Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Page 17
ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLA
hengi við aðrar þjóðhagsreikningastærðir svo
sem þjóðarframleiðsluna og heildarverðmæta-
ráðstöfun þjóðarinnar.
Tölur Framkvæmdabankans eru annars veg-
ar fundar með því að meta þjóðartekjurnar á
grundvelli skattaframtala með viðeigandi við-
bótum og lagfæringum, og hins vegar með því
að nota hið kerfisbundna samhengi þjóðartekn-
anna við heildarverðmætaráðstöfun þjóðarinn-
ar þau ár, sem slíkt mat hefur verið gert fyrir.
Þjóðartekjur og framtaldar nettótekjur.
Hagstofa Islands birtir ár hvert yfirlit yfir
nettótekjur framtalsskyldra einstaklinga og
félaga, bæði skattgreiðenda og skattlausra.
Þessar nettótekjur koma fram við það að frá
brúttótekjum eftir framtölum hefur verið
dreginn allur rekstrarkostnaður í venjulegum
skilningi, en auk þess ýmsir aðrir liðir, sem
skattalögin leyfa að draga frá, en eru í eðli
sínu ráðstöfun á tekjunum.
Ennfremur undanskilja skattalög og önnur
lög ýmsa tekjustofna frá framtali og þar með
skattskyldu, og margar stofnanir og samtök
eru ekki framtalsskyldar varðandi tekjur, er
ella væru taldar nettótekjur í skilningi skatta-
laganna.
Hins vegar telja skattalögin til tekna hjá
einstaklingum ýmsar tilfærslutekjur, svo sem
gjafir og bætur frá liinu almenna trygginga-
kerfi.
Þegar tilraun er gerð til þess að meta tekj-
ur þjóðarinnar einstök ár, og til þess að meta
þær breytingar, sem verða milli ára, þarf að
taka tillit til alls þessa, og að auki þarf að
gera áætlun um þær tekjur sem hefðu átt að
teljast til nettótekna í skilningi skattalaganna,
en ekki hafa verið þannig taldar, annað hvort
af vangá eða vísvitandi. Þá liði til viðbótar
eða frádráttar, sem hér eru nefndir, er all-
flesta hægt að áætla með nokkurri vissu, nema
hinar framtalsskyldu en óframtöldu nettótekj-
ur. Þær er ekki hægt að meta beint. Hins
vegar er kerfisbundið samband milli heildar-
verðmætaráðstöfunar þjóðarinnar til neyzlu
og eignaaukningar, og þeirrar upphæðar, þjóð-
arteknanna, sem hér er verið að leita að. Sé
því búið, fyrir eitt eða fleiri ár, að meta
þjóðartekjurnar bæði frá verðmætaráðstöfun-
arhliðinni og frá tekjuframtalshliðinni, en þó
án þess að reikna með skattsvikum og öðrum
ástæðum fyrir vantöldum skattskyldum nettó-
tekjum, þá geta þær upphæðir, er fást með
þessum tveimur óháðu aðferðum, gefið nokkra
vísbendingu um hinar vantöldu nettótekj-
ur. I yfirlitstöflu um „þjóðarframleiðslu, verð-
mætaráðstöfun og þjóðartekjur" er sýnd
neyzla, fjármunamyndun og birgðabreytingar
árin 1957—1960, en samtala þessara stærða er
heildarverðmætaráðstöfun þjóðarinnar. í sömu
töflu má sjá hið kerfisbundna samband þjóð-
arteknanna við verðmætaráðstöfunina. Sé nú
það mat á þjóðartekjunum, sem þessi aðferð
gefur, borin saman við það mat er fæst að
tekjuframtalsleiðinni, verður niðurstaðan þessi:
Þjóðartekjur 1957 1958 1959 1960
1) Frá verðmætaráð- mkr mkr mkr mkr
stöfunarhliðinni .. . 2) Frá tekjuframtals- 4318 5109 5709 5694
liliðinni 3907 4476 4911 5343
3) Mismunur 411 733 798 351
4) Mism. sem % af (1) 9.5% 14.3% 14.0% 6.2%
Ósamræmið er að meðaltali 11%, en mis-
munandi hin einstöku ár. Nú þykir sennilegt,
að sú tala, sem hér er leitað að, sem sé sú
hundraðstala, sem hækka þarf mat þjóðar-
tekna um árin 1945—1956, til samræms við
mat þjóðartekna 1957—1960, reiknað frá ráð-
stöfunarhliðinni, sé nokkuð stöðug ár frá ári.
Ennfremur verður að hafa í huga þá miklu
óvissu, er loðir við útreikninga þessarar teg-
undar. Niðurstaðan varð því sú, að þjóðar-
tekjutölur áranna 1945—1956 voru allar hækk-
aðar um slétt 10%. Onnur veigamikil ástæða
fyrir því að valin var frekar lág leiðréttingar-
(Framhald á bls. 27)
15