Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2010, Blaðsíða 74
74 MIÐVIKUDAGUR 31. mars 2010
Kjartan Atli Kjartansson, körfuboltamaður úr Stjörnunni, hef-
ur heldur betur verið að slá í gegn að undanförnu í körfunni.
Kjartan er kennari, á eina fimm mánaða prinsessu og hefur
verið stoppaður af lögreglunni fyrir að labba ekki á gangstétt.
JOHN MCLANE ER
MESTI TÖFFARINNwww.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
www.ungbarnasundsnorra.is
Ár 2010
20 ára
Ísland
NAFN OG ALDUR?
„Kjartan Atli Kjartansson, 25 ára gamall.“
ATVINNA?
„Kenni við unglingadeild Álftanesskóla.“
HJÚSKAPARSTAÐA?
„Í sambandi með hinni yndislegu Pálínu Maríu
Gunnlaugsdóttur.“
FJÖLDI BARNA?
„Eigum eina dóttur, Klöru Kristínu. Nýorðin fimm
mánaða.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR?
„Já, við fjölskyldan áttum tvo hunda þegar ég var
yngri. Annar var fjörugur og skemmtilegur - reynd-
ar allt of fjörugur, eins og hann væri að leika í Euro-
shopper orkudrykkjarauglýsingunni allan daginn.
Hinn hundurinn var allt of rólegur og leiðinlegur.
Notaði Old Spice og las Moggann “
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST?
„Úff, það er orðið alltof langt síðan, ætli það séu
ekki einhverjir Hjálma tónleikar. Langar samt að sjá
strákana í Dikta live.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN?
„Já, þegar ég var að keppa við bandarískt skólalið
sem var staðsett í herstöðinni í Keflavík. Þá vorum
við að labba út í búð og lögreglan stoppaði okk-
ur fyrir að vera ekki á gangstéttinni. Jaywalking í
beinni.“
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU?
„Ég á Boston Celtics búning sem ég held mikið upp
á. Einnig flottan bol með Bird og Magic utan á. Svo
gaf Pálína mér mjög flotta Chucks í jólagjöf, þetta
eru svona þeir hlutir sem standa upp úr.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN?
„Megrun? Já, ætli það ekki. Kalla karlmenn það ekki
alltaf ,,átak” til þess að vera ekki kvenlegir?“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆL-
UM?
„Já, oft. Skipulagði einu sinni mótmæli í FG þegar
samningar við dönskukennarann okkar voru ekki
endurnýjaðir, hún var sem sagt látin fara, enda
náðu allir hjá henni.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF?
„Já, ætli það ekki. Ég er alltaf að pæla í svona hlut-
um og kemst að mismundandi niðurstöðu í hvert
skipti sem ég les.“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ
HAFA HALDIÐ UPP Á?
„Ég er með sama tónlistarsmekk og ég var með
þegar ég var 10 ára - hlusta enn á rapp. Get því ekki
skammast mín fyrir neitt.“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR?
„Voðalega er þetta tvíræð spurning. Lagið ,,Be” með
Common kemur mér alltaf í gott skap.“
TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA?
„Svo margs. Pálína og ég erum að fara til New York í
sumar. Svo hlakka ég líka til þess að sjá dóttur mína
þroskast áfram. Næsti leikur er manni líka alltaf of-
arlega í huga.“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFT-
UR?
„Die Hard 2, því John McLane er mesti töffari í
heimi. Svo get ég horft á alla þættina af The Office
(bandarísku útgáfunni) aftur og aftur. Einfaldlega
því það eru bestu þættirnir.“
AFREK VIKUNNAR?
„Vaskaði upp og eldaði fyrir alla fjölskylduna í há-
deginu í gær.“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR?
„Amma mín heitin var spákona og ég bað hana að
kíkja í lófana mína nokkrum sinnum. Ekkert meira
en það.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI?
„Rokka mækinn en ekkert hljóðfæri.“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ?
„Ég er bara opinn fyrir ýmsum hlutum. Ég er reynd-
ar ekkert alltof hrifinn af Evrópusambandinu, því
það mismunar fólki sem ekki er fætt innan Evrópu.
En Ísland á tvímælalaust að vera meiri þátttakandi
í alþjóðlegu samstarfi og við eigum að hætta að
hugsa um hvað við græðum, frekar hvað við getum
gert.“
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU?
„Konan mín og dóttir.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ?
„Davíð Oddsson, ef hann telst ennþá sem ráða-
maður. Hef heyrt að hann sé mjög fyndinn. Væri
líka til í að heyra hvað væri málið með bolludags-
málið.“