Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Qupperneq 10

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Qupperneq 10
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM fyrri tímabila. Eigi að síður getur það ekki farið milli mála, að áhrifa skipulagshyggju á stjórn efnahagsmála hefur gætt í vaxandi mæli á undanförnum tveimur árum, enda þótt ekki sé hægt að tala um skýra stefnubreytingu frá því tímabili frjálshyggju, sem hófst árið 1960. Hér hefur verið stiklað á stóru. Eigi að síð- ur nægir þetta yfirlit til þess að sýna, að hér á landi hafa á undanfömum þrjátíu árum skipzt á tímabil, þar sem ýmist skipulags- hyggja eða frjálshyggja hafa verið þyngstar á metunum. Hvert þessara tímabila hefur stað- ið um það bil fimm ár. Snögg umskipti hafa orðið, þegar frjálshyggja hefur leyst skipulags- hyggju af hólmi. Aftur á móti hefur breytingin frá frjálshyggju til skipulagshyggju farið fram á nokkrum tíma án skarpra tímamóta. Hér hefur ekki aðeins verið um að ræða sveiflur í stjórn efnahagsmála, heldur einnig í efnahagsþróuninni sjálfri. Á þeim tímabilum, sem frjálshyggja hefur verið mestu ráðandi, hefur hagvöxtur verið ör og greiðslujöfnuður við önnur lönd tiltölulega hagstæður. Á þeim tímabilum, sem skipulagshyggja hefur verið mestu ráðandi, hefur hagvöxtur hins vegar verið hægur og greiðslujöfnuður við önnur lönd óhagstæður. Jafnframt hafa hækkanir verðlags og kaupgjalds verið mun örari á tíma- bilum frjálshyggju en á tímabilum skipulags- hyggju- Orsakir sveiflnanna. Rík tilhneiging hefur verið til þess að telja, að þessi einkenni tímabilanna hafi stafað af utanaðkomandi ástæðum, ástandi erlendra markaða, aflabrögðum, tækninýjungum o. s. frv. Samkvæmt þessum skilningi er stjóm efnahagsmála þolandi, en ekki gerandi. Stjórn- arhættir frjálshyggjunnar séu framkvæmanleg- ir vegna hagstæðra ytri aðstæðna, stjómar- hættir skipulagshyggjunnar óhjákvæmilegir vegna erfiðra ytri aðstæðna. Við erum sam- kvæmt þessum skilningi leiksoppur sterkra ytri afla, er valda kröftugum reglubundnum sveifl- um í efnahagslífi okkar og efnahagsstjórn. Enginn getur dregið í efa þýðingu utanað- komandi áhrifa á efnahagsþróun og efnahags- stjórn hér á landi, né heldur það, að land okk- ar hljóti að vera næmara fyrir slíkum áhrifum en mörg ef ekki flest önnur lönd, og hef ég þegar nefnt um þetta skýrt dæmi. En ég held samt sem áður, að okkur myndi sjást yfir meginatriði málsins, ef við létum hér staðar numið. Það eru nú bráðurn þrjátíu ár síðan Benjamín Eiríksson, þá nýkominn frá námi í Svíþjóð, færði rök fyrir því, að gjaldeyrisörð- ugleikamir á árunum fyrir styrjöldina stæðu í nánara samhengi við útlánastefnu íslenzkra banka en við markaðsörðugleika erlendis. Það er einnig erfitt að sjá, að ytri ástæður hafi get- að ráðið úrslitum um það, að hagvöxtur var hér tiltölulega hægur á árunum 1956 til 1960 og miklu hægari en í nágrannalöndunum. Loks er það augljóst, að ytri aðstæður áttu engan þátt í þeirri miklu breytingu á greiðslujöfnuði landsins, sem varð á árunum 1960 og 1961. í þessum dæmum, sem nú hafa verið nefnd, voru það innri ástæður, sem mestu máli skiptu. Á sama hátt hafa ytri atburðir ekki ráðið úr- slitum um gang sveifluhreyfinga í efnahags- þróun okkar og efnahagsstjórn. Þessar reglu- bundnu sveiflur hafa mótazt fyrst og fremst af sínum eigin rökum. Hvor þeirra megin- stefna í efnahagsmálum, sem fylgt hefur verið, hefur eftir nokkurt skeið mætt vaxandi örðug- leikum, sem að miklu leyti hafa átt rót sína að rekja til eðlis hennar sjálfrar. Þessir örðug- leikar hafa síðan að nokkrum tíma liðnum knúið fram stefnubreytingu, að mestu leyti án tillits til áhrifa utanaðkomandi aðstæðna. Tímabil frjálshyggjunnar. Eins og að framan var bent á, hafa frjáls- hyggjutímabilin eftir 1950 og 1960 verið tím- ar mikils hagvaxtar og tiltölulega góðs jafn- vægis í greiðsluviðskiptum við önnur lönd. 8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.