Fréttablaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 10
5. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SVEITARSTJÓRNIR „Fulltrúar D-lista
lýsa furðu yfir þeirri stefnubreyt-
ingu sem orðið hefur í launamálum
forstöðumanna sveitarfélagsins,“
segir í bókun sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Ölfuss vegna ákvörð-
unar meirihluta Framsóknar-
flokks um að hækka laun hafnar-
stjóra um þriðjung.
Hafnarstjórinn sem ráðinn var
í desember í fyrra hafði áður 520
þúsund krónur í mánaðarlaun og
fékk aksturspeninga fyrir 700 kíló-
metra á mánuði. Það svarar sam-
tals til um 600 þúsund króna. Laun-
in hans voru hækkuð í 700 þúsund
krónur og greitt er fyrir 900 kíló-
metra akstur. Saman gerir þetta
um 800 þúsund krónur á mánuði.
„Er það stefna framsóknarmanna
að taka til baka þá launaskerðingu
sem aðrir forstöðumenn sveitar-
félagsins urðu fyrir á síðasta kjör-
tímabili?“ spurðu sjálfstæðismenn.
„Reynsla af störfum þessa nýja
hafnarstjóra hefur verið með
afbrigðum góð, rekstur hafnarinn-
ar hefur tekið stakkaskiptum til
jákvæðari vegar og framtíðarhug-
myndafræði um rekstur hafnarinn-
ar er gerbreytt,“ segir Gunnsteinn
R. Ómarsson bæjarstjóri. „Á fyrstu
mánuðum í starfi lagði hafnarstjóri
fram hugmynd um endurbætur á
Þorlákshöfn sem hlotið hefur gríð-
armikinn hljómgrunn meðal sveit-
arstjórnarmanna á Suðurlandi og
ráðamanna þjóðarinnar.“ - gar
Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Ölfuss gagnrýna bætt kjör hafnarstjórans:
Fékk laun hækkuð um þriðjung
ÞORLÁKSHÖFN Meirihlutinn í bæjar-
stjórn er ánægður með störf og hug-
myndir hafnarstjórans. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
VIÐSKIPTI Líklegt er að hér verði
framhald á myndarlegum arð-
greiðslum skráðra félaga, að mati
greiningardeildar Arion banka.
Að baki liggi sterkur fjárhagur og
arðgreiðslustefna.
Í nýútkomnum Markaðspunktum
er bent á að félög skráð í Kauphöll-
ina hafi nú öll birt uppgjör þriðja
ársfjórðungs. „Oftar en ekki voru
uppgjörin ívið betri en vænst var
sem skýrir að hluta 13 prósenta
hækkun aðalvísitölu Kauphall-
ar Íslands frá því uppgjörslotan
hófst,“ segir þar. Fleira hafi líka
komið til svo sem óvænt vaxta-
lækkun og svo sérstakar greiðslur
frá tveimur skráðum félögum til
hluthafa sinna upp á samtals 7,5
milljarða króna. Vísað er til kaupa
Össurar á eigin bréfum fyrir 3,6
milljarða króna og niðurfærslu
hlutafjár og útgreiðslu eigin fjár
N1 upp á tæpa 3,9 milljarða. „Það
er saga til næsta bæjar að skráð
íslensk félög séu svo vel fjármögn-
uð að þau geti greitt slíkar fjárhæð-
ir til hluthafa sinna.“ - óká
Uppgjör yfir spám, vaxtalækkun og greiðslur til hluthafa hjálpa til:
Spá framhaldi á arðgreiðslum
KAUPHÖLLIN Markaðspunktar Arion
benda á að skráð félög hafi greitt tólf
milljarða í arð eftir síðasta rekstrarár.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EINSTÖK
TILBOÐ!
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
GERÐU FRÁBÆR KAUP
SUZUKI GRAND VITARA PREM.
Nýskr. 06/12, ekinn 36 þús km.
bensín, beinskiptur.
Verð áður kr. 3.990.000
TILBOÐSVERÐ!
3.390 þús.
NISSAN PATROL ELEGANCE 35”
Nýskr. 11/00, ekinn 180 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 1.570.000
TILBOÐ kr. 990 þús.
KIA SORENTO II
Nýskr. 06/06, ekinn 194 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 1.590.000
TILBOÐ kr. 990 þús.
HONDA CRV
Nýskr. 09/05, ekinn 165 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 1.540.000
TILBOÐ kr. 990 þús.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 06/08, ekinn 119 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.990.000
TILBOÐ kr. 2.990 þús.
RANGE ROVER VOGUE
Nýskr. 09/06, ekinn 102 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 5.990.000
TILBOÐ kr. 4.990 þús.
NSSAN QASHQAI SE
Nýskr. 05/11, ekinn 109 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.290.000
TILBOÐ kr. 2.690 þús.
Rnr. 142077
Rnr. 142455
Rnr. 120397
Rnr. 120373
Rnr. 281666
Rnr. 281572
Rnr. 142190
GÖNGUM FRÁ
FJÁRMÖGNUN Á
STAÐNUM
WWW.BÍLALAND.IS
RÚSSLAND „Vesturlönd kunna
að hafa gleymt þjóðarstolti sínu
fyrir löngu og líta á fullveldið sem
óþarfa lúxus, en fyrir Rússland er
raunverulegt fullveldi algerlega
nauðsynlegt til þess að komast af.“
Þetta sagði Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti í stefnuræðu sinni,
sem hann flutti á þinginu í Moskvu
í gær. Hann sagðist vilja leggja
sérstaka áherslu á þetta: „Annað-
hvort verðum við fullvalda þjóð
áfram eða við hverfum sporlaust
og glötum sjálfsvitund okkar.“
Hann sakar Vesturlönd um að
vilja einangra Rússland og grafa
undan hagsmunum þess. Úkraínu-
deilan hafi verið notuð á Vestur-
löndum sem yfirvarp til þess að
geta samþykkt refsiaðgerðir á
hendur Rússlandi.
„Einangrunarstefnan var ekki
fundin upp í gær,“ sagði hann.
„Henni hefur verið beitt gegn
landinu okkar í mörg ár, alltaf,
áratugum saman, ef ekki öldum.
Í stuttu máli: Alltaf þegar ein-
hverjum finnst Rússland orðið of
sterkt eða sjálfstætt, þá eru þessar
aðferðir teknar upp.“
Hann sagði Rússa aldrei geta
fallist á stjórnarbyltinguna í
Úkraínu síðastliðið vor, „þetta
vopnaða valdarán, ofbeldið og
manndrápin“, eins og hann orð-
aði það.
Hins vegar fagnaði hann því
að Krímskagi hefði orðið hluti af
Rússlandi, enda hefði skaginn og
borgin Sevastopól sérstaka þýð-
ingu, „jafnvel heilaga þýðingu
fyrir Rússland, rétt eins og Must-
erishofið í Jerúsalem hefur fyrir
þá sem aðhyllast íslamska trú eða
gyðingatrú. Og þannig munum
við alltaf líta á það.“ Þar séu hinar
„andlegu rætur“ rússnesku þjóð-
arinnar.
Vaxandi efnahagserfiðleikar
hrjá Rússa um þessar mundir og
er spáð efnahagskreppu á næsta
ári. Þetta er rakið bæði til refsi-
aðgerða Vesturlanda vegna Úkra-
ínustríðsins og til verðfalls á olíu
undanfarið.
Pútín sagðist hins vegar hafa
fulla trú á því að rússneska þjóð-
in gæti staðið þessa erfiðleika af
sér: „Fólkið okkar hefur sýnt af
sér þjóðarstyrk og ættjarðarást.
Erfiðleikarnir sem blasa við okkur
skapa ný tækifæri.“
Hann tók líka fram að Rússar
myndu aldrei „feta braut sjálfsein-
angrunar, útlendingahræðslu, tor-
tryggni og leitinni að óvinum. Allt
þetta ber vitni um veikleika, en við
eru sterk og sjálfsörugg.“
gudsteinn@frettabladid.is
Pútín segir fullveldi
Rússum lífsnauðsyn
Pútín Rússlandsforseti sakar Vesturlönd um að vilja einangra og grafa undan
Rússlandi. Úkraínudeilan sé aðeins tylliástæða til að samþykkja refsiaðgerðir gegn
Rússum. Hann segir þjóð sína samt vera fullfæra um að standa þessa sókn af sér.
Annað-
hvort verðum
við fullvalda
þjóð áfram eða
við hverfum
sporlaust og
glötum sjálfs-
vitund okkar.
Vladimír Pútín
Rússlandsforseti
VLADIMÍR PÚTÍN
Ávarpaði rússneska
þingið í gær til að flytja
árlega stefnuræðu sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP