Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Síða 9

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Síða 9
FRJÁLSHYGGJA OG SKIPULAGSHYGGJA undantekningarlaust verið sammála um, að þær ákvarðanir, sem teknar hafa verið í stjórn efnahagsmála á hverjum tíma, hafi átt rétt á sér við ríkjandi aðstæður, hvort sem þær hafa frekar fylgt sjónarmiðum frjálshyggju eða skipulagshyggju. Rás atburðanna hefur stjórn- að mönnunum miklu frekar en mennirnir at- burðarásinni. Það má benda á margar ástæður því til skýr- ingar, að stjórn efnahagsmála hefur þróazt með svo ólíkum hætti hér og í nágrannalönd- unum. Það skiptir að sjálfsögðu miklu máli, að á fjórða tug aldarinnar urðu hér þeir stjóm- málaatburðir, er mótuðu aðra flokkaskipun en í flestum nágrannalandanna. Það skiptir einn- ig miklu máli, að skipulag, stefna og starfs- hættir verkalýðshreyfingarinnar hafa þróazt hér með nokkru öðru móti en víðast hvar ann- ars staðar. Þá skiptir það máli, að samband íslands við umheiminn er furðu slitrótt, jafn- náið eins og það er að mörgu leyti. Tízkustefn- ur berja hér að dyrum, og gera sig jafnvel heimakomnar löngu eftir að vegur þeirra er allur annars staðar. En þær hreyfingar, sem varanlegust mót setja á samtímann, geta aftur á móti gengið hjá garði svo lítið beri á. Loks má minna á það, sem mörgum er ríkt í huga, að íslenzkt þjóðfélag er ungt og enn lítt mótað, að íslenzkt efnahagslíf er háðara náttúruöflum og alþjóðlegum markaðssveiflum en yfirleitt gerist og öll stjórn efnahagsmála af þessum sökum torveldari en með þeim þjóðum, sem við bezt þekkjum. Allt þetta skiptir máli og er drjúgt til skýringar. En hér bætist við enn eitt atriði, sem kann að hafa ráðið úrslitum. Fyrstu sjö árin eftir styrjöldina, þau ár, þegar hin nýja skipun efnahagsmála festi rætur í ná- grannalöndunum, voru hér á landi mótuð af einstæðum erfiðleikum. Þjóðartekjur fóru lækkandi á sama tíma og þær fóru hækkandi annars staðar, og viðleitni verkalýðshreyfingar og annarra hagsmunasamtaka beindist að því að verjast áföllum af þessari tekjuþróun. Und- ir slíkum kringumstæðum var varla við því að búast, að víðtæk samstaða gæti skapazt um skipun efnahagsmála né nokkur ný skipun gæti orðið föst í sessi. Sveiflur síðustu þrjátíu ára. Sveiflurnar í stjórn efnahagsmála hér á landi á undanförnum þrjátíu árum hafa verið furðu reglubundnar, eins og áður er vikið að. Um miðjan fjórða tug aldarinnar hefst tímabil ein- dreginnar skipulagshyggju, undir áhrifum þeirra hugmynda, sem þá voru efst á baugi í nágrannalöndunum. Þetta tímabil stendur fram til 1939, þegar ný gengisskráning boðar róttæka stefnubreytingu. Þessi stefnubreyting ásamt þeim blæ, sem stjórn efnahagsmála á styrjaldarárunum yfirleitt hafði á sér, veldur því, að mér virðist eðlilegast að telja styrjaldar- árin frjálshyggjutímabil, þrátt fyrir þau marg- víslegu opinberu afskipti af efnahagsmálum, sem sjálf styrjöldin gerði óhjákvæmileg, og þá aflögun verðkerfisins, sem þá skapaðizt. Hvaða skoðanir, sem menn kunna að hafa á þessu at- riði, getur hitt ekki farið á milli mála, að sú stefna í efnahagsmálum, sem mörkuð er í styrjaldarlokin, ber greinileg merki skipulags- hyggju, og það er í anda þeirrar hyggju, sem snúizt er gegn þeim efnahagsörðugleikum, sem í vaxandi mæh gera vart við sig að styrjöld- inni lokinni. Á árinu 1950 er síðan, eins og al- kunnugt er, breytt um stefnu um svipað leyti og sams konar stefnubreyting fer fram í flest- um nágrannalandanna, en við miklu erfiðari skilyrði en í þessum löndum, eins og ég hef áður minnzt á. Á árinu 1955 er síðan söðlað um að nýju, og á næstu fimm árum er skipu- lagshyggja ráðandi hér á landi á sama tíma og hin nýja stefna í efnahagsmálum stendur með hvað mestum blóma í löndunum um- hverfis okkur. Þróun síðustu ára er mönnum í ferskara minni en svo, að hana þurfi að rekja. Þetta tímabil er hins vegar of nálægt okkur, til þess að við getum greint bylgjuhreyf- ingar þess með jafnskýrum hætti og hreyfingar 7

x

Úr þjóðarbúskapnum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.