Fréttablaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 12
5. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
EYÐIR BARA 2.900 KR. Á MÁNUÐI*
4
KLST.
5 ÁRA ÁBYRGÐ
Öllum Nissan Leaf rafbílum sem BL ehf. selur fylgir 3 ára
verksmiðjuábyrgð auk 5 ára verksmiðjuábyrgðar á rafhlöðu
sem tryggir þig fyrir mögulegum bilunum, innköllunum
eða uppfærslum á búnaði sem kunna að koma upp yfir
ábyrgðartímann.
NOTAÐUR BÍLL SEM INNÁBORGUN
Þeir sem kaupa Nissan Leaf Nordic rafbíl frá BL ehf. geta
greitt hluta kaupverðsins með notuðum bíl. Restina er hægt
að taka að láni að hluta eða öllu leyti.
45 DAGA SKIPTIRÉTTUR
Langar þig að prófa en ert ekki viss? Öllum Nissan Leaf Nordic
rafbílum sem BL ehf. selur fylgir 45 daga skiptiréttur.**
ÞÚ KEMST ALLRA ÞINNA FERÐA Á NISSAN LEAF FYRIR EINUNGIS
BROT AF ELDSNEYTISKOSTNAÐI HEFÐBUNDINS BÍLS
250.000 KR. HEIMAHLEÐSLUSTÖÐ
SEM HLEÐUR BÍLINN Á AÐEINS
4 KLST. FYLGIR ÖLLUM NÝJUM
NISSAN LEAF
KAUPAUKI
**Ef viðskiptavinur sem keypt hefur Nissan Leaf Nordic telur bílinn ekki henta
þörfum sínum bjóðum við 45 daga skiptirétt. Viðskiptavinur getur þá skilað bílnum
og látið kaupverðið ganga upp í kaup á sambærilegum eða dýrari nýjum bíl frá
BL ehf. Miðað er við að bíllinn sé ekinn að hámarki 1.500 km á tímabilinu.
BL ehf / Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
NISSAN LEAF NORDIC
VERÐ FRÁ: 4.490.000 KR.
*Miðað við verðskrá ON 10.09.2014 og 1.250 km akstur á mánuði / 15.000 km á ári.
GE bílar / Reykjanesbæ / 420 0400 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – IB ehf. / Selfossi / 480 8080
EFNAHAGSMÁL Gamli Landsbank-
inn (LBI hf.) fær heimild til þess
að greiða forgangskröfuhöfum 400
milljarða króna. Seðlabanki Íslands
hefur, að undangengnu samráði við
fjármála- og efnahagsráðherra,
veitt slitabúunum undanþágu frá
lögum um gjaldeyrishöft þessa
efnis.
Þá hefur LBI hf. einnig fengið vil-
yrði um undanþágur vegna frekari
greiðslna til forgangskröfuhafa af
framtíðarinnheimtum slitabúsins,
að því gefnu að slíkar undanþágur
verði þá ekki taldar raska stöðug-
leika í gengis- og peningamálum.
Tildrög undanþágunnar eru þau
að LBI og Landsbankinn hafa náð
samkomulagi um breytingar á skil-
málum skuldabréfa sem Landsbank-
inn gaf út þann 9. október 2009. Full-
trúar nýja bankans og slitabúsins
undirrituðu samkomulagið í gær-
kvöldi.
Nýja samkomulagið byggir að
vissu leyti á samkomulagi sem þess-
ir aðilar höfðu gert með sér þann 8.
maí og einnig var háð samþykki
Seðlabankans og ráðuneytisins.
Skuldabréfin sem um ræðir voru
gefin út þegar eignum og skuld-
bindingum gamla Landsbankans
var skipt upp á milli slitabúsins og
nýja bankans.
Samkvæmt samkomulaginu
verður lokagreiðsla Landsbankans
til LBI af skuldabréfunum greidd
Vaxtakjör verða óbreytt til 2018
Slitabú LBI fær heimild til að greiða forgangskröfuhöfum 400 milljarða króna. Slitabúið mun einnig fá undanþágur fyrir frekari greiðslum
í framtíðinni. Þá hefur verið samið um að lokagreiðslur af skuldabréfi nýja Landsbankans verði greiddar á árinu 2026 í stað 2018.
Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í
Reykjavík, segir að samkomulagið sem undirritað var í gær og
undanþága Seðlabankans verði til góðs.
„Þetta er eitt af þessum atriðum sem þurfa að vera til staðar
til þess að það sé á endanum hægt að lyfta höftum,“ segir
hann. Hann segir mál slitabúa Kaupþings og Glitnis vera annars
eðlis en mál LBI. Tvö fyrrnefndu slitabúin hafi þegar greitt for-
gangskröfuhöfum.
Friðrik Már bendir á að það hafi verið búið að semja um skuldabréf
nýja Landsbankans fyrir mörgum árum. „Það hefur legið alveg ljóst fyrir
að þetta var allt of þungt. Þetta voru greiðslur upp á fjögur og hálft, eða
hátt í fimm prósent af landsframleiðslu í fjögur ár,“ hann. Það hefði verið
allt of þungt fyrir þjóðarbúið að greiða svo háar greiðslur í gjaldeyri. „Það
þurfti að endurfjármagna þetta,“ segir hann.
Lausnin hafi orðið sú að lengja í bréfinu og LBI fái þá að taka út gjald-
eyri í lausu fé. „Það skapar engan þrýsting á gengið,“ segir Friðrik Már.
Samkomulagið til góðs
SAMKOMULAG Fulltrúar gamla og nýja Landsbankans undirrituðu í gær samkomulag um framlengingu skuldabréfa nýja bankans.
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
í október árið 2026 í stað október
2018.
Vaxtakjör verða óbreytt til októ-
ber árið 2018. Það er 2,9 prósenta
álag ofan á LIBOR vexti. Eftir
það fer vaxtaálagið stighækkandi
og verður 3,5 prósent vegna gjald-
daga 2020 og að lokum 4,05 pró-
sent vegna lokagjalddagans árið
2026.
Hver gjalddagi á árabilinu frá
2016 til 2026 verður um 30 millj-
arðar króna, nema árið 2018, en þá
kemur til greiðslu jafnvirði um 40
milljarða króna.
Við gildistöku samkomulagsins nú
greiðir Landsbankinn jafnvirði um
30 milljarða króna og eru eftirstöðv-
ar skuldabréfanna að lokinni þeirri
greiðslu um 196 milljarðar króna.
Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans, segir tíðindin góð
fyrir íslenskt efnahagslíf. Stigið sé
veigamikið skref til að leysa við-
fangsefni er varði skuldir þjóðar-
búsins og afnám fjármagnshafta.
„Skilmálar nýju skuldabréfanna
eru mjög vel viðráðanlegir fyrir
Landsbankann og mun þessi breyt-
ing auðvelda bankanum alþjóð-
lega lánsfjármögnun,“ segir Stein-
þór sem kveður samkomulagið
jafnframt fela í sér að sérstökum
hömlum á arðgreiðslur hafi verið
hrundið úr vegi til hagsbóta fyrir
hluthafa. Það sé gríðar mikilvæg-
ur áfangi fyrir Landsbankann sem
unnið hafi verið að undanfarin ár.