Fréttablaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 45
LÍFIÐ 5. DESEMBER 2014 • 7
Valgeir Valgeirsson, þekkt-
ur fyrir bruggstörf sín hjá
Borg Brugghúsi, hefur yfirum-
sjón með þróun nýju sérútgáf-
unnar af íslenska Brennivín-
inu. „Við ákváðum að fara út
í smá ævin týramennsku með
Brennivínið í ljósi 80 ára af-
mælis þess á næsta ári, en
ekki síður í ljósi þeirrar
miklu vakningar sem er
að eiga sér stað í bragð-
meiri drykkjum og mat, í
henni liggja augljós tæki-
færi fyrir afgerandi vöru
eins og Brennivín sem nú
er að eignast nýjan áhang-
endahóp, talsvert ólíkan
þeim fyrri,“ segir Valgeir.
Verið er að gera ýmsar
æfingar með Brennivínið
en fyrsta útgáfan er jóla-
útgáfa. „Fyrir hana flutt-
um við inn notaðar sérrí-
tunnur ásamt notuðum
búrbón tunnum frá Bandaríkjun-
um. Við fylltum þær af Brennivíni
fyrir um 6 mánuðum og höfum
látið þetta þroskast í þann tíma
en þroskunin breytir víninu um-
talsvert. Í tunnunum þéttist fyll-
ingin og vínið mýkist til muna,
en einnig færa tunnurnar því lit
og ýmis krydd og vanillu sem
greina má í bland við hina
hefðbundnu kúmenkrydd-
un sem fyrir er í Brennivín-
inu,“ lýsir Valgeir og bend-
ir á að jólabrennivínið í ár
sé því blanda af sérrít-
unnuþroskuðu Brennivíni
og búrbóntunnuþroskuðu,
sem hrært sé saman rétt
fyrir átöppun.
„Jólaútgáfa Brennivíns
í ár hentar sérstaklega vel
með rúgbrauði, kryddsíld
og reyktu kjöti svo eitt-
hvað sé nefnt,“ segir Val-
geir að lokum.
JÓLA BRENNIVÍNIÐ ÞROSKAST Í
SÉRRÍ- OG BÚRBÓNTUNNUM
Ný sérútgáfa af íslensku Brennivíni er fáanleg núna fyrir jólin. Um er að ræða gamla góða Brennivínið sem hefur nú fengið að þroskast á notuðum sér-
rítunnum annars vegar og búrbóntunnum hins vegar, í 6 mánuði. Brennivín verður 80 ára á komandi ári og því var ákveðið að fara áður ótroðnar slóðir.
Brennivín Jól 2014 kemur í verulega takmörkuðu upplagi og mun fást á völdum börum og veitingahúsum, auk Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Vínbúðanna.
Ákveðið var að fara út í
smá ævintýramennsku
með Brennivínið í ljósi
80 ára afmælis þess á
næsta ári.