skoða hvernig drykkurinn hef-
ur verið kynntur síðustu áratugina
og ljóst að tískusveiflurnar hafa ver-
ið miklar. n
kristjana@dv.is
n Miklar útlitsbreytingar
Appelsín í
gegnum tíðina
Tískusveiflur
Útlitið hefur breyst
með tímanum.