Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Blaðsíða 52
52 Fólk 12.–14. október 2012 Helgarblað Hvað er að gerast? 12.–14. október Föstudagur12 okt Laugardagur13 okt Sunnudagur14 okt Einleikur um skáld Kómedíuleikhúsið á Ísafirði, í samvinnu við Norðurpólinn, sýnir einlægan og átakanlegan einleik um skáldið Magnús Hj. Magnússon – Ljósvíkingur - skáldið á þröm. Einleikurinn var sýndur vestur á fjörðum í vor og sumar við gríðarlega góð- ar undirtektir. Sýningar á verkinu verða í Norðurpólnum á föstudag og sunnudag. Norðurpóllinn Retro Stefson á Græna Hattinum Sveitin knáa heldur útgáfutónleika á Græna Hattinum á Akureyri. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00. Uppselt hefur verið á tónleika sveitarinnar í Reykjavík. Í byrjun mánaðar kom út þriðja hljómplata Retro Stefson og ber hún nafn sveitarinnar. Á plötunni er að finna tíu ný lög með hljóm- sveitinni þar á meðal Qween og Glow sem hafa gert það gott. Græni Hatturinn 22.00 Friðartónleikar í Hörpu Sumir segja að andstæðan við stríð sé ekki friður, heldur sköpun. Í aðdraganda Reykjavik Peace Þing, stærsta friðarþings sem haldið hefur verið á Íslandi, munu þrjár íslenskar hljómsveitir virkja sköp- unarkraft sinn og flytja friðarboðskap í tónum og takti. Það eru Ojba Rasta, Tilbury og Bloodgroup. Norðurljósasal Hörpu 20.00 Hvanndalsbræður í Hofi Hljómsveitin ætlar að fagna tíu ára stórafmæli sínu á þremur stöðum á landinu, Miðgarði í Skagafirði, Hofi á Akureyri og Tjarnarbíói í Reykjavík. Jafnan er mikið um dýrðir á tónleikum sveitarinnar og verður ekki slegið slöku við í þetta sinn, sem dæmi má nefna hið sígilda happadrætti, faglega föndur- hornið, myndasýningu ásamt kynningu á límkítti og SÁÁ álfabrennu að ógleymdri tónlistinni sem mun leika lykilhlutverk. Hofi 20.00 Minningartónleikar um Ellý Vilhjálms Minningartón- leikar um Ellý verða haldnir í Laugardals- höll og verða glæsilegir í alla staði. Einstakur ferill hennar verður rifjaður upp í máli og myndum, tónlist og myndskeiðum. Laugardalshöllinni verður breytt í tímavél og gestir munu eiga kost á því að hverfa aftur til 7. áratugarins í eina kvöldstund. Ættingjar Ellýjar standa að tónleikunum ásamt Senu og munu ýmsir samferðamenn og vinir stíga á svið. Laugardalshöll 20.00 Söngkonur stríðsára í Iðnó Það var síðasta vor sem hinir marg- rómuðu tónleikar „Söngkonur stríðs- áranna“ voru fluttir í Iðnó og víðar við gríðargóðar undirtektir. Kristjana Skúladóttir leikkona ætlar ekki að láta staðar numið því tónleikarnir fara nú aftur á fjalirnar í Iðnó og þannig ætlar hún að fylgja eftir nýútkominni plötu sem ber sama titil. Iðnó 20.00 M argt var góðra gesta í Norðurljósasal Hörpu þegar veitt voru friðar­ verðlaun LennonOno. Verðlaunin fengu að þessu sinni fimm alþjóðlegir friðar­ sinnar, þeirra þekktastur er tónlist­ arkonan Lady Gaga. Mesta eftir­ væntingu vakti Lady Gaga og gestir voru nokkuð alvarlegir á brún, eins og Íslendingum hættir til að verða þegar þeir eru í návist heimsþekkts fólks. Ljósmyndari sem myndaði gesti þurfti ítrekað að biðja gesti að slaka á og brosa svolítið. „Rosalega eru allir stífir,“ sagði hann og hélt áfram að reyna að fá fólk til að lyfta brúnum. Sóley Tómasdóttir og Hanna Birna gengu saman til móttökunnar og vakti athygli hversu vel fór á með þeim. Sólveig Káradóttir var mætt með móður sinni, Sean Lennon er vinur hennar og var hún mætt til að sýna hon­ um stuðning. Borgarstjór­ inn vakti svo að sjálfsögðu athygli í jedi­búning sínum en hann og eiginkona hans gengu saman, bæði í skósíð­ um kirtlum, nema eiginkon­ an í öllu glaðlegri litum. Gestir komust við Rachel Corrie var minnst og fékk hún viðurkenningu fyr­ ir baráttu sína fyrir mann­ réttindum. Rachel lést þegar ísraelsk jarðýta ók yfir hana þann 16. mars 2003 þegar hún reyndi að stöðva eyði­ leggingu ísraelska hersins á heimili palestínskar fjöl­ skyldu á Gaza. Foreldrar Rachel tóku við viðurkenn­ ingunni og gestir komust við þegar móðir hennar sagði: „Rachel er einhvers staðar brosandi núna.“ Hún las svo upp úr bréfi sem Rachel hafði sent for­ eldrum sínum stuttu fyrir dauða sinn. Þá var mættur rithöfundurinn John Perkins sem dró að sér athygli heimsins með útgáfu bókarinn­ ar Confessions of an Economic Hit Man sem trónaði á toppi metsölu­ listans í New York Times í meira en heilt ár. Bókin ljóstrar á magnaðan hátt upp um hina alþjóðlegu spill­ ingu sem hann segir soga að sér auðlindir vanmáttugra þjóða. John hélt stutta tölu og sagðist trúa því að mannkynið væri á brún byltingar. Við værum hætt að vilja þjóna hag­ kerfi sem byggir á dauða og farin að átta okkur á því að við eigum val hvað varðar að þjóna öðrum gildum. Mesta trú hafði hann á því að konur taki til sín auk­ in völd. „Mesta breytingin felst í því að konur taki til sín aukin völd og karlar efli sínar mjúku hliðar,“ sagði John Perkins. Hreifst einnig af borgarstjóra Ekkja Christopher Hitchens tók við viðurkenningu fyrir hans hönd og var snortin yfir borgarstjóra eins og Lady Gaga, Yoko Ono og fleiri. Christopher var rit­ höfundur og blaðamaður. Ferill hans spannar meira en 40 ár en hann skrifaði fyrir marga áhrifa­ ríka fréttamiðla svo sem The Atl­ antic, The Nation, Vanity Fair, The Daily Mirror og marga fleiri. Róttæku femínistarnir í pönkhljómsveitinni Pussy Riot fengu viðurkenningu sína í New York þann 21. septem­ ber síðastliðinn í von um að þær yrðu leystar úr haldi. Það gerði Yoko í samstarfi við Amnesty International. Stúlka í hjólastól beið eftir Lady Gaga Fjöldi ungmenna beið fyrir utan Norð­ urljósasal og fyrir utan Hörpu sjálfa í von um að berja Lady Gaga augum. „Við fengum frí úr tíma,“ sagði ung stúlka úr Réttarholtsskóla. Móðir var mætt með unga dóttur sína í hjólastól. Þegar ljóst varð að Lady Gaga kæmi ekki út um fyrirfram ætlaðan útgang, hljóp hún á harðaspretti með dóttur sína að lyftunni. Unga stúlkan þráði að hitta Lady Gaga og vonandi tókst það. n „Rachel er einhvers staðar brosandi núna“ n Móðir Rachel Corrie tók við friðarverðlaunum n Gestir alvarlegir á brún Ólmir aðdáendur Krakkar tóku sér frí frá skóla til að berja Lady Gaga augum. Foreldrar Rachel Móðir Rachel hélt fallega ræðu um dóttur sína. Innblásin ræða Lady Gaga hélt einlæga ræðu um baráttu sína fyrir friði og mannréttindum. „Mesta breytingin felst í því að kon- ur taki til sín aukin völd og karlar efli sínar mjúku hliðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.