Fréttablaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 86
OLÍS DEILD KARLA VALUR - STJARNAN 26-23 Valur - Mörk (skot): Kári Kristján Kristjánsson 6/3 (8/4), Guðmundur Hólmar Helgason 5 (10), Bjartur Guðmundsson 3 (4), Ómar Ingi Magnússon 3/2 (5/2), Geir Guðmundsson 3 (10). Varin skot: Stephen Nielsen 22/2 (45/4, 49%), Stjarnan - Mörk (skot): Egill Magnússon 17/1 (26/3), Starri Friðriksson 1 (2), Víglundur Jarl Þórs- son 1 (2), Hrannar Bragi Eyjólfsson 1/1 (2/1),. Varin skot: Sigurður Ólafsson 20 (44/3, 45%) FH - AFTURELDING 23-24 FH - Mörk (skot): Magnús Óli Magnússon 6 (14), Daníel Matthíasson 4 (4), Andri Hrafn Hallsson 4 (7), Ásbjörn Friðriksson 4/3 (7/3). Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 7 (14, 50%), Brynjar Darri Baldursson 7/1 (24/2, 29%). Afturelding - Mörk (skot): Jóhann Jóhannsson 7/1 (10/1), Árni Bragi Eyjólfsson 4 (5), Jóhann Gunnar Einarsson 4 (6/1), Elvar Ásgeirsson 3 (6). Varin skot: Pálmar Pétursson 24 (47/3, 51%). HAUKAR - ÍR 25-31 Mörk Hauka: Brynjólfur Brynjólfsson 6, Adam Haukur Baumruk 4, Árni Steinn Steinþórsson 4, Þröstur Þráinsson 4, Tjörvi Þorgeirsson 3. Mörk ÍR: Björgvin Hólmgeirsson 7, Sturla Ás- geirsson 7, Jón Heiðar Gunnarsson 6, Arnar B. Hálfdánsson 5, Davíð Georgsson 3. FRAM - HK 27-21 Mörk Fram: Garðar B. Sigurjónsson 8, Stefán Stefánsson 6, Ólafur Magnússon 4, Sigurður Þorsteinsson 3, Arnar Ársælsson 2, Ólafur Æ. Ólafsson 2, Þröstur Bjarkason 1, Kristinn Björg- úlfsson 1. Mörk HK: Þorgrímur Smári Ólafsson 9, Andri Þór Helgason 5, Guðni Kristinsson 2, Garðar Svansson 2, Þorkell Magnússon 2, Tryggvi Tryggvason 1. DOMINOS KARLA KR - STJARNAN 103-91 KR: Brynjar Þór Björnsson 23, Michael Craion 22/10 frák, Helgi Már Magnússon 18/8 frák/7 stoðs, Finnur Atli Magnússon 15, Pavel Ermolins- kij 13/12 frák/9 stoðs, Darri Hilmarsson 12/13 frá. Stjarnan: Jarrid Frye 28, Dagur Kár Jónsson 22, Justin Shouse 16/7 frák/7 stoðs/5 stolnir, Marvin Valdimarsson 9, Ágúst Angantýsson 8. NJARÐVÍK - SKALLAGRÍMUR 83-70 Njarðvík: Mirko Stefán Virijevic 23/17 frák, Ragnar Friðriksson 17, Hjörtur Einarsson 12, Maciej Baginski 10, Dustin Salisbery 10, Snorri Hrafnkelsson 6, Ólafur Aron Ingvason 5. Skallagrímur: Tracy Smith Jr. 26, Sigtryggur Björnsson 18, Daði Berg Grétarsson 9, Davíð Ás- geirsson 7, Davíð Guðmundsson 6. ÍR - HAUKAR 82-83 ÍR: Trey Hampton 22/15 frák, Matthías Orri Sigurðarson 20, Sveinbjörn Claessen 13, Ragnar Örn Bragason 9, Vilhjálmur Jónsson 8/7 fráköst. Haukar: Alex Francis 28/13 frák, Kári Jónsson 25, Haukur Óskarsson 7, Emil Barja 7/7 frák/10 stoð, Hjálmar Stefánsson 6, Kristján Leifur Sverrisson 5. TINDASTÓLL - SNÆFELL 104-77 Tindastóll: Myron Dempsey 27/12 frák, Helgi Margeirsson 15, Pétur Birgisson 13, Darrel Lewis 12/13 frák, Ingvi Rafn Ingvarsson 11, Svavar Atli Birgisson 8, Helgi Rafn Viggósson 6/11 frák. Snæfell: Sigurður Þorvaldsson 17/12 frák, Austin Bracey 17, Stefán Torfason 17, Snjólfur Björnsson 8, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 7, Chris Woods. KEFLAVÍK - GRINDAVÍK 96-84 Keflavík: William Graves VI 17, Eysteinn Ævarsson 16, Guðmundur Jónsson 15, Gunnar Einarsson 14, Þröstur Leó Jóhannsson 13/9 frák, Valur Orri Valsson 11, Reggie Dupree 8. Grindavík: Rodney Alexander 17, Ólafur Ólafsson 16, Oddur Kristjánsson 16, Magnús Þór Gunn- arsson 12/10 frák, Hilmir Kristjánsson 11. ÞÓR Þ. - FJÖLNIR 108-85 Þór Þ.: Tómas Tómasson 27, Vincent San- ford 21/10 frák, Þorsteinn Már Ragnarsson 15, Nemanja Sovic 15, Grétar Ingi Erlendsson 12, Emil Karel Einarsson 7, Halldór Hermannsson 5. Fjölnir: Daron Lee Sims 17, Arnþór Guðmundsson 15, Davíð Ingi Bustion 15, Róbert Sigurðsson 9, Garðar Sveinbjörnsson 8, Árni Hrafnsson 5. EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN KOMINN Í HEILAN HRINGFÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi, skrifaði í gær undir samning við enska B- deildarliðið Bolton, en hann hefur æft með því undanfarið og spil- að tvo æfingaleiki með varaliði félagsins. Þetta er í annað sinn sem Eiður Smári klæðist Bolton- treyjunni, en það var hjá Bolton sem ferill hans komst fyrir alvöru af stað fyrir 16 árum. Eiður hefur verið án liðs síðan hann sagði skilið við Club Brugge í Belgíu síðastliðið vor og því getur Bolton samið við hann utan félaga- skiptagluggans. Honum er ætlað að fylla skörð miðjumannanna Marks Davies og Chung-Yong Lee sem báðir eru meiddir. „Nú þegar Mark Davies er fjar- verandi og Chungy [Chung-Yong Lee] líklega frá fram í janúar töldum við að það væri þörf fyrir krafta hans,“ sagði Neil Lennon, knattspyrnustjóri Bolton, á blaða- mannafundi í gær. Bolton-liðið hefur verið að rífa sig upp úr kjallara B-deildarinn- ar í síðustu leikjum, en eftir erfiða byrjun er það nú búið að vinna þrjá leiki af síðustu fjórum og gera eitt jafntefli. Það er komið með 21 stig og er í 18. sæti deildarinnar. Tryggði stig tvo leiki í röð Eftir að hafa meiðst illa hjá PSV og haldið heim og spilað með KR stutta stund sumarið 1998 fékk Eiður Smári samning hjá Bolton sama ár. Hann heillaði Colin Todd, þáverandi knattspyrnustjóra Bolt- on, nóg þó að hann vissi að það tæki tíma að koma Eiði í leikform. Fyrsti leikur hans fyrir Bolton var gegn Birmingham í september 1998. Hann kom inn á sem vara- maður í 3-1 sigri, en Arnar Gunn- laugsson var í byrjunarliðinu í þeim leik. Landsliðsfyrirliðinn fyrrver- andi spilaði ekki meira á árinu þar sem hann þurfti að komast í betra leikform. Arnar Gunnlaugsson var seldur til Leicester í janúar, en stuðningsmenn Bolton þurftu ekki að örvænta. Annar ljóshærð- ur víkingur var að fara að láta að sér kveða. Eiður Smári spilaði næst 6. mars 1999 gegn Swindon og tryggði lið- inu eitt stig í 3-3 jafntefli. Þremur dögum síðar endurtók hann leik- inn; skoraði síðasta mark Bolton í 3-3 jafntefli gegn Barnsley. Þetta var upphafið af ástarsam- bandi Eiðs og stuðningsmanna liðsins, en Eiður spilaði í heildina 73 leiki fyrir Bolton á tveimur leik- tíðum og skoraði 26 mörk. Gullárin Það sem gerðist næst vita flestir. Gianluca Vialli, þáverandi knatt- spyrnustjóri Chelsea, keypti hann fyrir fjórar milljónir punda og Eiður Smári myndaði frábært framherja par með Hollendingnum Jimmy Floyd Hasselbaink. Fyrsta tímabilið skoruðu þeir samtals 33 mörk. Eiður Smári vann tvo Englands- meistaratitla og deildabikarinn með Chelsea og spænsku deildina, Snýr aft ur fj órtán árum síðar Eiður Smári Guðjohnsen skrifaði undir samning til loka tímabilsins við Bolton í gær. Hann spilaði síðast fyrir liðið árið 2000. Hann snýr nú aft ur til félagsins eft ir langan og farsælan feril. Endurkoma í landsliðið? spænska bikarinn og Meist- aradeild Evrópu með Barce- lona. Á sama tíma sló hann markametið hjá íslenska landsliðinu og bar fyrirliða- bandið hjá Íslandi. Átta lið á átta árum Eftir dvölina hjá Barcelona hefur Eiður Smári komið víða við undanfarin átta ár. Hann fór til Monaco sumarið 2009 en var lánaður til Tottenham í byrjun árs 2010. Hann fór aftur til Englands til að spila með Stoke og Fulham áður en hann skrifaði undir hjá AEK í Aþenu. Hann spilaði svo tvö ár í Belgíu með Brugge-liðunum Cercle og Club en hefur sem fyrr segir verið samningslaus síðan í vor. Endurkoma Eiðs til Bolton og í fótboltann býr til áhuga- verðan kost fyrir landsliðs- þjálfarana Lars Lagerbäck og Heimi Hallgrímsson. Eiður Smári sýndi á síðasta ári að hann nýtist landsliðinu mjög vel og er ekki útilokað að end- urkoma sé á dagskrá þar líka. tomas@365.is Eiður Smári Guðjohnsen er ekki eina dæmið um íslenskan atvinnumann sem hefur snúið aftur til evrópsks liðs sem hann hafði spilað með áður. Pétur Pétursson hóf atvinnumannsferil sinn með hollenska liðinu Feyenoord og lék þar við góðan orðstír 1978 til 1981 þar sem hann skoraði 42 mörk í 69 leikjum. Pétur kom síðan aftur til Feyenoord og lék þar tímabilið 1984-85 eftir að hafa spilað í Belgíu í millitíðinni. Veigar Páll Gunnarsson lék með norska liðinu Stabæk 2004 til 2008 en sneri síðan aftur til liðsins sumarið 2009 eftir að hafa spilað í millitíðinni með franska liðinu Nancy. Heiðar Helguson spilaði með Watford 1999 til 2005 og skoraði 55 mörk í 175 deildarleikjum og snéri síðan aftur á láni frá QPR árið 2009. Fyrstu skref Þórðar Guðjónssonar í atvinnu- mennsku voru með Bochum á árunum 1993 til 1997 en hann sneri síðan aftur til Bochum 2002. Helgi Kolviðsson hóf bæði og endaði atvinnumanns- feril sinn með austurríska liðinu SC Pfullendorf. Stefán Þór Þórðarson lék með sænska liðinu IFK Norr- köping frá 2005 til 2007 og kláraði síðan atvinnumanns- ferillinn hjá liðinu sumarið 2009. Þetta er ekki tæmandi listi en það er ljóst að fleiri en Eiður Smári hafa fengið tækifæri til að „koma“ heim. -óój, - tom Eiður Smári er ekki sá eini AFTUR TIL STABÆK Veigar Páll Gunn- arsson í leik með Stabæk. Hann átti frábæra tíma með norska liðinu. FÓTBOLTI Pálmi Rafn Pálmason skrifaði undir þriggja ára samning við KR í en hann er annar stóri bitinn sem Vesturbæjarstórveldið fær til sín í vetur. Húsvíkingurinn var mjög eftirsóttur, en KA, Valur og FH höfðu mikinn áhuga á að fá hann til sín. „Ég átti í miklum erfiðleikum með að velja og átti gott spjall við öll liðin. Það var svona maginn sem sagði mér að fara í KR. Ég hef mikla trú á verk- efninu sem er að fara í gang hérna. Hér vil ég vinna titla og gera það gott,“ sagði Pálmi Rafn. „Það var margt sem spilaði inn í. Ég átti gott spjall við Bjarna og Gumma og fleiri. En á endanum tók ég þessa ákvörðun og vonandi var þetta góð og rétt ákvörðun.“ Pálmi fékk tilboð frá öðrum liðum í Noregi en fannst þau ekki nógu spennandi. Hann vill ekkert segja til um hvort hann geti farið í janúar komi tilboð að utan. „Ég ætla ekkert að segja til um hvað stendur í samningnum. Ég hef hafnað tilboðum að utan sem hafa ekki verið spennandi. Það sem er í gangi hér finnst mér spennandi og þess vegna er ég hérna núna,“ sagði Pálmi. „Það var aðallega Noregur sem var að heyra í mér, en eins og ég segi var það ekki nógu spennandi til að taka því.“ - tom Pálmi Rafn vill vinna titla með KR KÁTIR Bjarni þjálfari með Pálma. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HANDBOLTI Alexander Petersson hefur framlengt samning sinn við þýska stórliðið Rhein-Neckar Löwen. Alexander kom til Löwen frá Füchse Berlin árið 2012. Gamli samningurinn átti að renna út í lok tímabilsins en nú er ljóst að hann verður áfram í herbúðum félagsins til loka tímabilsins 2017. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá að spila áfram hjá Löwen. Við erum með frábæran leikmannahóp og erum þess utan góðir vinir utan vallarins. Ég vil endur- gjalda það traust sem félagið hefur sýnt mér og vona að við náum góðum árangri saman,“ sagði Alexander í viðtali sem birtist á heimasíðu félagsins. Hann staðfesti að honum hafi boðist að fara til annarra félaga þar sem hærri laun voru í boði. „En mér og fjölskyldu minni líður afskaplega vel á þessu svæði og maður fórnar því ekki svo auðveldlega.“ - esá Alexander framlengdi við Löwen BOLTON WANDERERS 1998-2000 OG FRÁ 2014 73 LEIKIR, 26 MÖRK CHELSEA 2000–2006 334 LEIKIR, 104 MÖRK MÓNAKÓ 2009-2010 11 LEIKIR, 0 MÖRK BARCELONA 2006–2009 112 LEIKIR, 18 MÖRK STOKE 2010-2011 5 LEIKIR, 0 MÖRK AEK AÞENA 2011-2012 14 LEIKIR, 1 MARK CERCLE BRUGGE 2012-2013 14 LEIKIR, 7 MÖRK TOTTENHAM 2010 14 LEIKIR, 2 MÖRK FULHAM 2011 10 LEIKIR, 0 MÖRK CLUB BRUGGE 2013-2014 48 LEIKIR, 7 MÖRK SPORT 5. desember 2014 FÖSTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.