Fréttablaðið - 05.12.2014, Síða 49

Fréttablaðið - 05.12.2014, Síða 49
LÍFIÐ 5. DESEMBER 2014 • 11 MYNDAALBÚMIÐ Með frumritin að Frozen og Disney-princess. Ég og Óliver Jack sonur minn. Teikningarnar mínar Fagur fiskur í sjó. skoðað markaðinn vel þá sá ég að það var glufa því það var ekki til hárbók á skandinavískum markaði með einföldum og fallegum hvers- dagsgreiðslum. Flest allt sem ég skoðaði var flókið og of „gert“ – það er eitthvað sem þú sérð meira gert á hárgreiðslustofum en heima hjá þér. Ég vildi gefa öllum konum tækifæri á að læra á hárið sitt og læra að greiða sér sjálfar á einfald- an og skemmtilegan máta.“ Ári síðar kom út önnur bók Theo- dóru sem nefndist Lokkar og nú í ár komu út bækurnar Disney Frozen Hairstyles sem og Disney Princess Hairstyles í samvinnu við Eddu út- gáfu en þær hafa svo sannarlega slegið í gegn hérna heima sem og í Bandaríkjunum. „Bókin Disney Princess Hairstyles kemur ein- ungis út í Ameríku, hún er nýkom- in út og er nú þegar búin að seljast í mörgum tugum þúsunda eintaka í forsölu!! Ég var einnig að frétta í gær að hún er bók nr. 1 á lista Ama- zon yfir „Amazon Hot New Re- leases“ sem er fáránlega magnað,“ segir hún og bætir við að fimmta bókin, Frozen 2, sé í burðarliðun- um en þá bók gerir hún með hinni hæfileikaríku Sögu Sig ljósmynd- ara. „Ég er auðvitað brjálæðislega þakklát öllum þeim sem komu að gerð bókanna, en ég gerði þetta sko ekki ein! Edda USA er 100% á bak við bækurnar, þau taka alla áhætt- una og hafa óbilandi trú á mér og því sem mér dettur í hug, sem er ómetanlegt. Bestu hlutirnir gerast í góðu þverfaglegu umhverfi.“ Þannig kýs ég að lifa Theodóra er yfirleitt með þús- und og einn hlut í ofninum eins og hún segir sjálf frá en er samt alveg ótrúlega jarðbundin við nán- ari kynni þrátt fyrir að vera hug- myndaríkur sveimhugi. „Ég er mjög slök á plönum og vil helst ekki plana mig langt fram í tím- ann, ég ræðst mjög mikið af til- finningum og ef tilfinning mín er ekki rétt gagnvart einhverju sleppi ég því eða fer aðra braut. Þannig kýs ég að lifa.“ Allt þetta skýrir það kannski hvers vegna Theodóra getur sinnt því að vera fjölskyldumanneskja, skrifað bækur, sinnt hárgreiðslu- störfum, „freelancað“ í myndatök- um ýmiskonar, skrifað frábærar færslur á Trendnet og núna, nýj- asta nýtt, teiknað ótrúlega fallegar fiskamyndir sem hún kallar Fagur fiskur í sjó. „Ég pæli mikið í ferða- mannabransanum og hvaða tákn- mynd við Íslendingar notum til að kynna land okkar og þjóð. Ís- lenska sauðkindin hefur verið vin- sæl táknmynd ásamt lundanum og eldgosinu, en íslenski fiskur- inn sem er jafnframt ein helsta út- flutningsvara okkar, hefur lítið verið notaður í fagurfræðilegum tilgangi. Afurðir fisksins, roðið og beinin, hafa verið notuð en fiskur- inn sem slíkur hefur lítið verið not- aður. Síðustu mánuði hef ég sökkt mér ofan í fiskibækur og lesið mér mikið til um alls kyns fiska á net- inu og komist að því að fiskar eru ótrúlega falleg dýr. Litadýrðin og symmetrían í þeim er áberandi og skemmtileg og heillast ég mjög mikið af því. Mér fannst því tilval- ið að teikna upp nokkra af uppá- haldsfiskunum mínum við Íslands- strendur með þessum hætti,“ segir hún og bætir við að hún hafi allt- af verið mikill teiknari sem aðal- lega vann með penna eða blýant en núna sé hún búin að færa sig yfir í tölvuteikningu sem hafi blundað lengi í henni. „Ég er svo rosalega geómetrísk og hef ekki þolinmæði fyrir því að nota reglustiku í teikn- ingunum mínum. Tölvuteikning- arnar verða miklu hreinni og skýr- ari og svo er svo auðvelt að skipta um liti og form án þess að þurfa að teikna allt upp á nýtt.“ Vegir Theo- dóru eru litríkir og fallegir og virðist allt verða að ævintýri sem hún kemur nálægt. Það verður því fróðlegt að sjá hvað liggur fyrir henni í nánustu framtíð en eitt er víst að okkar manneskja leggur ávallt hug og hjarta í þau verkefni sem hún tekur sér fyrir hendur. GRÍPTU GÆSINA CHATEAU SPORTÍS MIKIÐ ÚRVAL AF CANADA GOOSE DÚNÚLPUM DOWSON CITADEL KENSINGTONSHELBURN VICTORIA TRILLIUM OPIÐ: MÁN. - FÖS. KL. 12 - 18 - LAU. KL. 12-16 MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS MONTEBELLO
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.