Fréttablaðið - 05.12.2014, Side 68
„Ég er ekki alveg dauður enn, þótt
það sé erfiður hjalli að verða fer-
tugur,“ segir Steingrímur Þór-
hallsson, organisti í Neskirkju,
hlæjandi þegar hann er beðinn að
segja frá því stórvirki sem hann
og kórar Neskirkju eru að ráðast
í, ásamt barokksveit og einsöngv-
urum. Þar er um Jólaóratoríu J.S.
Bach að ræða og flutningurinn
hefst klukkan 19.30 í kvöld, föstu-
dag.
Að jólatónleikar Neskirkju eru
svona veglegir þetta árið helg-
ast meðal annars af því að Stein-
grímur verður fertugur á morgun,
6. desember. „Það eru ekki alveg
allir sem fá að stjórna Jólaóratoríu
Bachs áður en þeir verða fertugir
en ég næ því fjórum tímum fyrr,“
segir hann glaðlega. „Málið er að
ég er búinn að vera í panik yfir
þessu afmæli síðan ég var þrjátíu
og þriggja!“
Steingrímur segir Jólaórator í-
una einstakt verk, barmafullt af
gleði, birtu og þakklæti og eiga
erindi til okkar allra. „Við lögðum
upp með þetta stóra verkefni fyrir
rúmu ári,“ segir hann og kveðst
leggja mikið á kirkjukórinn. Svo
er hann líka með stúlknakór sem
hann er stoltur af. „Sumar stelp-
urnar hafa verið hjá mér í nokk-
ur ár og svo hafa komið nokkrar
nýjar, öflugar, núna í vetur. Það er
draumur hvers kórstjórnanda að fá
krakka á þessum aldri inn í kóra-
starfið.“
Einsöngvarar á tónleikunum
verða þau Hallveig Rúnarsdóttir
sópran, Jóhanna Halldórsdóttir
alt, Þorbjörn Rúnarsson tenór og
Hrólfur Sæmundsson barítón. „Við
Hrólfur og Hallveig höfum fylgst
dálítið að síðan í MH,“ segir Stein-
grímur. „Við Hallveig höfum aldrei
rifist og ég man eftir Hrólfi garg-
andi uppi á sviði með einhverri
popphljómsveit. Skildi ekkert í
hversu mikið fór fyrir röddinni í
honum en nú er hann bara orðinn
einn af okkar helstu söngvurum á
klassíska sviðinu. Ég hef líka oft
unnið með Jóhönnu, hún er mikil
barokkmanneskja, alveg yndis-
leg og Þorbjörn er einn aðal guð-
spjallamaður landsins.“
Það var hins vegar ekki alveg
einfalt að stofna tuttugu manna
barokksveit hér á landi en það
tókst í haust og Steingrímur segir
Peter Thompkins leiða hana eins
og herforingi. „Það er gaman að
geta flutt þetta fallega verk með
barokkstillingu, það verður allt
mildara,“ segir Steingrímur og
bætir við: „Svo er þetta tækifæri
fyrir íslenska spilara. Ef ég væri
fiðluleikari þá vildi ég vera bar-
okkfiðluleikari.“ gun@frettabladid.is
Nær Jólaóratoríunni
rétt fyrir fertugt
Steingrímur Þórhallsson stjórnar kór og stúlknakór Neskirkju, stórri barokksveit
og fj órum einsöngvurum í fl utningi Jólaóratoríu Bachs í Neskirkju í kvöld.
ORGANISTINN „Jólaóratorían er einstakt verk, barmafullt af gleði, birtu og þakklæti,“ segir Steingrímur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ég er uppalinn á Húsavík og þar
hóf ég mitt tónlistarnám. Ég var
verulega nálægt því að hætta
kringum fermingaraldurinn
en mamma og góðir kennarar
afstýrðu því. Það var keyptur inn
frábær kennari frá Bandaríkjun-
um, David Thompson. Hann bara
bjargaði mér, ég var hjá honum
í tvö ár og reif mig gersamlega
upp. Líklega lifi ég á því enn.
➜ Um upphaf
tónlistarnámsins
Jólasýning Möguleikhússins, Smið-
ur jólasveinanna, snýr aftur nú
fyrir jólin eftir alllangt hlé. Sýning-
ar verða í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi á morgun og sunnudag-
inn 14. desember klukkan 14 og einn-
ig í Sögusetrinu á Hvolsvelli þriðju-
daginn 9. desember klukkan 16.
Smiður jólasveinanna var fyrst
sýndur fyrir jólin 1992 og naut
þá þegar mikilla vinsælda. Síðan
hefur leikritið reglulega verið á
dagskrá Möguleikhússins. Leik-
ritið var einnig gefið út á geisla-
diski fyrir jólin 1993. Höfundur og
leikstjóri sýningarinnar er Pétur
Eggerz, sem einnig hannaði leik-
mynd ásamt Bjarna Ingvarssyni,
tónlist gerði Ingvi Þór Kormáks-
son og búningahönnuður er Helga
Rún Pálsdóttir. Leikarar eru Val-
geir Skagfjörð, Rósa Ásgeirsdóttir,
Alda Arnardóttir og Pétur Eggerz.
Sýningin er ætluð börnum á aldr-
inum 2-10 ára.
Smiður jólasveinanna snýr aft ur
Möguleikhúsið sýnir barnasýninguna Smiður jólasveinanna í Gerðubergi.
SMIÐUR JÓLASVEINANNA Leikarar eru Valgeir Skagfjörð, Rósa Ásgeirsdóttir, Alda
Arnardóttir og Pétur Eggerz. MYND/MÖGULEIKHÚSIÐ
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
Fríkirkjan í Reykjavík
Helgihald um jól og áramót
7. des. sun. kl. 20:00
Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld.
Ræðumenn kvöldsins verða söngvaskáldið Svavar Knútur og séra
Hjörtur Magni. Fram koma Einar Clausen, Svavar Knútur, Sönghópur
Fríkirkjunnar, Barnakór Fríkirkjunnar, Skólakór Landakotsskóla,
Þorgrímur Jónsson, kontrabassaleikari, Ásgeir Ásgeirsson, gítar-
leikari og Gunnar Gunnarsson sem jafnframt er organisti kirkjunnar og
stjórnandi sönghóps. Álfheiður Björgvinsdóttir er stjórnandi barnakórs.
14. des. sun. kl. 14:00
Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík.
Hefst með jólastund í kirkjunni. Síðan haldið upp í Safnaðarheimili og
sungið og dansað í kringum jólatréð með jólasveininum. Kaffi og
meðlæti fyrir alla.
21. des. sun. kl. 14:00
Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags
Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins.
24. des. mið. kl. 18:00
Aftansöngur á aðfangadagskvöldi.
Söngkonana Nathalía Druzin Halldórsdóttir syngur einsöng.
Sönghópur Fríkirkjunnar syngur jólin inn og leiðir safnaðarsöng undir
stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni þjónar fyrir altari.
24. des. mið. kl. 23:30
Miðnætursamvera á jólanótt.
Páll Óskar og Monika Abendroth ásamt strengjasveit.
Sr. Hjörtur Magni talar til viðstaddra. Sönghópur Fríkirkjunnar ásamt
Gunnari Gunnarssyni. Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti!
25. des. fim. kl. 14:00
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag.
Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól. Egill Ólafsson söngvari syngur
og spjallar um tónlistarval sitt. sr. Hjörtur Magni Jóhannsson,
Sönghópur Fríkirkjunnar ásamt Gunnari Gunnarssyni.
31. des. mið. kl. 17:00
Aftansöngur á Gamlárskvöldi.
MENNING
5. desember 2014 FÖSTUDAGUR