Fréttablaðið - 05.12.2014, Síða 42
4 • LÍFIÐ 5. DESEMBER 2014
Desember heiðrar okkur með
nærveru sinni einu sinni á ári.
Hans er beðið með mikilli eftir-
væntingu en stundum er eins og
hann dulbúist sem boðberi vel-
líðunar og gleði, en undir niðri
veldur hann oft álagi og sam-
viskubiti.
Margir fyllast kappsemi við
að ljúka verkefnum sem ekki
náðust á árinu eins og að huga
betur að heilsunni og komast í
kjólinn fyrir jólin. Aðrir fara í
metnaðarfullan jólaundirbún-
ing og líta á það sem skyldu að
skreyta heimilið, vera með fimm
smákökusortir að ógleymdu
heimagerðu piparkökuhúsi. Til
viðbótar er desember orðinn
mánuður samverustunda þar
sem hvert jólahlaðborðið á fætur
öðru býður betri og fjölbreytt-
ari málsverði. Eins rómantísk
og ofangreind lýsing hljómar, þá
virðist það vera svo að dásam-
legi desember sé með allt of
margar óskrifaðar reglur.
Kveddu samviskubitið
Þar sem ekki er hægt að treysta
á nútímatækni og lifa í þeirri
von að klónun hefjist innan tíðar,
þarf kannski að endurskrifa
óskrifuðu reglurnar í desemb-
er. Mig langar að koma með til-
lögur. Þar sem markmiðið er að
kveðja samviskubit og álag sem
ferðafélaga á aðventunni er mik-
ilvægt í upphafi mánaðar að
skipuleggja sig vel. Búa þarf til
raunhæfar væntingar með fjöl-
skyldunni um hvað á að gera
og gefa öllum meðlimum, bæði
stórum og smáum, tækifæri til
að velja eitt ákjósanlegt verkefni
eða atburð. Með þessum undir-
búningi fara allir samstilltir inn
í vikurnar og fjölskyldan getur
látið sig hlakka til sameiginlegra
verkefna.
Velja þarf úr skipulögðum at-
burðum með vinnufélögum og
vinum sérstaklega í ljósi þess að
enn hefur það ekki verið sannað
að samverustund í desember sé
meira gefandi en í janúar. Ákjós-
anlegt er því að fresta sumu
fram yfir hátíðirnar.
Gleðjum og njótum
Að lokum er mikilvægasta til-
laga þessa pistils: Njótum fjöl-
skyldunnar og fólksins í kring-
um okkur frekar en veraldlegra
hluta. Vöndum okkur við að
dvelja í og njóta þeirra stunda
sem við erum að upplifa hverju
sinni. Það er segin saga að
hamingja fjölskyldunnar veit-
ir meiri gleði en allir pakkarn-
ir undir jólatrénu samanlagt. Ef
við skipuleggjum og veljum vel,
vöndum okkur við það að gleðja
og njóta, verða óskrifuðu regl-
urnar í dásamlegum desemb-
er tilhlökkunarefni allt árið í
kring.
DÁSAMLEGI DESEMBER
Jólamánuðurinn getur verið mikill álagstími fyrir fjölskyldur og stundum fullmikið kapp lagt á
herlegheitin. Metnaðurinn nær hámarki og það þarf helst allt að gerast í þessum eina mánuði
Hamingja fjölskyldunnar veitir meiri gleði en allir pakkarnir undir jólatrénu samanlagt.
„Þar sem ekki er
hægt að treysta á
nútímatækni og lifa í
þeirri von að klónun
hefjist innan tíðar, þarf
kannski að endurskrifa
óskrifuðu reglurnar í
desember.“
Ragnhildur Bjarkadóttir
Hrefna Hugosdóttir
fjölskylduráðgjafar
Ekki vanmeta mátt svefnsins en
hann er einn mikilvægasti þátt-
ur þess að halda góðri heilsu.
Nýttu helgina í að hlaða batterí-
in og endurnærast á líkama og sál.
Svefn er bestur til þess, passaðu að
fá 7-8 tíma svefn á hverri nóttu og
njóttu þess að slaka á og kúra.
HOLLRÁÐ
HELGARINNAR
Fáðu nægan svefn
STREITURÁÐ
VIKUNNAR
Ef þú átt við vandamál að stríða
skaltu leita lausna. Ef þú ræður
ekki við það, leitaðu þá stuðnings
og fáðu ráð. Ekki fresta þessu því
það veldur þér bara innri streitu.
Ekki fresta því
að leita lausna
N ýlega sá ég myndband sem sýndi hvað konur gera
þegar þær eru einar heima hjá
sér. Þetta eru hlutir eins og að
skoða á sér brjóstin, bæði kreista
þau saman, toga, lyfta og at-
huga hvort þeirra er stærra en
hitt. Auðvitað var einnig sungið
um alla íbúð, horft á sjónvarpið
nakin með rauðvínsglas og stað-
ið fyrir framan spegilinn í mjög
langan tíma að grandskoða hvern
krók og kima andlitsins. Og gagn-
rýna, það má ekki gleyma því.
Ekki hrósa, bara gagnrýna. Ég
man eftir svipuðu atriði hjá stelp-
unum í Beðmál í borginni. Þær
sögðu að þetta væru leynihlutirn-
ir sem makinn mætti alls ekki sjá
því þá myndi hann ekki ná honum
upp aftur, eða eitthvað svoleiðis.
Mér finnst þetta áhugaverð pæl-
ing því í mínum huga er það ein-
mitt lýsandi fyrir hjarta sam-
bandsins að geta gert þessa hluti
með þeim eða þeirri sem maður
elskar. Það að opinbera sig alger-
lega og vera gjörsamlega með
ekkert að fela og þá vonandi fær
það makann til að verða enn ást-
fangnari af manni því þarna er
þitt raunverulega sjálf. Þetta frá-
bæra sjálf sem vinkonur og vinir
sjá og dýrka mann og dá út af. Ég
held að þegar maður er alltaf að
passa sig og sýna ákveðið and-
lit þá haldi maður aftur af sér og
jafnvel setji stoppara á hversu
djúpt ástin getur þróast. Drama-
tískt, ég veit, en pældu aðeins í
þessu.
Niðurstöður tveggja nýlegra
rannsókna bentu til þess að pör
sem hafa verið í fjarsambandi eru
líklegri en önnur pör til að hætta
saman þegar þau loks eru saman
á sama stað. Stundum höldum við
að við þurfum að sýna makanum
okkur í ákveðnu ljósi og að sumt
þoli ekki dagsljósið. Ég púa á slíkt.
Varla er hægt að halda uppi ein-
hverjum leik þegar annað fólk býr
með nefið ofan í koppnum okkar.
Kveðjusetning fyrrverandi
elskhuga minna hefur gjarn-
an verið: „Þú ert frábær, en bara
ekki fyrir mig, en lofaðu mér að
þú munir ekki breytast.“ Það er
nefnilega aðlaðandi að vera þú
sjálf/-ur þótt það henti ekki öllum.
Mín heimahegðun er að vakna
syngjandi og greina heimilis-
mönnum frá draumförum nætur-
innar, hanga í náttfötunum fram-
eftir, horfa á draugaþætti í baði,
binda hárið í fáránlegan hnút, fá
mér nammi og snakk ofan á ristað
brauð og skola því niður með lítra
af mjólk. Hver á sína eigin heima-
hegðun. Þetta má vera skrítið en
það er einmitt málið. Þetta ert þú
og ekkert sem þú þarft að skamm-
ast þín fyrir eða fela. Fólki finnst
þú frábær en þú verður líka að
hleypa að þér og leyfa því að sjá
hversu innilega frábær þú ert.
LEYNIHEGÐUN FÓLKS
Í SAMBÖNDUM
„Þetta eru hlutir eins
og að skoða á sér
brjóstin, bæði kreista
þau saman, toga, lyfta
og athuga hvort þeirra
er stærra.
Ef þú hefur spurningu um
kynlíf þá getur þú sent
Siggu Dögg póst og
spurningin þín gæti birst í
Fréttablaðinu.
sigga@siggadogg.is
VILTU SPYRJA UM KYNLÍF?
100% hreinar
Eggjahvítur
Fjölvítamín frá náttúrunnar hendi
Án allra aukaefna!
Gerilsneyddu eggjahvíturnar
eru frábær valkostur í jólabaksturinn.
Hugsaðu um hollustuna, veldu eggjahvítur frá Nesbúeggjum.
Ís
le
ns
k framleiðsla
Heilsuvísir