Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2010, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 31. mars 2010 FRÉTTIR
MINNKANDI
SKULDAKÓR
n Guðmundur Ólafsson hagfræð-
ingur þótti tortryggilegur þegar
hann varð fyrstur hagfræðinga
til þess að gera
lítið úr skuld-
um þjóðarinn-
ar eftir banka-
hrun. Draga
yrði frá eign-
ir, eðlileg lán í
góðum farvegi,
skoða tekju-
hliðina og svo
framvegis. Að öllu samanlögðu
telur hann skuldir ríkisins liðlega
1.000 milljarða króna eða innan við
60 prósent landsframleiðslunnar.
Nú hefur Guðmundi bæst liðsauki.
Menn eins og Gylfi Magnússon
ráðherra og Jón Daníelsson hag-
fræðingur tala nú einnig máli Guð-
mundar. Segja má í anda máltæk-
isins, að allir vildu nú Lilju kveðið
hafa, nema Lilja Mósesdóttir, VG,
sem enn hefur áhyggjur af því að
heildarskuldir séu meira en þreföld
landsframleiðslan.
GRÍSKUR HARMUR
n Doktor Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson eru nú lagstur yfir gríska
harmleiki og sér fyrir sér Davíð
Oddsson sem
Kassöndru, sem
var þeirri náttúru
gædd að sjá allt
fyrir en enginn
trúði. Ekkert hafi
stöðvað dýrkun
auðjöfranna eftir
að Davíð reyndi
sem forsætisráð-
herra að koma böndum á fjölmiðla-
eign þeirra árið 2004. Enginn hafi
hlustað á viðvaranir hans eftir að
hann varð seðlabankastjóri. Sumir
hafa klórað sér í höfðinu yfir þess-
ari samlíkingu doktors Hannesar.
Sá hann sumt fyrir og annað ekki?
Sá hann til dæmis ekki fyrir Icesa-
ve-pláguna þegar hann í stöðu for-
sætisráðherra seldi vinum sínum
Landsbankann?
STJÓRNLÖG
GRASRÓTARINNAR
n Lítið þykir fara fyrir áformum um
endurnýjun stjórnarskrárinnar og
lýðræðisumbætur þrátt fyrir fögur
fyrirheit stjórnvalda. Nú heyrist að
Borgarahreyfingin - ekki Hreyfing-
in - hafi uppi áform um að virkja
grasrótina til góðra verka og efna til
eigin stjórnlagaþings. Ætlunin er
að virkja talsverðan hóp til verka og
verja til þess einhverju söfnunarfé.
Farið yrði um landið, málið kynnt í
bak og fyrir og reifaðar hugmyndir
um breytingar á stjórnarskránni.
Að þessu loknu þykir gráupplagt
að efna til kosninga á netinu um
mögulegar stjórnarskrárbreyting-
ar. Niðurstaðan yrði loks kynnt
stjórnvöldum. Þarna væri kom-
inn enn einn þrýstihópurinn sem
stjórnvöld þurfa að glíma við.
SANDKORN
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Fermingargjöfin
er íslensk hönnun
Ungur nemandi í Reykjavík hefur
verið útilokaður frá samskiptum við
jafnaldra sína. Hann er af erlendu
bergi brotinn og foreldrar bekkj-
arsystra hans lögðust gegn áfram-
haldandi veru hans í bekknum eftir
samskipti við stúlkurnar. Kvartanir
foreldra hafa samkvæmt heimildum
DV leitt til þess að ungi nemandinn
dvelur í sérherbergi yfir skóladaginn,
fjarri bekkjarsystkinum, fær hvorki
að fara í frímínútur með þeim né
borða með þeim hádegismat í mat-
sal skólans. Þannig hafa síðustu vik-
ur verið hjá drengnum í skólanum.
Eftir áramót komu fram ásakan-
ir á hendur drengnum fyrir ósiðlega
hegðun. Þær ásakanir bárust skóla-
stjórnendum skólans ásamt kröfu
foreldra að hann yrði útilokaður frá
samskiptum við jafnaldra sína. Við
þeirri beiðni var orðið með áðurlýst-
um hætti en eftir því sem DV kemst
næst hefur drengnum verið leyft
að fara í frímínútur og matsal með
yngsta stigi skólans.
Hljómar sérkennilega
Án þess að hafa kynnt sér málið sér-
staklega segir Kolbrún Baldursdóttir
sálfræðingur fyrstu viðbrögð skólans
hljóma einkennilega. Hún vonast til
þess að fagfólk sé að vinna í málinu.
„Mér finnst þetta svolítið sérstakt.
Allt saman eru þetta börn. Þetta mál
þarf að rannsaka til hlítar því við-
komandi nemandi gæti sjálfur verið
þolandi einhvers og ég treysti því að
þetta sé í höndum fagfólks. Ég spyr
mig að því hvort túlkur hafi nægjan-
lega komið að málinu til að hjálpa
fjölskyldunni,“ segir Kolbrún.
„Þá velti ég því fyrir mér hvort
skólinn standi ráðþrota gagnvart
málinu þar sem viðkomandi er alls
ekki treyst fyrir því að koma nálægt
öðrum börnum. Ef viðkomandi glím-
ir við sálræn vandamál þarf að huga
að því þegar í stað. Að minnsta kosti
hljómar eins og þarna sé á ferðinni
eitthvað alvarlegt og ég legg mikla
áherslu á að fagfólk komi að. Í fljótu
bragði og til lengri tíma er það auð-
vitað engin lausn að kippa nemand-
anum út úr hefðbundnu skólastarfi.
Til lengri tíma gengur slík einangrun
ekki og hljómar sérkennilega.“
Unnið eftir bókinni
Sökum trúnaðar segist Hreiðar Sig-
tryggsson, skólastjóri Langholts-
skóla, ekki geta rætt málefni ein-
stakra nemenda skólans. Almennt
segir hann skólayfirvöld gera sitt
besta til að leysa úr erfiðum mál-
um. „Ég get hvorki staðfest þetta né
neitt annað. Þau mál sem upp koma
í skólastarfinu, hvort sem þau eru
af þessum toga eða ekki, eru unn-
in í nánu samstarfi við þær stofn-
anir sem koma að skólanum og þar
er menntasvið borgarinnar fremst í
flokki. Þegar flókin og alvarleg mál
koma upp vinnum við eftir ákveðn-
um verkferlum og auðvitað er það
þannig að stundum finnst fólki að vel
hafi tekist til og stundum ekki,“ segir
Hreiðar.
„Við vinnum eftir bókinni. Sem
betur fer erum við með sérfræðinga í
kringum okkur sem við getum leitað
til í flóknari málum. Við erum með
yfir 500 nemendur í skólanum og
reynum að vinna öll mál eins vel og
hægt er.“
Ungur erlendur nemandi hefur verið útilokaður frá daglegu skólastarfi með bekkjar-
systkinum sínum. Eftir ásakanir og kröfur foreldra ákváðu skólastjórnendur að taka
hann úr umferð. Nemandinn fær ekki að fara í frímínútur eða í matsal með jafnöldr-
um sínum heldur aðeins með yngsta stigi skólans.
ÚTILOKAÐUR FRÁ
JAFNÖLDRUNUM
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Við erum með yfir 500 nemend-
ur í skólanum og reyn-
um að vinna öll mál eins
vel og hægt er.
Ekki með jafnöldrum Eftir því sem DV kemst næst fær nem-
andinn ungi hvorki að fara í frímínútur né borða í matsalnum
með jafnöldrum sínum. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Ekki til lengdar Kolbrún segir það
ekki ganga til lengri tíma að einangra
nemendur og leggur áherslu á að fagfólk
komi sem fyrst að lausn málsins.
Catalina Mikue Ncogo sem dæmd var
í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðs-
dómi bauð samfanga sínum að starfa
sem vændiskona fyrir sig þegar hún
hefði lokið afplánun. Aðalmeðferð
í máli Catalinu fer fram í Hæstarétti
þann 12. apríl næstkomandi. Sagðist
hún tilbúin að borga henni 500 þús-
und krónur á mánuði fyrir að starfa
sem vændiskona.
Hæstiréttur staðfesti á þriðjudag
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Catalinu
til 23. apríl næstkomandi. Upplýsing-
arnar um vændisboð Catalinu koma
fram í greinargerð ríkissaksóknara.
Bæði konan og annar samfangi Cata-
linu staðfestu að hún hefði boðið kon-
unni að gerast vændiskona fyrir 500
þúsund krónur.
Talið er að um fimmtán til tut-
tugu karlmenn hafi keypt vændi af
Cata linu og samstarfskonum sem hjá
henni störfuðu. Talið er að málum
mannanna verði vísað til saksóknara.
Ekki liggur ljóst fyrir hversu margir
þeirra verða ákærðir en hámarksfang-
elsi í slíkum málum er eitt ár.
Catalina Ncogo kræf í fangelsi:
Bauð vændisstarf
Sögð hvetja til vændis Ríkissaksóknari
segir Catalinu hvetja til vændis í fangelsi.