Fréttablaðið - 05.12.2014, Side 78

Fréttablaðið - 05.12.2014, Side 78
5. desember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 54 „Þetta ferðalag átti að vera hóp- ferð í tilefni af tónsmíðaviku hjá listahópnum S.L.Á.T.U.R., sem farin er reglulega, en í þetta sinn var einstaklega léleg mæting og við enduðum bara tveir,“ segir Áki Ásgeirsson raftónlistarmaður. Hann ásamt félaga sínum Hall- dóri Úlfarssyni, listamanni og hönnuði, flytur vídeóverk og tón- listaratriði sem tengjast ferð þeirra á seglskútu um Breiðafjörð sumarið 2012. „Það er frekar mikil skuldbinding að fara í svona úti- legu á sjó í heila viku,“ segir Áki. Markmið ferðarinnar var að loka sig af, búa til tónlist og taka það upp. „Að vera úti í nátt- úrunni er mjög gott umhverfi fyrir listsköpun. Þetta var rosa- lega gaman og vakti margar pæl- ingar um sjálfbærni og hversu háð við erum menningunni og mannfólkinu,“ segir hann, en í vídeóverkinu má sjá samræður þeirra á milli og pælingar í ferð- inni. „Þegar þú ert á bát þá ertu mjög einangraður. Engin þjónusta eða samskipti við ytri heiminn og maður er farinn að telja vistir. Þá losnar þú við þessa samblöndun sem maður verður fyrir í borg- inni. Hins vegar kemstu líka að því að rómantíska sveitalífið er ekkert frábært til lengdar. Þú ferð að sakna einhvers og náttúr- an er ekkert spes þegar maður er í henni. Maður hættir að skynja náttúruna alveg eins og borgina,“ segir Áki. Tónlistin sem spiluð er í mynd- inni er samin af Áka, en Halldór sá um myndbandið og vinnslu þess. Sýningin er í Mengi á Óðins- götu og hefst hún klukkan 21. - asi Fóru saman í skapandi útilegu á seglskútu Þeir Áki Ásgeirsson og Halldór Úlfarsson úr listahópnum S.L.Á.T.U.R. sýna myndband úr ferðalagi um Breiðafj örð í kvöld. DJÚPAR PÆLINGAR Þeir félagar Áki og Halldór sýna afrakstur ferðarinnar á sýningunni í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Justin Bieber er fluttur út af heimili sínu í Beverly Hills, nágrönnum hans væntanlega til mikillar ánægju. Þeir hringdu oft í lögregluna og kvörtuðu yfir honum á þeim sex mánuðum sem hann bjó þar, þar á meðal vegna sterkrar lyktar af eiturlyfinu maríjúana. Hinn tvítugi Bieber var með penthouse-íbúð og íbúðina fyrir neðan á leigu í fjölbýlishúsinu. Vefsíðan TMZ heldur því fram að nágrannar hans séu svo glaðir yfir brotthvarfi popparans að þeir íhugi að halda partí til að fagna tímamótunum. Justin Bieber fl uttur út JUSTIN BIEBER Popparinn er fluttur út úr íbúð sinni í Beverly Hills, nágrönnum hans til mikillar gleði. NORDICPHOTOS/GETTY Courtney Love hefur enga stjórn á því hvað birtist í væntanlegri heimildarmynd um rokkarann sál- uga Kurt Cobain. Ekkjan aðstoðaði við að koma myndinni af stað árið 2007 en síðan ekki söguna meir. „Hún lét mig hafa lyklana að konungsríkinu og algjör yfirráð yfir myndinni,“ sagði leikstjórinn Brett Morgen við The Hollywood Reporter. „Um tíma vann ég náið með Love og Frances Bean [dóttur Cobains og framleiðanda myndar- innar]. Við samþykktum að vegna þess að Courtney væri viðfangs- efni myndarinnar væri það best að hún fengi ekki að ritskoða hana á nokkurn hátt. Hún hefur ekki séð myndina. Ég er ekki viss um að hún ætli að gera það.“ Ræður ekki yfi r myndinni COURTNEY LOVE Hefur enga stjórn á því hvað birtist í heimildarmyndinni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.