Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Qupperneq 53
IÐNÞRÓUN Á ÍSLANDI
ustuverðlagi og er vafasamt, að það eigi við
um iðnaðarframleiðslu.
Helztu mismunir skýrslugrundvalla íslenzku
talnanna og skýrslna Sameinuðu þjóðanna eru
tvenns konar.
Ýmis þjónusta, ekki iðnaðarlegs eðlis, veitt
iðnfyrirtækjum er innifalin í tölum Samein-
uðu þjóðanna, en ekki í íslenzku tölunum.
Samkvæmt íslenzkri reynslu gæti þetta munað
allt að 15? vinnsluvirðisins, þ. e. íslenzku töl-
urnar séu of óhagstæðar sem því svarar. Þetta
hefur þó engin áhrif á samanburð framleiðni-
þróunar.
Þá notast skýrslur Sameinuðu þjóðanna við
meðalfjölda starfsfólks yfir árið, en íslenzku
skýrslumar við reiknaðan fjölda vinnuára. Þar
sem hér tíðkast óvenjulega mikil yfirvinna og
nokkuð af yfirvinnunni kemur fram í fjölda
vinnuviknanna, er líklegt, að fram komi meiri
fjöldi vinnuára en raunverulegur meðalfjöldi
starfsmanna. Með tilliti til meðallengdar reikn-
aðrar vinnuviku og þar með vinnuárs, má
engu að síður telja líklegt, að hvert íslenzkt
vinnuár innihaldi meira vinnumagn, þ. e.
lengri vinnutíma, en starfsmenn í iðnaði Vest-
urlanda a. m. k. inna af hendi að jafnaði. Veg-
ur það nokkuð á móti fyrra atriðinu.
Erlendu tölurnar, sem teknar eru eftir
heimild nr. 21, eru gefnar upp fyrir árin 1938,
1948, 1953, 1958 og 1961. Hér hafa verið tek-
in hlutfallsleg milligildi áranna 1950, 1953 og
1960, þ. e. með interpólun. Slík meðferð á
ekki að valda neinum markverðum skekkj-
um, þar sem iðnþróunin hefur gengið mjög
jafnt, því fremur sem tekin eru meðaltöl fleiri
landa.
Svæðum er þannig skipað, að E.F.T.A., Frí-
verzlunarsvæðið, nær yfir Bretland, Dan-
mörku, Noreg, Svíþjóð, Sviss, Austurríki og
Portúgal. E.B.E., Efnahagsbandalag Evrópu,
nær yfir Frakkland, Belgíu, Holland, Luxem-
burg, V.-Þýzkaland og Ítalíu. Til V.-Evrópu
teljast þessi lönd og auk þess Spánn, írland,
ísland, Finnland, Júgóslavía, Grikkland og
Tyrkland. Til iðnaðarlanda eru talin Banda-
ríkin og Kanada, öll V-Evrópa nema Spánn,
Portúgal, Júgóslavía, Grikkland og Tyrkland,
og að auki eru talin Japan, ísrael og Suður
Afríka. Þróunarlönd teljast öll önnur lönd en
iðnaðarlöndin, Sovétríkin, og önnur A.-Evrópu-
lönd, en tölurnar ná ekki yfir Kína. Rómanska
Ameríka tekur yfir Mexikó, Mið- og Suður-
Ameríku. Tölur um Sovétríkin og A.-Evrópu
ná aðeins til nokkurra iðngreina árið 1960. Eru
því teknar samtölur heimsins án þeirra (Heim-
ur H- Sovétblökkin). En Kína er heldur ekki
með í heimstölunum.
51