Fréttablaðið - 13.11.2014, Page 49
| FÓLK | 7BÍLAFJÁRMÖGNUN|F LK
Daimler lagði niður Maybach-ofurbíla-merkið í desember í fyrra en hefur nú greinilega séð eftir því. Daimler ætlar
nefnilega að kynna þrjár gerðir Mercedes-
Maybach-bíla á bílasýningunum í Los Angeles
í þessum mánuði og í kjölfarið á bílasýning-
unni í Guangzhou í Kína, en þar væntir Daim-
ler þess að margir slíkir bílar muni seljast.
Allir eru þessir bílar í raun Mercedes Benz
S-Class, en verða mjög íburðarmiklir rétt eins
og Maybach-bílar voru. Sá öflugasti þeirra er
Mercedes-Maybach S 600 með 6,0 lítra V12-
vél með forþjöppu sem skilar 530 hestöflum.
Mercedes-Maybach 500 verður með V8-vél og
Mercedes-Maybach 400 4MATIC með 3,0 lítra
V6-vél og fjórhjóladrifi. Síðasttalda gerðin er
sérstaklega ætluð kínverskum kaupendum
sem vilja sleppa við háa tolla vegna stórs
sprengirýmis.
HVORKI MAYBACH-JEPPI NÉ
TVINNBÍLL Í FYRSTU
Heyrst hefur að Daimler hafi einnig áform-
að framleiðslu jeppa sem bæri merki
Maybach og yrði byggður á GL-jeppan-
um, en svo verður að minnsta kosti ekki
í fyrstu. Þá er heldur ekki meiningin að
kynna tvinnbíl undir merkjum Maybach
núna, þótt svo gæti orðið seinna. Þessir
nýju Maybach-bílar eiga að keppa um hylli
kaupenda í samkeppninni við Rolls Royce-
og Bentley-bíla og segja Mercedes Benz-
menn að þeir muni standa þeim á sporði.
Mercedes-Maybach-bílarnir eiga að kosta
talsvert minna en Maybach-bílar gerðu
áður, en endanlegt söluverð þeirra verður
kynnt þann 18. desember. Mercedes stefn-
ir á meiri sölu þessara nýju Mercedes-
Maybach-bíla en Maybach-bíla á sínum
tíma, enda ætti lægra verð að hjálpa til.
Engin áform eru um að kynna Maybach-
bíl í stærðarflokki E-Class bíla Mercedes
Benz, en það er næsta stærð fyrir neðan
S-Class.
LENGRI EN HEFÐBUNDNIR S-CLASS
Mercedes-Maybach S 600 verður með 20 cm
lengra á milli hjóla en hefðbundinn S-Class
til að búa til meira aftursætispláss, sem var
þó yfrið fyrir. Allir Maybach-bílarnir fá einnig
önnur og flottari sæti og gríðarlega íburðar-
mikla innréttingu. Bílarnir eiga að verða enn
hljóðlátari en bílar Rolls Royce og Bentley. Þó
svo að Mercedes-Maybach S 600 sé styttri bíll
en Maybach 57 var verður meira innanrými
í bílnum. Aðspurðir hvort meiningin væri
að framleiða eins langan bíl og Maybach 62
var, sem var ógnarlangur, var svarið einfald-
lega: „Við sjáum til.“ Mercedes Benz hefur nú
þegar selt 100.000 S-Class-bíla síðan hann var
kynntur í byrjun þessa árs. Er það meira en
samanlögð sala BMW 7-línunnar og Audi A8
og hefur Mercedes Benz því rækilega slegið
við samkeppninni í þessum stærðarflokki
lúxusbíla. Ástæðan fyrir því að Maybach-bílar
seldust ekki svo vel undir hatti Daimler, sem
keypti Maybach árið 2002, er að sögn Merc-
edes-manna sú staðreynd að merkið hafi ekki
verið nógu þekkt um heim allan. Öðru máli
gegni um Merced es Benz og því sé markaðs-
nálgunin allt önnur nú.
DAIMLER ENDURVEKUR MAYBACH
VERÐA ÓDÝRARI en Maybach-bílar voru, og eru í raun lengri útgáfur af Mercedes Benz S-Class bílum, en með íburðarmeiri innréttingar.
Daimler ætlar að
kynna þrjár gerðir
Mercedes-May-
bach-bíla á á bíla-
sýningunum í Los
Angeles í þessum
mánuði.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Betri kjör á
bílaármögnun
Lánshlutfall
allt að 80%
Engin
stimpilgjöld
Allt að 7 ára
lánstími
Landsbankinn býður betri kjör við fjármögnun
á nýjum og notuðum bílum. Kynntu þér bílalán
á landsbankinn.is/bilalan.