Fréttablaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 46
8 • LÍFIÐ 5. DESEMBER 2014
Æfingar þurfa ekki alltaf að taka
langan tíma til þess að vera skil-
virkar. Svokallaðar lotuæfingar
eða skorpuþjálfun hafa sýnt fram
á mjög góðan árangur þegar bæta
á þol og brenna á fitu. Rannsókn-
ir hafa sýnt að fitubrennslan haldi
áfram í marga klukkutíma eftir
að æfingu er lokið. Ekki ætti þó að
taka lotuæfingar oftar en tvisv-
ar til þrisvar sinnum í viku vegna
hættu á mjólkursýrumyndun.
Þessa lotuæfingu er hægt að
gera hvar sem er, hvenær sem er.
Það eina sem þú þarft er tæki til
þess að taka tímann og örlítil upp-
hækkun fyrir fætur.
Hverja æfingu skal gera í 40
sekúndur með 20 sekúndna hvíld
á milli æfinga. Samtals eru svo
gerðir 4-8 hringir af þessum 4 æf-
ingum, eftir því hversu langa æf-
ingu maður vill taka.
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
GERÐU ÆFINGAR
HEIMA HJÁ ÞÉR
Lotuæfingar taka ekki langan tíma og er hægt að gera nánast hvar
og hvenær sem er, hvort sem þú ert heima eða á ferðalagi.
ÆFINGARNAR ERU EFTIRFARANDI
4 SPRELLI-
KARLA HOPP
Stattu með hendur og fætur
saman. Hoppaðu sundur með
fætur og lyftu höndunum bein-
um upp fyrir höfuð í leiðinni,
frá mjöðmum. Hoppaðu svo
aftur saman.
3 HÁR PLANKI MEÐ SPRELLIKARLIKomdu þér fyrir í plankastöðu með lófa í gólfi. Passaðu að bein lína sé frá öxlum og niður í hæla og að lófar séu staðsettir beint undir
öxlum. Spenntu kviðinn og bakið vel
svo mjóbak og mjaðmir detti ekki
niður. Hoppaðu svo sundur og
saman með fæturna.
2 ARMBEYGJUR MEÐ UPPHÆKKUN Á FÓTUMKomdu fótunum fyrir á örlítilli upphækkun og hafðu þá
hvorn upp við annan. Settu lófana í gólfið, aðeins gleiðari
en í axlabreidd og staðsettu hendurnar þannig að þær séu í
sömu línu og brjóstkassi. Passaðu að spenna kvið og bak svo þú
fáir ekki fettu á mjóbakið. Beygðu olnbogana niður svo þeir myndi 45° horn og
ýttu þér svo aftur upp. Ef þú getur ekki tekið armbeygjuna með upphækkun á
fótum, settu þá fæturna á gólfið. Ef það er enn of erfitt settu þá hnén í gólfið.
FRAMSTIGSHOPP
Byrjaðu með fætur saman.
Stígðu með annan fótinn
fram og beygðu bæði hnén
niður svo þau myndi 90° horn.
Neðra hnéð á að nema við gólf
en það fremra á að vera beint
yfir hælnum. Hoppaðu beint upp,
skiptu um fót í loftinu og lentu
í sömu stöðu og áður en þú
hoppaðir upp, með hinn fót-
inn fyrir framan.
1
Linda Björg Árnadóttir hönnuður fékk það
skemmtilega verkefni að hanna óróa fyrir
Jólasveinaseríu Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra. Hún segir innblásturinn kominn frá
íslenskum jólasveinum og þetta árið hafi Gilja-
gaur orðið fyrir valinu. „Innblásturinn að óró-
anum kom frá íslensku jólasveinunum en það
var viðfangsefnið sem okkur var gefið og svo
munsturheimur Scintilla,“ segir Linda en hún
hannar vörur undir sínu eigin merki sem hún
kallar Scintilla. Margvísleg verkefni eru fram
undan hjá vörumerkinu en Linda kemur til
með að kynna nýja fatalínu eftir áramót sem
og ört stækkandi hótellínu. „Við erum einnig
að hanna ýmislegt fyrir hóteliðnaðinn en það
er vaxandi markaður á Íslandi,“ segir hún.
Jólaóróinn fer í sölu í dag en markmið með
gerð og sölu Giljagaurs er að auðga líf fatlaðra
barna og ungmenna.
ÍSLENSK HÖNNUN OG
RITSNILLD SAMAN Í EINA SÆNG
Linda Björg Árnadóttir og Bubbi Morthens leiddu saman hesta sína og
hönnuðu óróa fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Linda og Bubbi
Innblásturinn
kom frá
íslensku
jólasveinunum
SÍ A 196
9
GLER OG SPEGLARSmiðjuvegi 7 Kópavogi • Sími 54 54 300 • ispan .is
VELKOMIN Í SÖLUDEILD OKKAR
Sandblásum á gler, spegla
og aðra
glermuni
Heilsuvísir