Fréttablaðið - 05.12.2014, Page 26

Fréttablaðið - 05.12.2014, Page 26
5. desember 2014 FÖSTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Í ævintýrum Harrý Potter er einn sem ekki má nefna á nafn. Í Hogwarts-skóla má ekki segja Lord Voldemort, þó svo að allt snúist um hann þegar upp er staðið. Það er ekki frá því að þessi samlíking komi upp í hugann, þegar umræða um matarskatt á sér stað á Alþingi Íslendinga þessa dagana. Þar tala allir um mikil- vægi þess að matvöruverð sé lágt og að það verði að gera hvað sem er til þess að koma í veg fyrir hækkun á matvöruverði, en það talar enginn þingmaður um Lord Voldemort. Af hverju? Má ekki nefna hann á nafn? Tveir meginþættir ráða því að mat- vöruverð á Íslandi er eins og það er. Bein skattlagning á vöruna, en sama varan getur verið skattlögð í mörgum þrep- um, með magntolli, verðtolli, vörugjaldi, umbúðagjaldi og síðast en ekki síst virðis- aukaskatti. Hins vegar eru dulin álög á heimilin hluti af vöruverði, þar sem verndartollar og viðskiptahöft valda því að verð á ákveðnum vörum er mun hærra en það annars gæti verið. Það hafta- og tollakerfi sem Alþingi hefur ákveðið að íslensk heimili búi við, kostar heimilin skv. nýjustu tölum OECD yfir 15 milljarða króna árlega. Öll þessi skattlagning fer í sama sjóð- inn, ríkissjóð. Því er með öllu óskiljanlegt að það þurfi mörg þrep skattlagningar til þess eins að koma hluta af verðmæti einn- ar vöru í ríkissjóð. Innfluttur rjómaís er t.a.m. skattlagður í öllum fimm framan- greindum þrepum. Síðasta þrepið, virðis- aukaskattur, er líklega einungis um 15% af heildarskattlagningu þeirrar vöru. Nú er rætt um breytingu á síðasta skattþrepinu, virðisaukaskatti úr 7% í 11%. Vörugjöld falla niður og einfalda þar með innheimtu skatta af sömu vörunni. Því ber að fagna. En betur má ef duga skal. Af hverju nefnir enginn þingmaður lækkun tolla í umræðu um verðlag á mat- vöru? Aukið viðskiptafrelsi er augljós leið til þess að bæta hag íslenskra heimila og auka kaupmátt þeirra. Hvað tefur? Ævintýri Harrý Potter á Alþingi FJÁRMÁL Finnur Árnason forstjóri Haga ➜ Það hafta- og tollakerfi sem Alþingi hefur ákveðið að íslensk heimili búi við, kostar heimilin skv. nýjustu tölum OECD yfi r 15 millj- arða króna árlega. Öll þessi skatt- lagning fer í sama sjóðinn, ríkissjóð. Því er með öllu óskiljanlegt að það þurfi mörg þrep skattlagningar til þess eins að koma hluta af verð- mæti einnar vöru í ríkissjóð. Fúlir þingmenn Sjálfstæðisflokks Það er manndómur þegar fólk segir hug sinn og því er gott hjá Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Pétri Blöndal að segjast vera vonsvikin yfir ákvörðun Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins, um að skipa Ólöfu Nordal í embætti innanríkisráðherra. Þau tvö, það er Ragnheiður og Pétur, höfðu ásamt nokkrum þingmönnum öðrum, sóst eftir embættinu og fengu ekki eins og allir vita. Hætt er við að vonbrigði vonbiðlanna vari í einhvern tíma. Ákvörðun Bjarna slær vopnin úr höndum margra og hún mun örugglega verða til að þess að sætta svekkta fyrr en ella. Bjarni gerði alla vega ekki upp á milli þing- manna. Brynhildur fagnar Einari forseta Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, fagnaði á Alþingi í gær að Einar K. Guðfinnsson hafnaði að verða innanríkisráðherra. „Hann er maður sátta og nýtur trausts þvert á flokka. Ég vil biðla til hæstvirts forseta um að vinna að því að breyta vinnuhefðinni hér til hins betra. Við getum ekki verið föst í því að svona hafi þetta alltaf verið. Það er ekki ásættanlegt,“ sagði Brynhildur. Einar, sem er kurteis maður þakk- aði fyrir sig; „Forseti vill þakka hlý o rð í sinn garð.“ Brynhildur óskaði eftir að Einar beitti sér fyrir að hafa þingfundi frekar að degi til en um nætur. Tjáir forseta ástúð og alúð Össur Skarphéðinsson varð ekki orða vant þegar hann steig í ræðustól Alþingis í gær. „Ég vil sömuleiðis tjá hæstvirtum forseta, Einari K. Guð- finnssyni, ást mína og alúð alla og er honum hjartanlega þakklátur fyrir að hafa fundist hlíðin sín fögur og farið hvergi.“ Birgitta Jónsdóttir var líka sátt við að Einar K. Guðfinnsson hafnaði embætti innanríkis- ráðherra. „Ég vil byrja á því að lýsa yfir ánægju minni með að hæstvirtur forseti sé enn þá forseti, ég hef mært forseta þingsins fyrir að halda vel á málum hér þegar við erum að glíma við flóknar aðstæður.“ sme@frettabladid.is RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN AÐGANG AÐ TÓNLISTINNI Í ÖLLUM HERBERGJUM Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar stafræna tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú getur stjórnað frá hvaða síma eða spjaldtölvu sem er. S veitarfélög sem sent hafa inn umsögn við frumvarp nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins um afnám lágmarksútsvars hafa öll lýst sig því andsnúin. Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til þess að í stjórnarskrá sé sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélga stað- festur. „Haldgóð rök og verulegir hagsmunir þurfa því að koma til ef skerða á þennan ákvörðunarrétt. Bein íhlutun um lágmarks- útsvar getur tæpast talist uppfylla þau skilyrði,“ segir þar. „Óeðlilegt er að bundið sé í lög að innheimta skuli að lágmarki tiltekinn skatt af íbúum, hvort sem þörf sé á honum til að sinna lögboðnu hlutverki eða ekki.“ Í umfjöllun Fréttablaðsins síðustu daga (sem og í umsögn- um sveitarfélaga við frumvarpið) hafa hins vegar komið fram haldgóð rök sem sýna hversu fljótfærnisleg og skammsýn tillaga þingmannanna er. Þannig bendir bæjarráð Sandgerðisbæjar á í umsögn sinni að með afnámi lágmarksútsvarsins væri ýtt undir aðstöðumun á milli sveitarfélaga og samkeppni þeirra á milli. „Jafnframt væri hætta á því að ójöfnuður í samfélaginu myndi aukast þar sem einstaka sveitarfélög gætu boðið útsvarsprósentu sem væri miklum meirihluta þeirra ómögulegt að bjóða. Þá er líklegt að skekkja myndi myndast á milli þess hvar fólk býr og hvar það þiggur sína þjónustu,“ segir þar. Í blaði gærdagsins furðar Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, sig líka á hugmyndum oddvita Skorradalshrepps, sem lýsti því áður í blaðinu hvernig lægra útsvar þar laðaði efnameira fólk til hreppsins, fólk sem síðan ætti líka „athvarf“ í þéttbýlinu. „Honum finnst spennandi að laða að sér efnameira fólk sem þarf ekkert frá sveitarfélaginu og veita því afslátt frá sköttum. Væntanlega í trausti þess að það flytji svo lögheimilið aftur ef þörf á þjónustu breytist,“ sagði Dagur. Í sömu frétt varar Dagur Jóhannesson landfræðingur við því að lítil sveitarfélög sem búi við góðar tekjur, svo sem vegna virkjana, geti lækkað útsvar úr hófi. Niðurstaðan gæti orðið að fólk flytji þangað lögheimili án þess að búa þar að staðaldri. Heppilegra væri að stærri svæði nytu góðs af virkjunum og starfseminni í þeim sveitarfélögum. Og þar liggur kannski hundurinn grafinn. Auðvitað eru sveitar- félög á Íslandi allt of lítil. Lítil og tekjuhá sveitarfélög geta grafið með þessum hætti undan sameiginlegri velferð í nágrannasveitar- félögunum og lítil og fátæk sveitarfélög standa ekki almennilega undir lögbundnum hlutverkum og stuðla að láglaunastefnu þeirra allra vegna eigin hallæris. Umgjörð sveitarfélaga þarf að skoða með miklu heildrænni hætti en fram kemur í grunnhyggnu frumvarpi þingmannahóps- ins. Eigi að afnema lágmarksútsvar þyrfti alveg örugglega um leið að toga upp ákvæði um lágmarksstærð sveitarfélaga þannig að ekkert þeirra geti verið stikkfrí í að veita borgurum landsins þjónustu. Rætt hefur verið um að draga línuna við þúsund íbúa án þess að sátt næðist um það. Líklega væri samt nær lagi að draga línuna við tíu eða fimmtán þúsund. Afnám lágmarks á einum stað í lögum um sveitar- félög kallar á nýja lágmarkssetningu á öðrum: Smæðin gagnast ekki fjöldanum Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.