Fréttablaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 8
5. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
SAMFÉLAG Bæði karlar og konur
eru jákvæðari gagnvart lögum
um kynjakvóta í stjórnum einka-
fyrirtækja.
Þetta sýna niðurstöður rann-
sóknar sem Auður Arna Arnar-
dóttir lektor og dr. Þröstur Olaf
Sigurjónsson, dósent við við-
skiptadeild HR, hafa unnið að í
samstarfi við erlenda samstarfs-
félaga. Niðurstöðurnar sýna að nú
eru um 77 prósent kvenna jákvæð
gagnvart lögunum en 58 prósent
voru það árið 2010. Þá eru 42 pró-
sent karla jákvæð en 33 prósent
voru það árið 2010.
„Það er stærri breyting hjá
konum, jákvæðnin er meiri, en svo
þegar maður skoðar þennan karla-
hóp betur, til dæmis út frá aldri,
þá sér maður að það eru einkum
karlmenn yngri en fertugir sem
eru neikvæðastir,“ segir Auður
Arna. Hún segir þetta ósköp skilj-
anlegt þar sem það sé einkum
þessi hópur sem eigi erfitt með að
komast inn í stjórnir.
Auður Arna segir að þetta sé í
samræmi við andrúmsloftið í þjóð-
félaginu almennt. „Þegar kynja-
kvótinn var ræddur á Alþingi á
sínum tíma þá voru miklu sterkari
pólskipti í kringum hann. Þá voru
neikvæðari raddir,“ segir hún. Á
þessum tíma hafi margir litið á
þetta sem sterkt og mikið inngrip
af hendi löggjafans. Hinir sömu
séu jákvæðari gagnvart því í dag.
Niðurstöður rannsóknarinnar
verða kynntar á morgunverðar-
fundi á Grand Hóteli í dag
- jhh
Um 77 prósent kvenna segjast vera ánægð með lög um kynjakvóta en einungis 42 prósent karla:
Meiri ánægja með lög um kynjakvóta
Í HR Auður Arna Arnardóttir lektor og
Þröstur Olaf, dósent í Háskólanum í
Reykjavík, unnu að rannsókninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HJÁLPARSTARF Þróunarsamvinnu-
stofnun Íslands hefur tekið upp
samstarf við Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna, UNICEF, í Mósam-
bík um þriggja ára víðtækt
verkefni í einu fátækasta fylki
landsins, Sambesíu. Verkefnið
lýtur að umbótum varðandi vatns-
og salernisaðstöðu auk fræðslu um
hreinlætisvenjur.
Á verkefnistímanum, eða til
loka ársins 2017, er ætlunin að
koma upp viðunandi salernis-
aðstöðu fyrir 300 þúsund íbúa í
fylkinu, bæta aðgengi 48 þúsunda
að hreinu vatni og sjá til þess að
fjörutíu skólar með 14 þúsund
nemendur fái hreint vatn og sal-
ernisaðstöðu, að sögn Gunnars
Salvarssonar, útgáfu- og kynn-
ingarstjóra Þróunarsamvinnu-
stofnunar Íslands.
Gunnar segir heildarfjármagn
til verkefnisins nema 8,1 millj-
ón Bandaríkjadala en hluti Þró-
unarsamvinnustofnunar nemur
3,5 milljónum dala eða ríflega 40
prósentum heildarfjárins. Hluti
Íslendinga sem styrkja þetta verk-
efni UNICEF er langstærstur.
Óhreint drykkjarvatn, ófull-
nægjandi salernisaðstaða og
slæmar hreinlætisvenjur eru
helstu ástæður niðurgangspesta
sem draga tæplega tvær milljónir
barna yngri en fimm ára til dauða
Þróunarsamvinnustofnun í samstarfi í Mósambík:
Aðgengi að salernum
og hreinu vatni bætt
Í MÓSAMBÍK Mæður og börn í Samb-
esíufylki sem koma til með að njóta
góðs af verkefninu. MYND/GUNNAR SALVARSSON
á ári hverju. Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin áætlar að 748 millj-
ónir jarðarbúa hafi ekki aðgang að
hreinu vatni og 2,5 milljarðar hafi
ekki aðgang að salerni.
- ibs
VIÐSKIPTI Lýstar kröfur í þrotabú
FI fjárfestinga ehf., eignarhalds-
félags Hannesar Smárasonar, námu
rúmlega 46,4 milljörðum króna, auk
tæplega 486,6 þúsunda punda, eða
um 46,5 milljörðum króna alls.
„Engar eignir fundust í búinu og
var skiptum á því lokið 26. nóvem-
ber 2014 samkvæmt 155. grein laga
númer 21/1991 án þess að greiðsla
fengist upp í lýstar kröfur, auk
áfallinna vaxta og kostnaðar eftir
úrskurðardag gjaldþrotaskipta,“
segir í tilkynningu um skiptalokin
í Lögbirtingablaðinu í gær. Félagið
var tekið til gjaldþrotaskipta,
eftir beiðni skilanefndar Glitn-
is, um miðjan desember 2011.
Gjaldþrot FI fjárfestinga
er með stærstu gjaldþrotum
félaga hér á landi eftir hrun,
en til samanburðar má nefna
að kröfur í þrotabú Samson-
ar, eignarhaldsfélags Björg-
ólfsfeðga sem hélt á hlut þeirra í
Landsbankanum, námu um 80 millj-
örðum króna.
Samkvæmt síðasta ársreikningi
FI fjárfestinga, sem áður nefndist
Fjárfestingafélagið Primus ehf.,
fyrir árið 2007 námu skuldir þess
í lok ársins rúmum 35 milljörðum
króna. Eigið fé var neikvætt um
tæpa 3,7 milljarða króna. Fram kom
í ársreikningnum að eignarhlutir í
öðrum félögum að verðmæti tæp-
lega 23,9 milljarðar króna hafi verið
veðsettir fyrir skuldum félagsins.
Magnús Gunnlaugsson, hæsta-
réttarlögmaður og skiptastjóri FI
fjárfestinga, segir allar eignir hafa
verið færðar út úr félaginu fyrir
árið 2007. „Félagið hafði ekki verið
í rekstri árin áður en það fór í þrot,“
segir hann. „Það voru allar færslur
búnar og farnar eitthvert annað,“
bætir hann við. Því hafi ekki verið
eftir neinu að slægjast í þrotabúinu.
„Svo lágu endurskoðendur yfir
þessu í bak og fyrir og komu
með einhverja punkta,
en það var ekki neitt sem
hægt var að festa hönd á.“
Bankana og kröfuhafa
félagsins verði svo að spyrja
að því hvers vegna ekki hafi
verið gengið að því fyrr.
Kristján Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Glitnis, segist
hvorki geta né mega tjá sig um ein-
stök mál. Almennt sé það þó þann-
ig að reynt sé að innheimta kröf-
ur eftir megni og gangi það ekki
sé farið fram á atbeina dómstóla,
eigi það við. „Og auðvitað var hér
við fjölda mála að eiga hjá þessum
búum, eins og vitað er,“ segir hann.
olikr@frettabladid.is
Ekkert upp í 46,5 milljarða
Skiptum er lokið á FI fjárfestingum, eignarhaldsfélagi Hannesar Smárasonar. Félagið hélt meðal annars utan
um eign í FL Group. Eftir engu að slægjast, að sögn skiptastjóra. Eignir farnar áður en gjaldþrots var krafist.
Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur er rekið mál sérstaks saksóknara á hendur
Hannesi Smárasyni. Honum er gefið að sök að hafa árið 2005 dregið
sér tæpa þrjá milljarða af fjármunum FL Group og ráðstafað til Fons.
Hæstiréttur vísaði málinu í vor aftur til héraðsdóms, sem hafði áður fallist
á frávísunarkröfu verjanda Hannesar. Hannes hafnaði öllum sakargiftum
þegar hann kom fyrir dóminn í maí.
Eitt mál rekið fyrir héraðsdómi
HANNES SMÁRASON Á FUNDI FL GROUP 2007 Í árslok 2007 voru dótturfélög FI fjár-
festinga ehf., eignarhaldsfélögin Sveipur ehf. og Oddaflug ehf. (sem hélt utan um eignar-
hlutinn í FL Group), Fjölnisvegur 9 ehf., Hlíðasmári 6 ehf. og 3S ehf. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Gefðu góðar
minningar í jólagjöf!
Kauptu 5.000 kr. gjafabréf
og þú færð andvirði
7.000 kr.
Kauptu 10.000 kr. gjafabréf
og þú færð andvirði
15.000 kr.
Kauptu 20.000 kr. gjafabréf
og þú færð andvirði
30.000 kr.
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3
ellingsen.is
Munið
gjafabréfi
n!
DEVOLD DUO ACTIVE JUNIOR
Blátt og rautt, stærðir 10–16
7.990 KR.
Jólagjöfin fæst
í Ellingsen
DEVOLD DUO ACTIVE JUNIOR
Blátt og rautt, stærðir 10–16
7.990 KR.
DEVOLD POLAR BABY
Blátt og bleikt, stærðir 74–98
13.990 KR.
Hlýjar
jólagjafir