Fréttablaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 18
5. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
STJÓRNMÁL Ólöf Nordal, fyrrver-
andi varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, tók í gær við lyklunum
í sameinuðu innanríkisráðuneyti
af þeim Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni og Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur.
Ólöf er fyrsti utanþingsráðherr-
ann í ríkisstjórn sem Sjálfstæðis-
flokkurinn á aðild að síðan Geir
Hallgrímsson var utanríkisráð-
herra 1983-1986.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, gerði tillögu
á þingflokksfundi í gærmorgun
um að Ólöf yrði skipuð. Að sögn
Ragnheiðar Ríkharðsdóttur kom
skipanin þingflokknum á óvart, en
hún var samþykkt engu að síður.
Í samtali Bjarna Benediktssonar
við blaðamenn að loknum þing-
flokksfundi sagðist hann hafa
rætt við Einar K. Guðfinnsson
um að hann tæki embættið að sér.
„Það er rétt að sama dag og
Hanna Birna tjáði mér að hún
myndi óska lausnar úr embætti,
þá setti ég mig í samband við
Einar Kristin og bað hann um að
íhuga það hvort hann vildi koma
og leysa hana af hólmi. Við höfum
í millitíðinni átt nokkur samtöl,
síðast í gær, og niðurstaðan er sú
að hann óskar ekki eftir því að það
verði gerðar breytingar á hans
stöðu,“ sagði Bjarni.
Hann sagðist þá ekkert hafa
verið að þrýsta frekar á um það og
Ég
hef engin
viðbrögð
við þessu.
Ég óska
Ólöfu
bara alls
hins
besta.
Unnur Brá
Konrásdóttir,
þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
Óvænt skipun Ólafar í embætti
Ólöf Nordal var skipuð innanríkisráðherra í sameinuðu ráðuneyti í gær. Hún er fyrsti utanþingsráðherra í ríkisstjórn sjálfstæðismanna í 28
ár. Skipanin kom þingmönnum Sjálfstæðisflokksins á óvart. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, þáði ekki boð um að gegna embættinu.
Einar K. Guð-
finnsson,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins,
segist mjög
sáttur í embætti
forseta Alþingis.
Það sé helsta
ástæðan fyrir
því að hann þáði
ekki boð um að
verða innanríkis-
ráðherra. „Ég tel
sjálfur að þetta
sé einhver sú
mesta virðingarstaða sem einn
þingmaður getur fengið, að vera
æðsti yfirmaður löggjafarþings
hverrar þjóðar. Í þessu felst bæði
mikil ábyrgð en líka völd sem við
stjórnmálamenn viljum gjarnan
hafa með höndum. Þetta var auð-
vitað meginástæðan,“ segir Einar
í samtali við Fréttablaðið.
Hann segist hafa þurft tíma
til að hugsa sig um. „Mér fannst
það spennandi að takast á
hendur þau verkefni sem eru í
innanríkisráðuneytinu. Ekki síst
á samgöngusviðinu. Þess vegna
þurfti ég nokkurn tíma til að
hugsa mig um og fara yfir þessi
mál meðal annars með minni
fjölskyldu. En niðurstaðan varð
þessi og ég er mjög sáttur við
hana,“ segir Einar. Hann sé líka
mjög sáttur við Ólöfu Nordal sem
innanríkisráðherra.
EINAR K. GUÐ-
FINNSSON
forseti Alþingis
210 hestafla dísilvél, 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýri og loftpúðafjöðrun með Terrain Response drifbúnaði á öllum
hjólum gera Land Rover Discovery 4 að einum öflugasta og þægilegasta jeppa sem völ er á. Meðal nýjunga eru breyttur framendi
með nýjum aðalljósum, breytt afturljós, start/stopp ræsibúnaður og Meridian 380W hljómtæki.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
4
3
9
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
Á LAND ROVER DISCOVERY 4
Discovery 4 S – verð frá: 11.890.000 kr.
Eldsneytisnotkun 8,8 l/100 km* í blönduðum akstri.
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
SKOÐAÐU ÞIG UM
landrover.is
RÍKISRÁÐ Ólöf
Nordal nýskip-
aður innan-
ríkisráðherra
á sínum fyrsta
ríkisráðsfundi.
því hefði hann gert tillögu um að
skipa Ólöfu. Bjarni hafði svo sam-
band við Ólöfu um kvöldmatar-
leytið í fyrrakvöld og tjáði henni
að hann væri kominn að endan-
legri niðurstöðu.
Klukkan eitt eftir hádegið hófst
síðan ríkisráðsfundur á Bessa-
stöðum, þar sem Ólöf tók form-
lega við embætti. Að því loknu tók
hún við lyklum að ráðuneytinu.
Strax á eftir ríkisráðsfund sagði
Ólöf við Fréttablaðið að það hefði
komið sér mjög á óvart þegar hún
var beðin um að taka embættið
að sér. „Já, þetta kom mér mjög á
óvart,“ sagði Ólöf og bætti því við
að hún hefði hugsað málin mjög
vel á þeim tíma sem hún hafði.
Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, hafði lýst því yfir
opinberlega að hann hefði áhuga á
að gegna ráðherraembætti. Hann
kvaðst í samtali við Fréttablaðið
hafa orðið fyrir vonbrigðum.
„Ég vænti þess, sem þriðji
maður í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjavík sameinaðri, að
eiga þarna kost. Hins vegar held
ég að nokkuð vel hafi tekist með
valið að öðru leyti,“ sagði Pétur. Í
samtali við fréttavefinn Vísi sagð-
ist Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
þingflokksformaður sjálfstæðis-
manna, einnig hafa orðið fyrir
vonbrigðum.
„Ef þú ert í pólitík þá ertu
þar til að hafa áhrif. Ef þú telur
þig hafa eiginleika og að þú sért
þokkalega menntuð, hafa reynslu,
þá verður maður að sjálfsögðu
fyrir vonbrigðum,“ segir Ragn-
heiður.
Unnur Brá Konráðsdóttir hafði
einnig verið orðuð við ráðherra-
stól. „Ég hef engin viðbrögð við
þessu. Ég óska Ólöfu bara alls hins
besta. Það er mjög mikilvægt að
það sé vel haldið utan um verk-
efnin í þessu ráðuneyti,“ sagði
Unnur Brá.
➜ Þingforseti ein mesta
virðingarstaðan